Fréttablaðið - 01.09.2003, Qupperneq 15
góð ráð ● uppáhaldshúsið
Þakrennur:
▲
SÍÐUR 2-3
Vanræktar meira
en nokkuð annað
▲
SÍÐA 13
Brotlegir eigendur
í fjölbýlishúsum
Hvað er til ráða?
fast/eignirMánudagur 1. september 2003Fasteignaauglýsingar í 93.000 eintökum
FASTEIGNAMIÐLUN GRAFARVOGS
auglýsir stórglæsilega eign í
Hraunbergi. 12
AUSTURBÆR er með til sölu sérhæð
á eftirsóttum stað við Sóleyjargötu
10
101 REYKJAVÍK býður fallega 104
fm íbúð ásamt 28 fm bílskýli í
miðbænum 11
Fasteignasölur
Húsbréf
Flokkur Ávöxtunarkrafa Gengi
1. feb. 4,30% 1,3129
1. jan. 4,41% 1,2859
98/2 4,31% 1,6958
98/1 4,43% 1,6620
96/2 4,47% 1,8893
Gengi 29. ágúst 2003
Hús o.fl.
ÞINGLÝSTIR KAUPSAMNINGAR
vikuna 15.-21. ágúst
Höfuðborgarsvæðið:
Fjölbýli 120
Sérbýli 22
Aðrar eignir 6
Samtals 148
Meðalverð (millj. kr. á samning) 14,3
Akureyri
Fjölbýli 6
Sérbýli 3
Samtals 10
Meðalverð (millj. kr. á samning) 13,1
gardínur ● glös sem dansa
Þar líður mér best:
▲
SÍÐUR 14-15
Fyrir framan
tölvuna
Heimili o.fl.
101 Reykjavík 11
Austurbær 10
Ás 4-5
Bakki 13
Eignakaup 17
Eignanaust 13
Fasteignamiðlun 6-7
Fasteignam. Grafarvogs 12
Framtíðin 16
Frón 8
Garður 7
Húseign 9
ÍAV 18-19
Remax 16-17
Að Vesturbergi 85 í Reykja-vík er til sölu stórglæsilegt
tveggja hæða raðhús. Aðkoma
að húsinu er mjög góð og bíla-
stæði rúm. Útsýnið er frábært
og garðurinn er fallegur. Stað-
setning er jafnframt mjög góð
hvað varðar skóla, verslun og
þjónustu. Utan á húsinu er lista-
verk eftir Þorbjörgu Höskulds-
dóttur, listamann.
Að sögn Kára Fanndal, fast-
eignasala hjá Garði, er um mjög
gott hús að ræða: „Þessi eign
hefur verið í eigu sama fólks
frá upphafi. Húsinu hefur verið
haldið vel við og byggingin sjálf
er mjög vel lukkuð. Útsýnið er
gott vestur yfir borgina og Snæ-
fellsnesið þar sem jökullinn
blasir við.“
Á efri hæð hússins er for-
stofa með flísum og góðum
skáp. Innan af forstofu er
snyrting með sturtu. Veggirnir
eru viðarklæddir. Flísar eru á
gólfi. Úr forstofu er komið í
ágætt hol og þaðan er gengið í
stofur og eldhús. Eldhúsið er
mjög rúmgott með upphaf-
legri, vandaðri sérsmíðarðri
innréttingu. Borðkrókur er
óvenju rúmur með glugga. Á
eldhúsinu og holinu er parket,
stofan með ljósu ullarteppi. Úr
stofu er gengið út á stórar vest-
ursvalir. Úr holinu er vandað-
ur, góður tréstigi niður á neðri
hæðina. Á neðri hæð eru 3 til 4
svefnherbergi, tvö með skáp-
um, eitt með fataherbergi. Þar
er líka sjónvarpshol, baðher-
bergi og þvottaherbergi.
Við húsið er góður innbyggð-
ur bílskúr með rafmagni, heitu
og köldu vatni og sjálfvirkum
opnara. Úr bílskúrnum er líka
gott útsýni.
Þetta hús er einfaldlega frá-
bær kostur fyrir fjölskyldufólk
þar sem allir í fjölskyldunni fá
eitthvað spennandi fyrir sig.
Ásett verð hjá fasteignasöl-
unni Garður er 23,8 milljónir. ■
Frábær kostur fyrir
fjölskyldufólk
VESTURBERG 85
Aðkoma að húsinu er mjög góð og bílastæði rúm.