Fréttablaðið - 01.09.2003, Page 8

Fréttablaðið - 01.09.2003, Page 8
1. september 2003 MÁNUDAGUR Göran Persson um EVRU-aðild Svía: Andvígur þjóðaratkvæðagreiðslu STOKKHÓLMUR, AP „Ég hef aldrei verið stuðningsmaður þjóðarat- kvæðagreiðslu,“ segir Göran Pers- son, forsætisráðherra Svíþjóðar. Skoðanakannanir í landinu sýna að meirihluti Svía er andvígur að- ild Svíþjóðar að myntbandalagi Evrópu og upptöku Evrunnar. Persson segir að þjóðaratkvæða- greiðsla um málið sé ekki besta lausnin. Svíar greiða þjóðarat- kvæði um Evruna þann 14. sept- ember. Kannanir að undanförnu hafa lítið breyst, rúmur meirihluti Svía er andvígur Evrunni eða svo munar 10 til 15%. Göran Persson segir að hyggi- legra hefði verið að láta 349 fulltrúa sænska þingsins taka af- stöðu til Evru-aðildar. „En þjóðaratkvæðagreiðsla var málamiðlun stjórnmálamanna og við það verður að una,“ sagði Persson. Danmörk, Svíþjóð og Bretland eru einu Evrópusambandslöndin sem standa utan myntbandalags- ins en Danir höfnuðu aðild í þjóð- aratkvæðagreiðslu árið 2000. ■ FISKVEIÐISTJÓRNUN Ómar Már Jóns- son sveitarstjóri Súðavíkurhrepps býður bolvíska útgerðarmannin- um, Jóni Guðbjartssyni, að flytja til Súðavíkur með allan sinn rekst- ur, ákveði hann að yfirgefa Bol- ungarvík. Í viðtali við vestfirska fréttavefinn, Bæjarins besta, lýsir Ómar sveitarstjóri andstöðu Súða- víkur við línuívilnun, þar sem hún feli í sér að sneið sé tekin af einni útgerð til að auka við aðra. Þá opin- berar Ómar áhyggjur sínar af því að Súðvíkingum verði ekki úthlut- aður byggðakvóti á ný, verði hug- myndir um línuívilnun ofan á. Jón Guðbjartsson skrifaði bæj- arstjórn Bolungarvíkur bréf á dög- unum þar sem hann hótaði brottför úr bænum ef hún léti ekki af stuðn- ingi við málflutning smábáta- manna sem berjast fyrir línuíviln- un. Þar fer fremstur í flokki Guð- mundur Halldórsson, formaður smábátafélagsins Eldingar á norð- anverðum Vestfjörðum, sem hefur ítrekað krafist þess að Sjálfstæðis- flokkurinn, með forsætisráðherra í fararbroddi, efni loforð um að koma á línuívilnun þegar í stað. ■ JÁ EÐA NEI? Göran Persson og stjórn hans hefur staðið í ströngu að undanförnu við að sannfæra Svía um kosti Evru-aðildar. Fátt bendir til að boðskapur Perssons hafi náð í gegn, þegar hálfur mánuður er í þjóðaratkvæða- greiðslu um málið. SÚÐAVÍK Sveitarstjórinn á Súðavík býður útgerðar- manninum Jóni Guðbjartssyni frá Bolung- arvík að flytja í sveitarfélagið sitt og lofar að styðja ekki línuívilnun líkt og bæjar- stjórn Bolungarvíkur. Baráttan um línuívilnun: Bolvíkingi boðið hæli í Súðavík

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.