Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.09.2003, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 01.09.2003, Qupperneq 6
6 1. september 2003 MÁNUDAGURVeistusvarið? 1KR varð Íslandsmeistari kvenna íknattspyrnu. Hverjar skoruðu mörk KR? 2Tveir menn vinna við að skrifa ævi-sögu Halldórs Laxness. Hverjir eru þeir? 3Ellefu þúsund Frakkar dóu í hita-bylgjunni í Frakklandi í júlí. Hve margir dóu að meðaltali á dag? Svörin eru á bls. 46 Hugmyndir um veitingahús við Snoppu valda deilum á Seltjarnarnesi: Ásakanir um valdníðslu í umhverfisnefnd SVEITARSTJÓRNIR Neslistinn á Sel- tjarnarnesi sakar meirihluta Sjálf- stæðismanna um valdníðslu í um- hverfisnefnd bæjarins. Á fundi umhverfisnefndarinnar í lok júlí samþykkti meirihlutinn af- brigði frá dagskrá, þannig að hægt yrði að afgreiða tillögu um að kann- aður yrði sá möguleiki á veitinga- húsi á milli bílastæðisins við Snoppu og fiskitrananna. Fulltrúar Neslistans tóku málið upp á bæjarstjórnarfundi í ágúst. Þeir hafi ekki verið reiðubúnir að ræða tillöguna um veitingahúsið, á fundi umhverfisnefndar, því þeir hefðu aldrei séð hana áður. Formað- ur nefndarinnar hafi fengið tillög- una tekna á dagskrá með þremur at- kvæðum sjálfstæðismanna gegn tveimur atkvæðum Neslistans. Það væri brot á samþykktum Seltjarn- arnesbæjar, því tvo þriðju hluta at- kvæða þyrfti til að samþykkja af- brigði: „Afgreiðsla formannsins er dæmi um stórkostlega valdníðslu meirihlutans og draga má í efa að formaður umhverfisnefndar sé starfi sínu vaxinn,“ sagði Neslist- inn. Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn sögðust hins vegar fagna „frum- kvæði formanns og meirihluta um- hverfisnefndar í spennandi fram- faramáli og vonast til að málið verði tekið aftur á dagskrá nefndarinnar hið fyrsta.“ ■ Monsúntímabilið óvenjumannskætt í ár Um 1.200 manns hafa látist af völdum monsúnrigninga í Suður-Asíu í ár. Þar af hefur helmingur farist á Indlandi. Flóð af völdum rigninga ógna heimilum milljóna Indverja og smitsjúkdómar breiðast ört út. INDLAND, AP Gríðarleg flóð eru í Indlandi af völdum monsúnrign- inga. Veðurfræðingar segja að rigningarnar í ár séu að minnsta kosti fimmtungi meiri en í meðal- ári. Ár hafa flætt yfir bakka sína og hafa þúsundir manna þurft að yfirgefa heimili sín sem eru um- flotin vatni. Tugir manna hafa drukknað undan- farna sólarhringa. Frá því monsún- tímabilið hófst í júní hafa rúmlega 600 manns drukknað eða látist af völdum eldinga eða sjúkdóma á Indlandi. Tæplega 200 þorp í Orissa hér- aði eru umflotin vatni og hafa 100.000 manns þurft að yfirgefa heimili sín þar. Flóð af völdum rigninganna ógna nú 2.000 þorpum sem í búa 2,7 miljónir manna. Ind- verski herinn vinnur að björgun íbúa þar. Stór hluti uppskeru bænda er ónýtur af völdum flóðanna og mörg þorp eru einangruð. „Fólk mun fljótt svelta í hel og deyja af völdum smitsjúkdóma, verði vistum og hjálpargöngum ekki varpað niður úr flugvél og hjúkrunarlið flutt hingað í bráð til að meðhöndla malaríu og aðra smitsjúkdóma,“ sagði Dilip Saikia, stjórnmálaleiðtogi. Að minnsta kosti 17 manns hafa látist af völdum malaríu en talið er að 15.000 hafi smitast. Fleiri skæð- ir smitsjúkdómar breiðast ört út, svo sem heilabólga og alvarlegir meltingarsjúkdómar. Monsúnrigingar hafa bitnað hart á fleirum en Indverjum. Frá því rigningarnar hófust í júní hafa rúmlega 1.200 manns í Suður-Asíu látist af völdum flóða og smitsjúk- dóma. Helmingurinn, 600 manns eru Indverjar, 236 hafa látist í Pakistan, 216 í Nepal og 181 í Bangladesh. Monsúntímabilinu lýkur í september. ■ Á SELTJARNARNESI Sjálfstæðismenn vilja kanna hvernig unnt sé að koma fyrir kaffihúsi á opnu svæði á Seltjarnarnesi. Fulltrúar Neslistans segja að málið hafa verið afgreitt í umhverfisnefnd með valdníðslu. HÍBÝLIN UMFLOTIN Úrhellisrigningar hafa verið í Suður-Asíu að undanförnu. 1.200 hafa látist af völdum flóða og smitsjúkdóma og heimilum milljóna manna er ógnað. ■ Fólk mun fljótt svelta í hel og deyja af völd- um smitsjúk- dóma FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B JA RG EY

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.