Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.09.2003, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 01.09.2003, Qupperneq 12
1. september 2003 MÁNUDAGUR Upphaf seinni heimsstyrjaldarinnar Ídag eru 64 ár frá upphafi seinniheimsstyrjaldarinnar en 1. sept- ember 1939 réðist Hitler inn í Pól- land. Hann hafði þá þegar sölsað undir sig þýskumælandi hluta Tékklands og norð-austurhluta Prússlands, þar sem Litháen er í dag. Viku fyrir innrásina inn í Pólland hafði Hitler gert samning við Stalín, einræðisherra Sovétríkjanna, um hernaðarbandalag Þýskalands og Sovétríkjanna. Mikil ókyrrð hafði ríkt í Evrópu vegna vaxandi áhrifa fasista en fas- istaflokkur Mussolini á Ítalíu hafði þegar hertekið Albaníu. Bretar og Frakkar óttuðust mjög að Hitler ætlaði inn í Pólland og fengu skrif- legt loforð frá honum þess efnis að hann myndi ekki halda innrásum sínum áfram. Hitler hafði aldrei haft í hyggju að standa við loforð sín og nasistar gerðu leifturárás á Pólland 1. sept- ember. Þremur dögum síðar lýstu Bretar og Frakkar stríði á hendur Hitler. Stalín efndi loforð sitt við Hitler og réðist inn í Pólland þann 17. septem- ber. Tíu dögum síðar féll Varsjá, höf- uðborg landsins. Þann 29. september skiptu Þjóð- verjar og Rússar landinu á milli sín. ■ Tekur lífinu með ró Ég tek lífinu með ró og er ekkertfarin að leita fyrir mér enn,“ segir Hulda Gunnarsdóttir frétt- kona, sem sagt var upp störfum á Stöð 2 fyrr í sumar, ásamt þeim Ólöfu Rún Skúladóttur, Margréti Stefánsdóttur og Bryndísi Hólm. Hulda var í sumarfríi þegar henni barst uppsagnarbréfið en hafði áður verið í barneignarleyfi. „Ég á enn sex mánuði eftir á laun- um og þeir spara ekki mikið á því að segja mér upp,“ segir Hulda kímin. Hún segir að eftir á að hyggja þá öfundi hún ekki félaga sína sem eftir eru í starfi á frétta- stofunni. „Þetta eru erfiðir tímar hjá þeim og víðs fjarri að það sé gaman að horfa á eftir stórum hluta vinnufélaganna.“ Hulda hóf störf hjá Stöð 2 árið 1989 og á margar góðar minningar frá þessum tíma. Hún segist hafa eignast góða félaga í gegnum starf- ið og oft hafi verið mjög ánægju- legt að vinna á Stöð 2. „Ég geri mér ekki alveg grein fyrir hvenær fór að halla undan fæti. Það vill verða svo, þegar fer að ára illa hjá fyrir- tæki, að það grefur undan móraln- um. Kröfur verða meiri til fólks, ekkert má gera sem kostar peninga og smátt og smátt fer óánægjan að gera vart við sig og fólk missir flugið.“ segir hún. Hulda segist ekkert vera viss um hvað hún vilji starfa við í framtíð- inni. Hún hafi ekki unnið við annað en fjölmiðlun frá því hún skreið út úr háskóla. Hún er hins vegar prýði- lega sett því menntun hennar er víð- tæk: „Ég er menntuð í umhverfis- fræði, stjórnunar- og skipulagsmál- um og mannfræði. Ég ætti því að geta gert ýmislegt annað og raunar er ég þakklát fyrir þá reynslu sem ég hef aflað mér í þessum bransa. Því er ekki að neita að maður verð- ur ansi sjóaður í þjóðmálum, stjórn- málum, mannlegum samskiptum og ýmsu öðru. Ég ber því ekki kvíð- boga fyrir framtíðinni og óttast ekki að ég finni ekki eitthvað að gera.“ Hulda á þrjú börn frá eins til tólf ára og það er nóg að gera á hverjum degi. Hún segist þó þekkja sjálfa sig og vita að það komi að því að hún fari að ókyrrast. „Ég útiloka ekki neitt og ekki heldur Stöð 2 í þeim efnum. Ég er ekki í neinu óvildar- stríði við stöðina þó ég furði mig að sjálfsögðu á að það felist mikill sparnaður í því að segja upp svo mörgum hæfum starfsmönnum sem raun ber vitni. Það hlýtur að vera verðmætatap á sama tíma og fyrirtækið virðist vera falt,“ segir Hulda. bergljot@frettabladid.is Smiðjuvegi 5, Kópavogi, sími 564 3988 Lagerhreinsun 1.-13. september Prjóna- og heklugarn, hlægilegt verð! Meðal annars Regia sokkagarn og Peluche pelsgarn. Fjölbreytt úrval. Jólaútsaumur 40% afsl. Heilsársútsaumur 40% afsl. Strammamyndir 40% afsl. Ath. takmarkað magn. Garn og gaman INNRÁSIN Á PÓLLAND Hófst þennan dag fyrir 64 árum síðan. HULDA GUNNARSDÓTTIR FRÉTTA- KONA Hún segir það ekki öðruvísi þegar fjöl- miðlafólki er sagt upp, það svíði alltaf að missa vinnuna hver sem eigi í hlut. 1. september 1939 UPPHAF SEINNI HEIMSTYRJALDARINNAR ■ Nasistar ráðast inn í Pólland þrátt fyrir ítrekuð loforð um að gera það ekki og hrinda af stað seinni heimsstyrjöldinni. Tímamót HULDA GUNNARSDÓTTIR ■ fréttamaður hefur nóg að gera heima með þrjú börn. Hún segist þó reikna með ókyrrð í beinum innan tíðar en hefur ekki áhyggjur af að hún fái ekki eitthvað að gera. Ég á nú ekkert stórafmæli ogætla ekki að hafa mikinn við- búnað. Ég á þó von á fólki hingað til mín í sumarbústaðinn á sunnudag- inn,“ segir Ragnar Halldórsson, fyrrum forstjóri Ísal, sem á 74 ára afmæli í dag. Hann segist reikna með að fjöl- skyldan og vinir komi til hans, en það er af sérstöku tilefni sem syst- ir hans og hennar fólk komi. „Þau ætla að nota þetta tækifæri og koma í kynnisferð í sumarbústað- inn, því þau hafa ekki komið áður.“ Fyrir nokkrum árum lét Ragnar af störfum og nýtur þess nú að vera í rólegheitum. „Ég er í mjög anna- sömu iðjuleysi alla daga,“ segir hann og hlær. „Ég spila bridge á veturna, er í golfi á sumrin og svo hef ég nóg að gera við að lesa og ferðast.“ Ragnar segist fylgjast vel með fjölmiðlum og tekur undir að við- skiptalífið hafi breyst mjög. „Með nýjum mönnum koma breyttar áherslur og það er ekki nema eðli- legt,“ segir Ragnar Halldórsson sem hefur það notalegt með sínu fólki í sumarbústaðnum í Gríms- nesi um helgina. ■ Afmæli RAGNAR HALLDÓRSSON ■ fyrrum forstjóri er 74 ára í dag. Hann á von á gestum til sín í sumarbústaðinn um helgina. RAGNAR HALLDÓRSSON Hann tekur undir að viðskiptalífið hafi tek- ið miklum breytingum á síðustu tíu, tutt- ugu árum. Er lengstum í annasömu iðjuleysi

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.