Fréttablaðið - 01.09.2003, Side 2

Fréttablaðið - 01.09.2003, Side 2
2 1. september 2003 MÁNUDAGUR „Byggi menn í óleyfi getur það reynst þeim dýrkeypt!“ Steinunn Valdís Óskardóttir er formaður skipu- lags- og byggingarnefndar Reykjavíkur sem vill beita húseiganda í borginni 50 þúsund króna dagsektum, rífi hann ekki viðbyggingu sem hann reisti í óleyfi við hús sitt Spurningdagsins Steinunn, er svona dýrt að byggja í Reykjavík? ■ Lögreglufréttir Endurheimtir frelsið í Dubai Áfrýjunarréttur í Dubai hefur stytt fangelsisvist riffilmannsins Flosa Arnórssonar um helming. Hann losnar líklega úr fangelsi í dag. Systir Flosa segist afar fegin að málinu skuli loks ljúka. DÓMSMÁL Flosi Arnórsson sjó- maður losnar líklega úr haldi í Dubai í dag. Áfrýjunarréttur féllst í gær á kröfu lögmanna Flosa um að bundinn yrði endir á fjögurra mánaða fangelsisdóm sem hann hlaut á dögunum fyrir að hafa í fórum sínum riffil og skot í hann á alþjóða- flugvellinum í Dubai 22. apríl í vor. Byssuna hafi Flosi flutt með sér til Dubai þegar hann tók þátt í að flytja þang- að skip frá Ís- landi. „Ég held að Flosi hljóti að vera ofsalega ánægður með þessa niðurstöðu. Hann fékk að vísu 100 þúsund króna sekt en það er mikið minna en við var að búast. Fjölskyldan er líka afar ánægð með að þessi bölvaða vit- leysa skuli vera búin,“ segir Jóna Sigurbjörg Arnórsdóttir, systir Flosa. Alls sat Flosi í fangelsi í um 60 daga, eða sem svarar til tveg- gja mánaða. Fyrst sat hann í 40 daga gæsluvarðhaldi fram til 1. júní. Þá var hann látinn laus en settur í farbann þar til dómur félli. Hann var síðan sendur aft- ur í fangelsi eftir að dómurinn var kveðinn upp 12. ágúst og hefur setið þar síðan. Í stað fangelsisdómsins sem út af stóð á Flosi að greiða 100 þúsund krónur í sekt. Að sögn Jónu Sigurbjargar hefur Flosi dvalist undanfarið í fangelsi fyrir utan borgina Abu Dabi. „Við höfum ekkert heyrt í honum sjálf en norski sendi- ráðspresturinn og norska sendi- ráðið segir aðbúnaðurinn ágæt- an og allt í lagi með Flosa,“ seg- ir hún. Jóna Björg segir að þó dómari hafi úrskurðað í gær að Flosa skyl- di sleppt yrði það sennilega ekki fyrr en í dag að nauðsynleg papp- írsvinna væri yfirstaðinn. Þá væri óljóst hversu langan tíma tæki að útvega honum nýtt vegabréf: „Á morgun fer maður frá norska sendiráðinu og fer með Flosa á norska sjómannaheimilið. Þar verð- ur hann þar til vegabréfið er tilbú- ið. Þá er ekki um annað að ræða fyrir hann en að koma sér heim.“ Að sögn Jónu Sigurbjargar hef- ur enn ekki verið tekið saman hver- su mikið ævintýri Flosa í Dubai mun kosta hann í peningum. „Í fljó- tu bragði sýnist mér að þetta kosti ekki minna en tvær til þrjár millj- ónir. Hann verður að fá vinnu þeg- ar hann kemur heim. Það er ekki einfalt að fá gott skipsrúm. Aðalat- riðið er þó að hann er laus.“ gar@frettabladid.is Bandarísk slökkviliðsverðlaun: Íslendingur tilnefndur VIÐURKENNING Einn Íslendingur var á meðal tilnefndra sem slökkviliðsstjóri ársins í árlegri heiðursverðlaunaveitingu Al- þjóðasamtaka slökkviliðsstjóra á dögunum. Haraldur Stefáns- son, slökkviliðsstjóri á Keflavík- urflugvelli, var eini tilnefndi utan Bandaríkjanna, en ellefu bandarískir slökkviliðsstjórar voru ásamt honum í hópi til- nefndra. Þar af var ein kona, slökkviliðsstýra í Virginíu, og fór svo að hún hlaut heið- ursverðlaunin. Haraldur segir ánægjulegt að hafa verið sá eini tilnefndra sem ekki var bandarískur. „Ég vinn hjá bandaríska ríkinu og hef gert í 48 ár. Það var ánægjulegt að koma Íslandi á kortið. Ég held þetta hafi verið í fyrsta skiptið sem slökkviliðsstjóri utan Bandaríkjanna er tilnefndur.“ Val í hóp 12 tilnefndra fer þannig fram að hægt er að senda bréf á alþjóðasamtökin, þar sem starfsferill slökkviliðsstjórans er kynntur. Slökkvistöðin á Keflavíkurflugvelli er sú eina á Íslandi sem er aðili að samtök- unum. Haraldi var veitt fálkaorða ís- lenska lýðveldisins í júní síðast- liðnum fyrir störf sín, en stöðin á Keflavíkurflugvelli hefur hlot- ið fjölda alþjóðlegra viðurkenn- inga. ■ Tryggvagata: Árásarmenn eltir uppi LÖGREGLUMÁL Tveir menn réðust á annan í Tryggvagötu á fimmta tímanum aðfaranótt sunnudags. Árásin sást á löggæslumyndavél- um miðborgarinnar og sást annar mannanna sparka í höfuðið á þol- andanum. Báðir árásarmennirnir voru eltir á hlaupum af lögreglu og náðust þeir skammt frá. Sjúkrabíll sótti þolandann þar sem hann lá meðvitundarlaus í götunni. Áverkar hans reyndust ekki eins alvarlegir og útlit var fyrir. Báðir árásarmennirnir voru fangelsaðir en þeim var sleppt að loknum yfirheyrslum í gær. ■ ÍKVEIKJA Björgunarmenn flytja eitt fórnarlambanna úr rústunum. Að minnsta kosti 13 létust og yfir 70 slösuðust þegar eldur braust út í 8 hæða íbúðabyggingu í Tapei. Eldsvoði í Tapei: Íkveikja í kjölfar fjöl- skyldudeilna TAPEI, AP Að minnsta kosti 13 létust og yfir 70 slösuðust þegar eldur braust út í 8 hæða íbúðahúsi í Tapie í Taiwan í gær. Margir hinna slösuðu hlutu sár sín þegar þeir stukku út úr logandi húsinu. Grunur manna beindist strax að íkveikju og var sá grunur stað- festur við rannsókn. Kona sem bjó í húsinu hafði grunað mann sinn um framhjáhald. Eftir heiftarlegt rifrildi milli þeirra, hellti konan terpentínu um húsið og yfir sjálfa sig og lagði síðan eld að. Konan lifði af og liggur nú á sjúkrahúsi með alvarleg brunasár á um 80% líkamans. Eignmaðurinn hlaut minni háttar sár. ■ Kvótinn eykst: Áramót í fiskveiði SJÁVARÚTVEGUR Nýtt fiskveiðiár hófst í dag og veiðar hefjast á nýrri kvótaúthlutun, sem meðal annars er 30 þúsund tonnum hærri í þorski og fer ýsukvóti úr 55 þúsund tonnum í 75 þúsund tonn. Kvóti allra tegunda eykst um 11 prósent í þorskígildum talið, en þar er tekið tillit til verð- mæti tegunda. Ekki hefur tekist að nýta kvót- ann í úthafsrækju og síld og má gera ráð fyrir að þúsunda tonna kvóti í tegundunum tveimur ónýt- ist. Auk þess að veiðar úr nýrri kvótaúthlutun hefjist í dag er aft- ur leyfilegt að veiða síld, en síld- veiðar eru óheimilar frá júní fram á nýtt fiskveiðiár. ■ KANTURINN GAF SIG Mildi að ökumaður kranans skyldi ekki stórslasast. Kranabíll valt: Slapp með lítinn skurð ÓHAPP Mesta mildi var að ekki hlaust af slys þegar krani valt á hliðina með ökumanninn innan- borðs. Óhappið varð við nýju brúna yfir Kolgrafafjörð á Snæ- fellsnesi í vikunni. Bílstjórinn var að bakka niður smá halla þegar vegkanturinn gaf sig með þessum afleiðingum. Að sögn sjónarvotta áttu menn von á að maðurinn væri stórslas- aður, en hann slapp með lítinn skurð á hendi. Vinna hefur staðið yfir í allt sumar við að brúa fjörðinn og styttir það leiðina á milli Stykkis- hólms og Grundarfjarðar og Ólafsvíkur til muna. ■ HARALDUR STEFÁNSSON Slökkviliðsstjórinn á Keflavíkurflugvelli var tilnefndur ásamt ellefu Bandaríkjamönn- um til heiðursverðlaunanna „slökkviliðs- stjóri ársins“. Seboko vígð í embætti: Ein valda- mesta kona Afríku BOTSWANA, AP Mosadi Seboko hefur verið vígð í embætti æðsta höfð- ingja í Botsawana í Suður-Afríku. Seboko er fyrsta konan sem kemst í þessa valdastöðu. Um leið er hún orðin ein valdamesta konan í Afríku. Seboko, sem var klædd hlé- barðaskinni við vígsluna, er fyrr- verandi bankastjóri. Hún er ein- stæð móðir sem ól upp fjórar dæt- ur sínar af miklu harðfylgi. Hún var kjörin leiðtogi Balete-fólks- ins, sem eru 30.00 talsins, eftir að foreldrar hennar létust. ■ Faðir myrti son sinn: Drengurinn andkristur NEBRASKA, AP Saksóknarar í Nebraska hafa ákært 25 ára gaml- an karlmann fyrir að myrða fjög- urra ára son sinn. Lík drengsins er ófundið en hans hefur verið saknað síðan í byrjun janúar. Í yfirheyrslu í tengslum við annað mál lét faðirinn, Ivan Henk, þau orð falla að hann hefði drepið soninn af því að hann hefði verið sjálfur andkristur. „Það stóð 666 á enni hans“ sagði Henk. Faðirinn leiddi lögregluna að sorptunnu þar sem hann sagðist hafa skilið lík drengsins eftir. Í tunnunni fannst blóð sem reyndist tilheyra barninu. Leitað var að líkinu á sorphaugum í sjö vikur en án ár- angurs. ■ „Fjölskyldan er líka afar ánægð með að þessi bölv- aða vitleysa skuli vera búin. FLOSI ARNÓRSSON OG NORSKI KONSÚLLINN Í DUBAI Að sögn Jónu Sigurbjargar Arnórsdóttur, systur Flosa Arnórssonar, hefur Flosi dvalist und- anfarið við ágætan aðbúnað í fangelsi fyrir utan borgina Abu Dabi. BÚFERLAFLUTNINGAR „Bíllinn var fluttur hingað fyrir um viku síð- an,“ segir Júlíus Þorbergsson, eig- andi verslunarinnar Draumsins á Rauðarárstíg, um lítinn sendi- ferðabíl sem hefur verið lagt fyr- ir utan verslunina. Heimilislausir borgarar búa í bílnum sem rataði í fjölmiðla fyrr í sumar þegar hon- um var lagt við Kjarvalsstaði. Júlíus segir bílinn vera óæski- legan fyrir utan verslunina. Hann er þegar búinn vara eigandann við sem segist vera bíða eftir því að vinur hans komi með rafgeymi úr Hveragerði. „Vinurinn er svo lengi á leiðinni að hann hefur sennilega farið gangandi eða hinn hringinn. Annars vorum við feðgarnir að spá í draga hann í burtu þegar tími gefst til - hjálpa þeim með bílinn frá fyrirtækinu.“ Júlíus segir að honum finnist ríkið, sem borgar heimilislausum kaup, ætti að sjá um þá aðeins líka og koma yfir þá þaki. „Ein- hvers staðar verða þeir að vera inni greyin þegar þeir mega ekki lengur liggja undir trján- um. Þeir hafa staðið sig vel við að vera þarna inni blautir og kaldir.“ Hann segist stundum hafa gefið þeim að borða til að halda í þeim lífinu. ■ NÝ STAÐSETNING Rauði sendiferðabílinn sem áður var við Kjarvalsstaði er nú fyrir utan Drauminn. Rauðarárstígur: Bíður rafgeymis úr Hveragerði fr é tt a b la ð ið /r ó b e rt EKIÐ Á VEGFARANDA Ekið var á gangandi vegfaranda á mótum Meistaravalla og Hringbrautar laust fyrir klukkan níu í gærkvöld. Tildrög slyssins eru óljós en vegfarandinn var fluttur á slysadeild. Ekki var vitað um líðan hans þegar blaðið fór í prentun.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.