Fréttablaðið - 01.09.2003, Qupperneq 42
22 1. september 2003 MÁNUDAGUR
■ TÓNLIST
Ídag gefur Edda Erlendsdóttirpíanóleikari út fjórðu breið-
skífu sína. Hún hefur frá árinu
1997 gefið út reglulega plötur þar
sem hver er tileinkuð einu tón-
skáldi. Þannig var Grieg fyrstur í
röðinni en á eftir fylgdu Haydn og
Thaikovski.
Á nýju plötunni tekur hún verk
Carl Philipp Emanuel Bach en
hann var annar sonur hins mikla
Johann Sebastian Bach og var
þykir einn merkasti semballeikari
allra tíma.
„Ég vel yfirleitt tónskáld sem
ég er að spila mikið þá stundina,
segir Edda. „Ef ég er að spila verk
þeirra oft á tónleikum þá enda ég
yfirleitt á því að æfa upp í heila
plötu, um klukkustundar langt
efni eða meira. Til þess að æfa
það langa dagskrá þarf maður að
vera gagntekin af tónskáldinu.“
Edda hefur tileinkað sér þá
starfshætti að læra öll verkin
utan að og leika þau inn á band án
nótna.
„Hljómborðstónlistin hans
C.P.E. Bach er ekkert mjög þekkt.
Hann er í raun faðir klassísku
sónettunar og tengiliður á milli
barrokktónlistar og klassískrar
tónlistar. Hann var djarfur í
píanóverkum sínum og fór oft
mjög nálægt rómantískri tónlist.
Ég held að hann hafi misst sig
meira í píanóverkum sínum en
hljómsveitarverkunum.“
Að mati Eddu bera fyrstu verk
Bach’s yngri þess merki að hann
sé sonur föður síns. „Smátt og
smátt þróast hann út í það að vera
alveg sjálfstæður.“
Áhugasamir neyðast víst til
þess að bíða eitthvað lengur eftir
útgáfutónleikum plötunnar því
Edda er á förum til Parísar í dag.
Þar hefur hún verið búsett í 30 ár.
Þar baðar hún sig í klassíkinni,
spilar og kennir. „Það er svolítil
togstreita á milli landanna,“ svar-
ar hún aðspurð um hvort Frakk-
land eigi nú hjarta hennar. „Ísland
er sumarheimili mitt og svo kem
ég oft yfir vetrartímann.“
biggi@frettabladid.is
Kynntu þér verðið á www.raf.is
9
5
!
"#$
%%
&'(
%
) (
*
(
%
+,
-./
!
012/.34
56
789$ :6
;7
%
+'
"
5
<
$
=#
#
$> "# )$
))
#
?
7
3 =#
@
"
A
%B
C--.
C--.
!"
#$
% &%
'
( )*
+,
-.
-
/// 0
1.
EDDA
Gefur út fjórðu klassísku píanóplötuna
sína í dag. Að þessu sinni tileinkaða
verkum C.P.E. Bach.
Gagntekin af Bach yngri
KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR
Mér finnst mjög erfitt að veljaá milli staða enda á ég mér
marga staði. Ef ég er hins vegar
að fara út að skemmta mér þá
verður Ölstofa Kormáks og
Skjaldar fyrir valinu,“ segir
Katrín Júlíusdóttir alþingiskona.
„Ég hef aldrei laðast að háværum
og stórum skemmtistöðum heldur
vil ég fara þangað sem ég get set-
ið og talað við fólk. Ölstofan upp-
fyllir þessi skilyrði.“
Staðurinnminn
Freddy Krueger og Jason Voor-hees eru ásamt Michael Myers
úr Halloween myndunum lífseig-
ustu unglingamorðingjar hryllings-
mynda síðustu tuttugu ára en allir
eiga þeir sinn myndabálk og þó
þeir hafi allir verið drepnir í lok
ótal mynda um föstudaginn þrett-
ánda, hrekkjavökur og martraðir á
Álmstræti þá koma þeir alltaf aft-
ur. Gallinn við þessar tíðu upprisur
er þó sá að myndirnar verða alltaf
þynnri, leiðinlegri og minna spenn-
andi eftir því sem óbermin rísa oft-
ar upp.
Það er því svo sem ekkert galið
að hressa aðeins upp á þetta með
því að leiða þá Freddy og Jason
saman í mynd. Það bíður upp á smá
tilbreytingu að sjá þá kauða reyna
að kála hvor öðrum á milli þess sem
þeir fara í gegnum gömlu rútínuna
að salla niður unglinga sem reykja,
hass, drekka og stunda kynlíf.
Það er ekkert nýtt á ferðinni
hérna, enda varla hægt að ætlast til
þess þar sem gamalreynd formúlan
virðist alltaf skila framleiðendum
mynda af þessu tagi nægum pen-
ingum í kassann. Hér vekur
Freddy, Jason til lífsins og fær
hann til að hrella unga fólkið til
þess að ótti þess blási Freddy sjálf-
um nýjum drápsanda í brjóst, en
hann er öllum gleymdur og því
hættulaus í upphafi myndarinnar.
Þetta lullar allt sinn vanagang fram
að hléi og ekkert útlit fyrir annað
en hefðbundna blóðslettu ládeyðu.
Þegar hagsmunaárekstrar
morðingjanna verða svo alvarlegir,
æsist leikurinn heldur betur og
viðureign þeirra er bráðskemmti-
leg. Þetta er auðvitað allt meira
fyndið en hræðilegt en það er ekki
hægt annað en að hafa gaman af
dellunni enda er Freddy alltaf
hress og reytir af sér brandarana á
meðan hann sveiflar beittum klón-
um.
Þórarinn Þórarinsson
UmfjöllunKvikmyndir
FREDDY VS. JASON
Leikstjóri: Ronny Yu
Aðalhlutverk: Robert Englund, Ken
Kirzinger, Monica Keen
Ekkert nýtt
á ferðinni
■ ■ KVIKMYNDIR
Sjá www.kvikmyndir.is
Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800
Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900
Háskólabíó, s. 530 1919
Laugarásbíó, s. 553 2075
Regnboginn, s. 551 9000
Smárabíó, s. 564 0000
Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500
Sambíóin Keflavík, , s. 421 1170
■ ■ FUNDUR
12.00 Leikhúsmessa á vegum
Reykjavíkurborgar í Borgarleikhúsinu.
Fulltrúum leik- og grunnskóla í borginni
er boðið þangað til kynninga á því
helsta sem leikhópar bjóða upp á og
hentar til sýninga fyrir börn og unglinga.
hvað?hvar?hvenær?
29 30 31 1 2 3 4
SEPTEMBER
Mánudagur
Foreldrar
Stöndum saman
Styðjum börnin okkar í að
afþakka áfengi og önnur
vímuefni