Fréttablaðið - 01.09.2003, Qupperneq 1
megane ● lúxusbíll frá skoda
▲
SÍÐUR 14-15
bílar o.fl.
Gerir nærri því
innkaupalista
draumabíllinn:
Hulda Gunnarsdóttir er afslöppuð
Tímamót:
▲
SÍÐA 12
Lífið með ró
Leitað að hæfileikum
Sjörnur:
▲
SÍÐA 4
Nóg framboð
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 22
Leikhús 22
Myndlist 22
Íþróttir 20
Sjónvarp 24
MÁNUDAGUR
1. september 2003 – 208. tölublað – 3. árgangur
DÝRKEYPT RIS Til stendur að beita
húseiganda í Reykjavík 50 þúsund króna
sektum fyrir hvern dag sem líður án þess
að hann rífi ris sem hann byggði ofan á
hús sitt í óleyfi. Sjá síðu 4.
MANNSKÆÐIR MONSÚNRIGN-
INGAR Um 1200 hafa farist í óvenju
mannskæðum monsúnrigningum í Suður-
Asíu að þessu sinni. Sjá síðu 6.
HÆLI Í SÚÐAVÍK
Sveitarstjórinn í Súðavík hefur boðið bol-
víska útgerðarmanninum Jóni Guðbjarts-
syni hæli kjósi hann að yfirgefa Bolungarvík
með aflaheimildir sínar. Sjá síðu 8.
LEIKIR Í TOPPBARÁTTUNNI
Tveir leikir í toppbaráttu Landsbankadeildar
karla fara fram í dag. KR sækir Grindavík
heim en Vesturbæjarliðið er á toppi deild-
arinnar með 30 stig, fjórum stigum meira
en Fylkir sem er í öðru sæti. Fylkismenn fá
Skagamenn í heimsókn í Árbæinn. Leikirnir
hefjast klukkan 18. Sjá nánar bls. 30.
DAGURINN Í DAG
● góð ráð Frikka Weiss
▲
FYLGIR BLAÐINU Í DAG
Skrýtna húsið
í Garðabæ
Baldur Ó. Svavarsson:
VEÐRIÐ Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG er ekki sérlega spenn-
andi fyrir lansmenn. Vindur fer vaxandi og
búast má við skúrum eða rigningu víðast-
hvar um landið. Sjá síðu 6.
M
YN
D
/A
P
LEIÐTOGANS MINNST
Útför Ayatollah Mohammed Baqir al-Hakim, eins virtasta leiðtoga Shítamúslima, fer fram í Najaf á morgun. Þúsundir Shítamúslima tóku
þátt í minningarathöfn í Bagdad í gær. Baqir al-Hakim var meðal þeirra 125 sem fórust í sprengjutilræði við bænastað Shítamúslima í
hinni helgu borg Najaf á föstudag.
BAGDAD, AP „Leiðtogi okkar Hakim
er horfinn. Við heimtum blóð
morðingja hans,“ kyrjuðu þús-
undir Shíta-
múslima um leið
og þeir börðu
sér á brjóst á
götum hinnar
helgu borgar
Najaf í Írak í
gær. Mikil reiði
og spenna ríkir
nú í Írak eftir
h r y ð j u v e r k a -
árásina á aðal-
bænahús Sítamúslima í Najaf á
föstudag. Öflug bílsprengja
sprakk við Iman Ali moskuna,
rétt eftir að föstudagsbænum
lauk og mikill mannfjöldi var fyr-
ir framan moskuna. Að minnsta
kosti 125 manns létust og tæp-
lega 150 særðust. Meðal látinna
er Ayatollah Mohammed Baqir
al-Hakim, einn virtasti leiðtogi
Shítamúslima.
Þriggja daga sorgarferli hófst
í gær, en því lýkur með útför al-
Hakims á morgun.
Víða um Írak hafa menn kom-
ið saman til að syrgja og mót-
mæla hryðjuverkinu. Tugir þús-
unda hafa komið til Bagdad en at-
höfn til minningar um al-Hakim
var í Kadhimiyah, úthverfi höf-
uðborgarinnar í gær. Kista með
líkamsleifum al-Hakims, skreytt
hvítum og rauðum rósum og
mynd af leiðtoganum, var borin
um borgina. Sams konar athöfn
verður í borginni Karbala í dag
en á morgun verða líkamsleifar
al-Hakims fluttar aftur til hinnar
helgu borgar Najaf þar sem út-
förin fer fram. Talið er að 300.000
Shíta-múslímar leggi leið sína til
Najaf til að vera við útförina.
Framkvæmdaráð Íraks hefur
farið fram á að landamærum
Íraks og Írans verði lokað til að
reyna að koma í veg fyrir að fólk,
sem vill taka þátt í jarðarförinni,
streymi yfir þau.
Fjórir karlmenn, tveir Írakar
og tveir Sádar, sem talið er að
hafi tengsl við Saddam Hussein,
fyrrum forseta Íraks og hryðju-
verkasamtökin al-Qaeda, voru
handteknir strax eftir árásina og
játuðu þeir á sig verknaðinn. Í
kjölfar yfirheyrslna voru 15 til
viðbótar handteknir.
the@frettabladid.is
Þúsundir syrgja
leiðtogann í Najaf
Hátt í 300.000 Shítamúslimar leggja leið sína til hinnar helgu borgar
Najaf í Írak til að syrgja al-Hakim, leiðtoga sinn, sem var myrtur á föstu-
dag. Þriggja daga sorgarferli lýkur með útför al-Hakims á morgun.
Viðtal við smábátaformann:
LÍÚ kvartar undan RÚV
FJÖLMIÐLAR Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna hefur sent
fréttastofu útvarps umkvörtun
vegna útvarpsviðtals við Guð-
mund Halldórsson, formann smá-
bátafélagsins Eldingar á Vest-
fjörðum, á föstudaginn. Í viðtalinu
sakaði Guðmundur LÍÚ um að
standa á bak við yfirlýsingar út-
gerðarmannsins, Jóns Guðbjarts-
sonar, sem hótaði að yfirgefa
Bolungarvík ef bæjarstjórnin léti
ekki af stuðningi við línuívilnun.
Sagði Guðmundur að LÍÚ væri að
nota Jón.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir óþol-
andi að slíkri ásökun hafi verið
útvarpað án þess að gæta hlut-
leysis og virða sjónarmið beggja
aðila. „Þetta er ekki í fyrsta
skiptið sem Ríkisútvarpið vinnur
svona. Auðvitað er þetta óþol-
andi. Þarna er fréttamaður vís-
vitandi að útvarpa röngum ásök-
unum.“
Bogi Ágústsson, forstöðumað-
ur fréttasviðs RÚV, segir ekkert
athugavert við vinnubrögð frétta-
stofunnar í málinu. „Það er ekkert
að þessu viðtali. Við erum fyrst
með viðtal við Jón, sem er með
harkalegar yfirlýsingar, og síðan
svarar Guðmundur. Hann verður
sjálfur að standa fyrir sínum yfir-
lýsingum um LÍÚ.“ ■
TÖKIN HERT
Björgólfsfeðgar herða tökin í baráttunni
um völdin í Fjárfestingarfélaginu Straumi.
Barátta um Straum:
Líkur á yfir-
tökutilboði
VIÐSKIPTI Heimildir eru fyrir því að
félag tengt Landsbankanum og
Samsoni hafi tryggt sér kaup á 4,5%
hlut Saxhóls, eignarhaldsfélags
Nóatúnsfjölskyldunnar, í fjárfest-
ingarfélaginu Straumi. Kaupin
munu ekki að fullu frágengin en
samkvæmt heimildum er Saxhóll
tilbúinn til að selja Björgólfsfeðg-
um sinn hlut.
Gangi viðskiptin eftir er Lands-
bankinn, og tengdir aðilar, komnir
upp undir 40% hlut í félaginu. Fari
þeir yfir þau mörk verða þeir að
gera öðrum hluthöfum yfirtökutil-
boð. Íslandsbanki og tengdir aðilar
ráða yfir 30% hlut í Straumi. Þeir
eru ekki skyldugir til að selja. Sölu-
skyldan myndast við 90% mörkin.
Líklegt er að þau mörk náist í dag.
Eignarhlutur Íslandsbanka og
tengdra aðila tryggir að ekki er
hægt að gera breytingar á sam-
þykktum félagsins án þeirra sam-
þykkis. Þar með getur Landsbank-
inn ekki innlimað Straum bankan-
um án samþykkis Íslandsbanka.
Ráðandi hlutur Landsbankans
tryggir þeim stjórnarsæti í sam-
ræmi við eignarhlut og þar með at-
kvæðavægi í ákvörðunum um fjár-
festingar og framgöngu sjóðsins.
Með því myndast veruleg völd yfir
eignarhlutum Straums í stórfyrir-
tækjum eins og Eimskipafélagi Ís-
lands.
Hvorki Bjarni Ármannsson, for-
stjóri Íslandsbanka, né Kristján
Ragnarsson, formaður bankaráðs-
ins vildu tjá sig um þessi tíðindi.
Ekki náðist í Björgólf Guðmunds-
son, bankaráðsformann Lands-
bankans. ■
FYRIRTÆKI SEM
STRAUMUR TRYGGIR ÁHRIF Í
Eimskipafélagið
Flugleiðir
Marel
Opin kerfi
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
Sjóvá-Almennar
FRIÐRIK J. ARNGRÍMSSON
Framkvæmdastjóri LÍÚ segir fréttamann
Ríkisútvarpsins hafa vísvitandi útvarpað
röngum fullyrðingum formanns smábáta-
félagsins Eldingar.
„Leiðtogi
okkar Hakim
er horfinn.
Við heimtum
blóð morð-
ingja hans
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Bitrufjörður:
Valt með
terpentínu
UMFERÐ Tankbíll með 40 þúsund
lítra af terpentínu til malbikunar
valt á hliðina í Bitrufirði, norðan
Hrútafjarðar, um hádegið í gær.
Nokkur þúsund lítrar af terpentínu
láku í jarðveginn við slysið, og er
talið að tvö þúsund lítrar hafi orðið
eftir þegar hreinsun lauk. Hugsan-
legt er að jarðvegurinn verði graf-
inn í burtu, þar sem terpentínan lak.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Hólmavík er tankbíllinn
fjórði stóri bíllinn með tengivagn
sem fer út af veginum í Bitrufirði
síðustu tvö árin. ■