Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 14
 bílar o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur bí lum Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: bilar@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is. Draumabíllinn minn er Jeep GrandCherokee,“ segir Vigdís Gunnars- dóttir leikkona nokkuð hiklaust. „Ég hef mjög gaman af jeppum og átti einu sinni jeppa sjálf. Þetta var jepp- lingur reyndar, Suzuki Grand Vitara, og ég komst allt á honum en ég skipti honum fyrir hest sem ég hef reyndar aldrei séð.“ Vigdís hefur þó uppi áform um að hitta þennan hest í vetur. Skot hennar í Jeep Grand Cherokee má hins vegar rekja til ferðalags sem þær Sóley Elíasdóttir leikkona fóru einu sinni í með dætrum sínum. „Við fórum á svona bíl sem Sóley átti og með fellihýsi í útilegu. Ég fékk að keyra og þetta var einhvern veginn al- veg málið. Það var alveg ofboðslega gott að keyra hann.“ Það sem Vigdísi fannst skemmtilegast við þennan bíl var að hann hafði bæði kosti jeppans og um leið öll þægindi fólksbíls. „Til viðbótar var alls konar dúllídúll í þess- um bíl, surround hljóðkerfi og hiti í sætum til dæmis. Svo var bíllinn alltaf að gefa manni alls konar upplýsingar í mælaborðinu. Það lá við að hann segði hvað ætti að kaupa í matinn.“ Vigdís segist annars eiga fínan bíl sem henti henni ágætlega, en það sé Volkswagen Polo. „Ég hefði aldrei haft efni á að reka Cherokee en ég hef efni á að reka Pólóinn.“ Vigdís segist samt stefna að því að eignast draumabílinn. „Ég ætla alla vega að verða aftur jeppaeigandi. Ég þarf engan blöðrujeppa, en það er gott að eiga jeppa ef maður ætlar út af þjóðvegi eitt.“ Þannig að stefnan hjá Vigdísi er tekin á jeppa, en hvort það verður Cherokee eða ekki leiðir tím- inn einn í ljós. ■ Draumabíllinn: Gerir nærri því innkaupalista VIGDÍS GUNNARSDÓTTIR Stefnir að því að eignast aftur jeppa og helst Cherokee. Það er ekki laust við að maður fáitár í augun eftir langt ferðalag, þegar búið er að þrífa flugurnar af framhluta gæðingsins og grjótbarið húddið kemur í ljós. Þá er hægt að fara með bílinn á málningarverkstæði og láta mála þá hluti sem þarf, en það kostar sitt. Þeir sem ekki hafa áhuga á þessari lausn geta náð góðum árangri með því að bletta sjálfir í skellurnar. Best er að byrja á því að þrífa vel svæðið sem á að bletta, engin fita eða tjara má vera á svæðinu. Hreinsa þarf upp úr þeim skellum sem byrjaðar eru að ryðga. Gott er að fá sér þar til gerðan fræsara sem hægt er að festa framan á borvél, hann virkar þá eins og tannlæknabor sem margir þekkja. Næst skref er að setja stálgrunn í þær skemmdir sem ná ofan í járnið og bletta svo yfir með rétta litnum. Það er mikilvægt að nota herði í málning- una svo það sé öruggt að súrefni kom- ist ekki að járninu, klára svo verkið með því að bóna bílinn og taka gleði sína á ný. Vantar þig góð ráð. Spurðu Jón Heiðar á bilar@frettabladid.is. JÓN HEIÐAR ÓLAFSSON ■ kennir að gera við grjótbarið húdd. Góð ráð Að loknu sumarleyfi JEEP GRAND CHEROKEE Glæsilegur bíll sem hefur bæði kosti jeppans og fólksbílsins.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.