Fréttablaðið - 01.09.2003, Side 41

Fréttablaðið - 01.09.2003, Side 41
21MÁNUDAGUR 1. september 2003 Fríir kynningartímar, mán 01/09 og mið 03/09, kl. 18.00 í Faxafeni 8. A I K I D O Barna-, unglinga- og fullorðinshópar Komið og takið þátt eða fylgist með Nútímasjálfsvarnarlist fyrir alla Nánari upplýsingar í símum 822-1824 og 897-4675 http://aikido.is aikido@here.is Sjálfsvörn  Líkamsrækt Ný námskeið að hefjast! Einnig hægt að fá kynningar fyrir skóla, félagasamtök og fyrirtæki.                                                          !               "   !    !   #         $          $"       #%     &%      ""       #%          '   !  #%   "    % #% #   (  )%  )& * %        +           ,  #%    -  .   /% / 0    !   "  # '  "1  *    2$      3 456     $ 47     $ 47  8 (       96 "  %  $ % :  (   ;  < " = 56 766 6 666 7  766 6 666 =*    ;  < " >        !   $ %&     (   ?   @@@  "   A $ @@@      0      98B57967CB8    D     0      FÓTBOLTI Snurða er hlaupin í samn- ingaviðræður Chelsea og Real Madrid um kaup á franska miðvall- arleikmanninum Claude Makalele eftir að leikmaðurinn krafðist hluta af kaupverðinu. Umboðsmaður Makalele segir afar ólíklegt að af kaupunum verði nema Real borgi 15% af kaupverð- inu sem leikmaðurinn vill fá. Chelsea og Real hafa komist að samkomulagi um kaupverðið, 13,8 milljónir punda, en Makalele, sem á eftir að standast læknisskoðun, vill fá rúmar tvær milljónir í sinn hlut. „Það er ólíklegt að af kaupunum verði,“ sagði umboðsmaður Claude Makalele við spænska blaðið Marca í gær, en leikmannamarkaðurinn lokar klukkan þrjú í dag. ■ CLAUDE MAKALELE hefur reynst stjórn Real Madrid erfiður. Vandamál hjá Madrid: Makalele krefst hluta af kaupverðinu FÓTBOLTI Hið fornfræga lið Queens Park Rangers, sem leikur nú í ensku 2. deildinni, er á höttunum eftir Ívari Ingimarssyni leik- manni Úlfanna. Stjórn Q.P.R. átti í viðræðum við Úlfanna í síðustu viku en talið er að launakröfur Ívars geti reynst liðinu um megn. Ívar á að fylla skarð Clarke Carl- isle, U-21 árs l a n d s l i ð s - manns Eng- lands, sem hefur neitað að skrifa undir nýjan samning við Q.P.R. og mætti ekki á æfingu á föstudaginn var. „Framkoma Carlisle er óásætt- anleg,“ sagði Ian Holloway, knatt- spyrnustjóri Q.P.R., sem vonast til að landa íslenska landsliðsmann- inum innan skamms. ■ÍVAR INGIMARSSON Enska knattspyrnan: Fornfrægt lið á eftir Ívari GOLF Golfklúbbur Reykjavíkur varð í gær Íslandsmeistari í sveitakeppni karla annað árið í röð með 3-2 sigri á Golfklúbbi Suðurnesja í úrslitaleik. Golf- klúbbur Kópavogs og Garðabæjar lenti í þriðja sæti, vann Golfklúbb Akureyrar með 3,5 vinningi gegn 1,5. Kjölur úr Mosfellsbæ lenti í fimmta sæti eftir sigur á Keili úr Hafnarfirði. Golfklúbbur Vestmannaeyja og Golfklúbburinn Leynir féllu í 2. deild. Golfklúbbur Selfoss sigraði í 2. deild og Nesklúbburinn lenti í öðru og færast þeir upp um deild. Golfklúbbur Setbergs endaði í þriðja sæti 2. deildar. ■ Golf: GR sigraði sveitakeppnina FÓTBOLTI David Beckham ákvað að fara frá Manchester United vegna samskiptaörðugleika við knatt- spyrnustjórann Alex Ferguson. Þetta kemur fram í einum kafla væntanlegrar ævisögu Beck- hams, sem ber nafnið Frá mínum sjónarhóli og er farið að leka út til fjölmiðla. Í bókinni segir Beckham að Ferguson hafi ekki líkað hvernig maður hann var orðinn. „Ég hafði þroskast og honum virtist ekki líka hvernig hafði ræst úr mér,“ segir landsliðsfyrir- liðinn meðal annars í bók sinni. Stjörnulífstíll Bekchams, og þá sérstaklega eftir að hann tók sam- an við Victoriu, fór fyrir brjóstið á knattspyrnustjóranum sem leiddi til endalausra rifrilda. Síðasta hálmstrá Beckham var þó þegar United tapaði fyrir Real Madrid í undanúrslitum Meistara- deildar Evrópu á síðasta ári. Enska liðið tapaði fyrri leiknum 3- 1 og í seinni leiknum var staðan 3- 2 fyrir Madrid þegar Beckham kom inn á sem varamaður. Hann skoraði tvö mörk en skaut fram- hjá úr aukaspyrnu þegar skammt var til leiksloka. „Svipurinn á Ferguson var þannig að mér leið sem einhver hefði skellt hurð framan í mig,“ skrifar Beckham meðal annars. „Ég hélt að með frammistöðu minni í leiknum fengi ég aftur tækifæri í byrjunarliðinu en svo var ekki.“ Beckham segist hafa hitt Ferguson mánuði síðar til að ræða samskiptavandamál þeirra. Þá á Ferguson að hafa tjáð honum að hann væri pirraður út í leikmanninn fyrir að hitta drottn- inguna í Buckingham höll eftir heimsmeistaramótið í stað þess að gefa sér tíma til að jafna sig almennilega af fótbrotinu sem hann hlaut skömmu fyrir mótið. „Ég reyndi að útskýra fyrir honum að fjölmiðlar hefðu tætt mig í sundur ef ég hefði ekki mætt,“ skrifar Beckham, sem mátti þola harða gagnrýni frá því á heimsmeistaramótinu, fjórum árum fyrr. „Mér leið eins gagn- rýnisraddir væru farnar að lægja og varð því að mæta.“ Beckham fór frá United til Real Madrid í lok síðasta tíma- bils. Hann skoraði fyrsta mark sitt í fyrsta leiknum í spænsku deildinni á laugardag eftir níutíu sekúndna leik. ■ DAVID BECKHAM yfirgaf herbúðir Manchester United þar sem hann átti í samskiptaörðugleikum við Alex Ferguson knattspyrnustjóra. Fór út af Ferguson Fleiri kaflar úr ævisögu Beckhams eru farnir að leka út. Yfigaf United út af samskipta- vandamálum við Alex Ferguson.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.