Fréttablaðið - 01.09.2003, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Um andlegan
skyrbjúg
Það er verðugt viðfangsefni aðreyna að varðveita barnið í sjálf-
um sér. Ein af ótal mörgum leiðum til
þess er að fara í bíó og sjá ævintýra-
myndir frá Hollywood. Þar búa
Grimms-bræður nútímans, og eru sí-
fellt að filma upp aftur og aftur
gömlu góðu ævintýrin um átök góðs
og ills þar sem framtíð heimsins
hangir á bláþræði uns hjartahreinum
aðila tekst að sigrast á skrímsli illsk-
unnar.
KVIKMYNDIR í Hollywood eru
með örfáum undantekningum miðað-
ar við andlegar þarfir og þroska
fólks sem er á aldrinum „þrettán að
fyrsta barni“. Fólk byrjar viðskipti
sín við kvikmyndahúsin þegar það
kemst á táningsaldur og fær leyfi og
fjárráð til að fara í bíó með jafnöldr-
um sínum í stað þess að fara í fylgd
foreldra eða afa og ömmu. Bíóferðir
eru í senn afþreying og miðja félags-
lífsins uns nýr aðili kemur til sög-
unnar í lífi fólks: Fyrsta barnið. Þar
með lýkur frjálsræði og ábyrgðar-
leysi æskuáranna. Upp frá því situr
fólk heima og horfir á sjónvarp,
vídeó eða dvd.
ÞAÐ er indælt að sitja í rökkri og
gefa sig ævintýrum á vald. Bíóið er
aðferð nútímans til að koma til skila
sögunum sem sagðar voru við varð-
eld í Neanderdal í árdaga, og seinna í
íslensku baðstofunni. Bíó er baðstofa
nútímans. Hringadrottins saga er
ríma okkar tíma. Peter Jackson er
Sigurður Breiðfjörð nútímans. Í hefð-
ir og fasta liði sækjum við öryggistil-
finningu. Spiderman, Tortímandinn,
Fróði og Harry Potter eru ósigrandi
og takast hjartaprúðir á við allar
hættur; þeir gefa okkur styrk og von
og eru okkur til fyrirmyndar.
EN Á HÖRPU kvikmyndalistarinn-
ar eru fleiri strengir heldur en ævin-
týrið. Öðru hverju berast til landsins
kvikmyndir sem fjalla um mannlífið,
eins og það er nú um stundir, ekki
bara um hinar ævafornu goðsagnir.
Slíkar myndir eru tilbreyting frá hinu
andlega fóðri baðstofunnar. Svoleiðis
myndir er núna hægt að sjá í Há-
skólabíói á Breskum bíódögum, til
dæmis „Bloody Sunday“, „All or
Nothing“, „Sweet Sixteen“ og
„Magdalene Sisters“. Þetta eru nauð-
synleg fæðubótarefni svo að við fáum
ekki andlegan skyrbjúg af súrsaða
slátrinu frá Hollywood.