Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 28
 heimili o.fl. V i k u l e g u r b l a ð a u k i F r é t t a b l a ð s i n s u m h ú s o g g a r ð a Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: heimili@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is. • Baðinnréttingar • Eldhúsinnréttingar • Fataskápar Borgartúni 29 • sími: 562 5005 • www.herognu-innrettingar.is Við er um ód ýrir ! Það eru ljós efni og þunn. Efnin erulíka svolítið gróf og hörleg,“ segir Jóhanna Sigmarsdóttir, starfsmaður Gardínubúðarinnar í Mjódd, aðspurð um gardínutískuna í dag. „Rimlar og felligardínur eru líka mikið í tísku. Síðan er einn og einn sem tekur þessa gamla týpísku stórisa. En það er yfirleitt eldra fólk.“ Að sögn Jóhönnu er hvítt efni ekki í tísku. „Þetta er allt „off white“ eða „base.“ Það er líka svolítið að koma ný útsaumuð efni í búðina. Við vorum til dæmis að fá efni með útsaumuðum stjörnum. Þessi efni eru öll í einlitu.“ Jóhanna segir að þykk efni séu ekki eins mikið inn núna og ofin efni á borð við velúrinn. „Svo er mikið tekið af köflóttu og þykku efni fyrir eldhús- ið. Það er búið að vera lengi í tísku og hættir ekki.“ ■ EYVINDUR Á. EIRÍKSSON Á sumarheimili í Arnardal þar sem hann rær til fiskjar og lætur sér líða vel á sumrin. Á veturna er hann í Vesturbænum í Reykjavík. Ég er nú eiginlega af tveimur heim-um,“ segir Eyvindur P. Eiríksson, rithöfundur og íslenskufræðingur. „Ég bý annars vegar í Vesturbænum og hins vegar vestur í Arnardal, þar sem ég á sumarheimili. Þar líður mér alltaf ákaflega vel.“ Sumarheimili Eyvindar eru æsku- stöðvar hans í Skutulfirðinum, þar sem hann bjó unglingur, en bærinn fór í eyði árið 1967. „Við höfum reynt að halda bænum við, bræðurn- ir, og þarna er ég með skektu þannig að ég get sótt mér fisk í soðið og orðið eitt með náttúrunni.“ Eyvindur segist þó ekki vera nema korter að hjóla í Bónus í útjaðri Ísafjarð- arkaupstaðar, þannig að menningin er ekki langt undan. „En svo líður mér líka mjög vel í Vesturbænum. Þar er ég er með vinnu- herbergi sem snýr út að flóanum og hef útsýni yfir mest allt Snæfellsnesið, inn undir Skaga og út á opið haf,“ segir Eyvindur, sem hefur mikla þörf fyrir að vera nærri hafinu. „Ég er náttúrlega Strandamaður og alinn upp i fjörunni.“ Eyvindur kímir þegar hann er spurður hvort hann sé göldróttur. „Ég býst fast- lega við því,“ segir hann og hlær, en galdrar þó ekkert fyrir blaðamann. Eyvindur situr mikið við skriftir, hef- ur gefið út skáldsögur og ljóð og segir vinnuaðstöðuna skipta miklu máli. „Ég fæ reyndar innblástur allstaðar, en ég á bara eftir að skrifa svo mikið þar sem ég byrjaði seint á ritstörfum. Þess vegna eyði ég mestu af tímanum í vinnuher- berginu og þar líður mér langbest.“ ■ LJÓST OG ÞUNNT Ljós og þunn efni eru í tísku að sögn Jóhönnu Sigmarsdóttur. Gardínutískan í dag/ Ljós og þunn efni vinsæl Þar líður mér best/ Við tölvuna í Vesturbænum FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.