Fréttablaðið - 29.07.2003, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 29.07.2003, Blaðsíða 20
■ ■ KVIKMYND  12.00 Tónleikamynd Sykurmol- anna, Á Guðs vegum, verður sýnd í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu. ■ ■ OPNANIR  13.00 Ulla Mörch, myndlistar- maður frá Danmörku, opnar sýningu í Deiglunni í Listagilinu á Akureyri. Sýningin stendur aðeins í einn dag. Ulla hefur verið gestur í Gestavinnu- stofu Gilfélagsins á Akureyri í júlímán- uði. Hún heldur sýningu á verkum sem hún hefur unnið meðan á dvöl hennar hefur staðið hér á landi.  Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar sýningu í Pakkhúsinu í Ólafsvík. Þar verða sýnd akrílmálverk á gamla glugga. Þetta er 37. sýning Aðalheiðar af alls 40 sem opnaðar eru víðsvegar um heiminn um þessar mundir.  Sýning á teikningum hins vinsæla teiknara Halldórs Péturssonar, sem unnar eru upp úr Grettis sögu, verður opnuð á Hótel Eddu að Laugarbakka í Miðfirði. Þetta eru myndir sem Halldór vann árið 1976 í tengslum við fyrirhug- aða útgáfu á sögunni sem fallið var frá. Teikningarnar, sem eru 14 talsins, hafa því aldrei í heild sinni birst almenningi fyrr en nú. ■ ■ ÚTIVIST  19.30 Ragnar Sigurjónsson ráðs- maður í Viðey verður með gönguferð um Viðey og veitir fjölskrúðugu dýralífi hennar athygli. Þar verpa nú a.m.k. 24 fuglategundir og fer fjölgandi. Hugsan- lega gefst gestum einnig kostur á að heilsa uppá hjálmskjótta hesta ráðs- mannsins en það er um margt sérstakt. ■ ■ TÓNLIST  20.00 Vestur-íslenskur barna- og unglingakór syngur í Glerárkirkju á Ak- ureyri. Stjórnandi er Rosalind Vigfússon.  20.30 Tónlistarhópurinn Katla flyt- ur verk eftir íslensk og önnur norræn tónskáld 20. aldar á sumartónleikum í Listasafni Sigurjóns. Kötlu skipa Svava Kristín Ingólfsdóttir, Ingibjörg Guð- laugsdóttir og Magnús Ragnarsson sem öll búa og starfa í Gautaborg.  22.00 Áki Ásgeirsson trompet- leikari, Helgi Hrafn Jónsson básúnuleik- ari og Stefán Jón Bernharðsson horn- leikari flytja splunkunýja tónlist fyrir brass og rafmagn á Gauknum. Einnig kemur fram heimilistækjahljómsveitin Mulinex. 29. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 26 27 28 29 30 31 1 JÚLÍ Þriðjudagur Halldór Pétursson var á sínumtíma einn vinsælasti teiknari þjóðarinnar. Þeir sem eiga leið um Húnaþing næstu vikurnar hafa nú tækifæri til að sjá fjórtán myndir sem hann teiknaði árið 1976 fyrir útgáfu á Grettissögu, sem þó varð aldrei af. Þessar teikningar eru eitt af því síðasta sem Halldór gerði áður en hann lést og þær hafa aldrei kom- ið fyrir sjónir al- mennings í heild. Sýning á Grettis- söguteikningunum verður opnuð á Hótel Eddu á Laugarbakka í Miðfirði í dag. Hún er í tengslum við Grettishátíð sem haldin verður helg- ina 16. og 17. ágúst með menningardag- skrá og aflrauna- keppni. „Það má segja að hátíðin fari í gang með þessari sýningu, sem verður opin fram til 17. ágúst,“ segir Þröstur Árna- son norður í Húna- þingi. Hann og félag- ar hans hjá Grettistaki, sem stendur að sýning- unni, eru stórhuga og gera sér vonir um að setja upp veglega Grettissýningu með fjölskyldu- garði þar á Laugarbakka innan tíðar. „Við erum búin að kaupa hús og höfum látið hanna sýning- arsvæðið.“ ■ Grettisteikningar frumsýndar ■ MYNDLIST GRETTIR MEÐ NAUT Á BAKI Grettissögu-teikningar Halldórs Péturssonar verða sýndar í fyrsta sinn á Hótel Eddu að Laugarbakka í Miðfirði í dag. Mánudaga til Föstudaga Laugardaga kl: 12:00 til 16:00 Opnunartími í sumar: Sími: 514-4407 kl: 13:00 til 18:00

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.