Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 1. september 2003
Heil króna í viðskiptum
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Frá og með 1. október 2003 skal heildarfjárhæð sérhverrar
kröfu eða reiknings greind og greidd með heilli krónu.
Seðlabanki Íslands minnir hér með á ákvæði reglugerðar nr. 674/2002 um
að frá og með 1. október 2003 skuli heildarfjárhæð hverrar kröfu eða
reiknings greind og greidd með heilli krónu þannig að lægri fjárhæð en
fimmtíu aurum skuli sleppt en fimmtíu aurar eða hærri fjárhæð hækkuð í
eina krónu.
Jafnframt minnir Seðlabanki Íslands á ákvæði reglugerðar nr. 673/2002,
um innköllun þriggja myntstærða, 5, 10 og 50 aura, sem auglýst var
30. september 2002. Frestur til að innleysa ofangreinda mynt hjá viðskipta-
bönkum og sparisjóðum rennur út 1. október 2003. Seðlabanki Íslands
mun þó innleysa myntina til 1. október 2004.
Nánari upplýsingar má finna á vef Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is), eða hjá
Stefáni Arnarsyni, aðalféhirði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9600.
Reykjavík, 1. september 2003.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Bolir sem rokkhljómsveitinMínus lét framleiða hafa
vakið nokkuð umtal og jafnvel
reiði strangtrúaðra hópa hér á
landi. Á bolunum má sjá mynd af
íslenska fánanum lóðréttum og
Jesú Krist krossfestan á hvíta og
rauða kross þjóðfánans.
Gunnar í Krossinum sagði í
samtali við fréttastofu Stöðvar 2
að bolirnir væru „mikill mínus“
fyrir liðsmenn sveitarinnar.
„Okkur hafa verið sendir
tölvupóstar og einhver umræða
verið um þá á netinu;“ segir
Krummi Björgvinsson, enn
heitur eftir tónleika sveitarinn-
ar í Levis búðinni í Smáralind á
föstudag. „Okkur var sagt að
við myndum brenna í helvíti og
svona. Við óttumst það nú ekki.
Ég er kaþóliki og mjög trúaður
sjálfur. Þetta er bara ádeila.
Hann hangir þarna á fánanum
með grímu. Þetta er svipuð pæl-
ing og með titli annarrar plöt-
unnar okkar, Jesus Christ
Bobby. Hvaða Jói sem er út í bæ
getur verið jafnheilagur og
Jesú.“
Bolirnir hafa verið mjög vin-
sælir og rokið út. Áætlað er að
prenta fleiri og selja í Dogma
og Nonnabúð. ■
MÍNUS
Bolurinn umtalaði er líklegast gerður til þess að ögra, eins og flest sem þessir menn gera.
Hljómsveitabolir
valda reiði
■ TÓNLIST
Félagar Nicole Kidman óttastum heilsufar hennar. Þeir
segja hana hafa misst nokkur kíló
og að hún sé aðeins „skuggi af
sjálfri sér“ í dag. Ekki var hún nú
mjög þykk fyrir. Vinir hennar ótt-
ast að vinnuálagið á henni sé um
of en hún hefur þegar tekið að sér
hlutverk í þremur myndum. Næst
sjáum við hana í mynd Lars Von
Trier, Dogville, en hún er nú við
tökur myndarinnar The Stepford
Wifes.
Tom Cruise söng Elvis-slagarameð Junichiro Koizumi, for-
sætisráðherra Japans, á heims-
sókn sinni til landsins á fimmtu-
dag. Cruise var þar til þess að
kynna væntanlega mynd sína,
The Last Samurai, og heljarinnar
veisla var haldin honum til heið-
urs. Þeir sungu lagið „I Want
You, I Need You, I Love You“ og
sagði Koizumi það hafa verið
fyrsta lagið sem hann lærði að
syngja á ensku. Cruise sagði for-
sætisráðherrann hafa góða
söngrödd.
Fréttiraf fólki
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM