Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 16
hús o.fl. V i k u l e g u r b l a ð a u k i F r é t t a b l a ð s i n s u m h ú s o g g a r ð a Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: hus@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is. þar sem tryggingar snúast um fólk Hringdu í síma 560 5000 og fáðu sendan bækling um fjölskylduvernd VÍS. Vátryggingafélag Íslands, Ármúla 3, 108 Reykjavík, www.vis.is Hvernig röðum við sam an tryggingunum okkar? Mars 2003 Fjölskylduver nd VÍS Fplús – víðtæka fjölskyldutryggingin tryggir bæði heimilinu og fjölskyldunni þá vernd sem þú gerir kröfu um – og veitir þér alla afslætti strax F í t o n / S Í A F I 0 0 7 3 4 5 Það fer alltaf jafn mikið í taugarnar ámér að sjá brúna slikju læðast fram úr málningunni sem hylur gluggajárn á tiltölulega nýjum gluggum. Ég bara skil ekki af hverju fólk getur ekki keypt ryðfrí gluggajárn og skrúfur og komið þannig í veg fyrir endalaust vandamál. Það er ekki miklu dýrara að kaupa ryðfrítt frekar en annað sem í boði er, einungis 62 króna munur á sömu vöru samkvæmt upplýsingum frá Byko. Viðhaldi er nefnilega hægt að halda í lágmarki með réttum ákvörðun- um í byrjun verks. Til dæmis er góð regla að hafa glæra fúavörn í fötu við hlið sér þegar verið er að sníða hina ýmsu frágangslista utan á hús og stinga báðum endum ofan í áður en þeir eru festir upp, jafnvel að láta þá standa aðeins og leyfa timbrinu að drekka í sig vörnina. Endar timburs- ins eru þeir staðir sem veikastir eru fyrir rakaskemmdum og ef þessi að- ferð er notuð er hægt að seinka við- haldi töluvert. Ég frétti af einum göml- um snikkara sem var sérvitur mjög og vandvirkur, hann ákvað að smíða glug- ga í sitt eigið hús og vandaði sig mjög. Í langan tíma hafði gamalt baðkar legið út í garði og lítið gagn gert. Sá gamli steypti niðurfallið, lyfti karinu upp á tvær hellur, setti timburafganga undir, línolíu ofan í og kveikti svo undir, setti svo alla lista og timbur sem hann hafði sniðið niður í gluggana ofan í og bók- staflega sauð allt saman í góðan tíma!!! Kallinn er löngu steindauður en sagan segir að ef kæmi til kjarnorkustyrjald- ar myndu kakkalakkar, Keith Richard og þessir gluggar vera það eina sem eftir lifði!!! ■ FRIÐRIK WEISSHAPPEL ■ mælir með að vanda vel til í upphafi verks. Keith Richard, fúavörn og fleira góð/ráð Það koma mörg hús til greina en égheld ég verði að nefna einbýlis- húsið að Bakkaflöt 1 eftir Högnu Sig- urðardóttur arkitekt,“ segir Baldur Ó Svavarsson. „Húsið er úr ómálaðri sjónsteypu sem þýðir að förin eftir steypumótin sjást. Síðan hafa jarð- vegsfláar verið dregnir upp veggina og tyrft þar. Á milli eru risastórir gluggar.“ Baldur segir húsið hafa á sínum tíma verið aðferð Högnu til þess að nálgast íslenska byggingar- hefð. „Það hefur sjaldan tekist jafnvel og í þessu húsi að flétta saman módernisma og íslenskri byggingar- list,“ segir Baldur og bætir því við að hann hafi kynnst þessu húsi ungur að árum. „Ég heyrði af þessu húsi fyrst þegar ég var krakki. Ég flutti í Garða- bæinn árið eftir að það var byggt, sem var 1963. Þetta þótti nefnilega mjög skrýtið hús og það gengu af því mikl- ar sögur. Til dæmis að það væri allt steypt í því, sófarnir og hjónarúmið svo dæmi sé tekið. Ansi margt reynd- ar sem var ekki rétt.“ Baldur fór síðan í arkitektanám og þá vildi svo til að í námsferð til Íslands var húsið margumtalaða skoðað, og reyndist það einn af há- punktum ferðarinnar. „Það reyndist rétt að steypa er notuð innanhúss en ekki í sama mæli og sögurnar sögðu. Húsið er mjög opið og vel heppnað. Heilu veggirnir eru færanlegir þan- nig að það hægt að opna alveg á milli herbergja. Þetta var náttúrulega bylting í hönnun og hugsun hér á landi.“ Baldur er nú fluttur í Garðabæinn á nýjan leik og því kominn aftur í grennd við „skrýtna húsið“. „Það má þannig segja að þetta hús hafi verið með manni allan tímann.“ ■ BALDUR Ó. SVAVARSSON Heyrði fyrst af þessu húsi þegar hann var krakki, þá þótti honum það skrýtið en nú er það í mestu uppáhaldi allra húsa á höfuðborgarsvæðinu. Uppáhaldshúsið/ Skrýtna húsið í Garðabæ FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT Vantar þig góð ráð? Spurðu Frikka á hus@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.