Fréttablaðið - 19.11.2003, Page 1

Fréttablaðið - 19.11.2003, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 26 Leikhús 26 Myndlist 26 Íþróttir 23 Sjónvarp 28 MIÐVIKUDAGUR ● spænskunámskeið fyrir börn ▲ SÍÐA 18-19 nám o.fl. 67 ára og enn í skóla Sigurður Pálsson: ANDARTAK Söngkonan Margrét Eir verður með tónleika í Borgarleikhúsinu í kvöld í tilefni af útkomu plötu sinnar Andartaks. Henni til aðstoðar verður hljómsveit og strengjasveit undir stjórn Rolands Hartwigs. Öll lögin af nýju plöt- unni verða spiluð og fleiri til. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG BJART OG FAGURT Á HORNA- FIRÐI Nú er hann farinn að kólna enda er hann að hallast í norðanátt og frysta mun um allt land síðar í vikunni. Það verð- ur slydda eða rigning norðan til í dag. 19. nóvember 2003 – 287. tölublað – 3. árgangur fimm ára afmælið eftirminnilegt Hanna María Karlsdóttir: ▲ SÍÐA 16 Biðst fyrirgefningar eftir 50 ár svaðilför erlings og kalla bjarna Stefán Jónsson: ▲ SÍÐA 30 Óku út í sjó BUSH Í LONDON Þúsundir lögreglu- manna og sérsveitarmanna gæta öryggis Bandaríkjaforseta meðan á opinberri heim- sókn hans til Lundúna stendur. Borgarstjór- inn kvartar undan því að skattfé sé illa var- ið. Sjá síðu 2 EKKI VOPNAÐA VERÐI Forsvars- menn öryggismála í bönkunum telja ekki líklegt að gripið verði til þess úrræðis að hafa mannaða öryggisgæslu í bankaúti- búum og segja að slíkt væri í senn óhemjudýrt og mikil afturför í bankastarf- semi á Íslandi. Sjá síðu 4 LÆGSTAR Á SUÐURNESJUM Niðurstöður úr samræmdum prófum í fjórða og sjöunda bekk grunnskóla hafa verið kynntar. Talið er að prófin í sjöunda bekk hafi verið of létt. Einkunnir voru lægstar á Suðurnesjum. Sjá síðu 8 LANGT SJÚKRAFLUG Hörður Guð- mundsson flugstjóri sótti fjársjúkan Íslend- ing alla leið til Skopje í Makedóníu. Þetta er eitt lengsta sjúkraflug sem flogið hefur verið. Sjá síðu 10 SPRENGJUHÓTUN Farþegar í tékk- nesku farþegaþotunni, sem snúið var til Keflavíkurflugvallar vegna sprengjuhótunar, fengu ekkert að vita af hótuninni fyrr en vélin var lent heilu og höldnu. „Okkur var tilkynnt að það þyrfti að lenda vélinni. Þau sögðu okkur ekki að það væri vegna sprengjuhótunar en okkur flaug það svo sem í hug,“ segir David Weaer, 25 ára Bandaríkjamaður, sem er á heimleið eftir mánaðar- langt bakpokaferðalag um Evr- ópu. Hann segist ekki hafa haft neinar áhyggjur þó vélinni væri snúið við, sem áhöfnin sagði gert vegna vélarbilunar. Hann segir þetta hafa verið spennandi endi á ferðalaginu og mikið ævintýri. „Nú hef ég góða ástæðu til að senda vinum og vandamönnum tölvupóst og segja þeim frá ferð- inni.“ Ungur Ísraeli, Zoar að nafni, kvaðst hins vegar hafa orðið hræddur þegar tilkynnt var um vélarbilun og sagt að lenda yrði í Keflavík. Tékknesku þotunni, með 184 manns innanborðs, var snúið til Keflavíkurflugvallar eftir að flugfélagi hennar barst sprengju- hótun. Vélin lenti á sjötta tíman- um og fór sprengjuleit fram í gærkvöldi og nótt. Farþegarnir gistu á hótelum en ákvörðun um framhald ferðarinnar verður tek- in í dag. ■ FARÞEGAR OG ÁHÖFN FARA FRÁ BORÐI 174 farþegar og tíu manna áhöfn tékkneskrar farþegaþotu gistu á íslenskum hótelum í nótt eftir að vél þeirra lenti í kjölfar sprengjuhótu- nar. Gert er ráð fyrir að ferðinni verði haldið áfram í nótt eftir að ítarleg sprengjuleit hefur farið fram. M YN D /V ÍK U R FR ÉT TI R Skipulagsstofnun: Svipt úr- skurðarvaldi ALÞINGI Skipulagsstofnun mun ekki hafa úrskurðarvald í málum sem tengjast mati á umhverfisáhrifum verði nýtt stjórnarfrumvarp að lög- um. Eins og staðan er í dag hefur Skipulagsstofnun fellt úrskurði þar sem annaðhvort er fallist á fram- kvæmd eða lagst gegn henni, með eða án skilyrða. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra segir að sam- kvæmt frumvarpinu verði ekki hægt að kæra álit Skipulagsstofnun- ar til umhverfisráðherra. Það verði hins vegar hægt að kæra fram- kvæmdarleyfið til úrskurðar skipu- lagsnefndar. Það þýði að málsskots- réttur til æðra stjórnvalds verði bundinn við leyfi til framkvæmda á sveitarstjórnarstigi. Sjá nánar bls. 6 Farþegaþota með 184 innanborðs lenti á Keflavíkurflugvelli vegna sprengjuhótunar: Fundu fyrir ótta og spennu 3.990 10 lítrar Vilja að lögreglan rannsaki barnslát Beðið er eftir ákvörðun lögreglustjórans í Reykjavík um hvort hann verði við beiðni aðstandenda barns sem lést á Landspítalanum um lögreglurannsókn. Foreldrarnir tilkynntu andlát barnsins til lögreglunnar „í kjölfar læknamistaka“. Heilbrigðisyfirvöld tilkynntu ekki um andlátið. RANNSÓKN Leitað hefur verið til lögreglunnar og hún beðin að rannsaka andlát ungabarns. Beiðnin var lögð fram 4. nóv- ember og hún er vegna andláts barns í nóvember 2002. Móðirin verðandi fór í legvatnsstungu á Landspítala. Í erindinu segir lög- maður foreldranna lækninn hafa tekið eftir að blóð hafi kom í sprautuna. Gaf það til kynna að stungið hefði verið á æð í fylgj- unni. Í kjölfarið var móðirin sett í sírita. Kvartaði hún ítrekað um að fóstrið hreyfði sig ekki. Eftir ít- rekaðar athugasemdir var læknir- inn sóttur til að skoða konuna. Í erindi lögmannsins til lögreglu segir að þá hafi verið farin að sjást alvarleg merki á síritanum. Fljótlega var tekin ákvörðun um að gera bráðakeisaraskurð og var það gert að þremur stundarfjórð- ungum liðnum. Var þá konan búin að vera í sírita með hléi í um fjór- ar klukkustundir. Þetta gerðist 8. nóvember í fyrra, en aðeins fjór- um dögum síðar lést barnið. „Í ljós kom að læknirinn sem framkvæmdi legvatnsstunguna hafði í raun stungið í gegnum blá- æð í fylgjunni og hinu ófædda barni var að blæða út í móðurkviði í þá klukkutíma sem umbjóðandi minn var látinn liggja inni í mónitorherberginu þrátt fyrir ít- rekaðar kvartanir hennar um hreyfingarleysi barnsins,“ segir í rannsóknarbeiðninni. Foreldrarn- ir kærðu starfsfólk Landspítalans til landlæknis með bréfi dags. 27. nóvember 2002. Í álitsgerð landlæknis kemur fram að í a.m.k. eina og hálfa klukkustund fyrir fæðingu með keisaraskurði hafi hjartsláttarsírit- inn gefið til kynna versnandi líðan fósturs. „Það ásamt því að vitað var um að blæðing hafði orðið inn í vatnsbelg, ásamt minnkandi hreyf- ingum fósturs hefði átt að leiða til skjótari viðbragða en raun varð á. Þá gerir landlæknir sérstaklega at- hugasemd við hversu langur tími leið frá því að ákvörðun var tekin um keisaraskurð þar til hann var gerður, eða um þrír stundarfjórð- ungar,“ segir í beiðni lögmannsins. Hann undirstrikar jafnframt að yf- irlæknir heilbrigðisstofnunar skuli bera ábyrgð á því að óvænt dauðs- fall á heilbrigðisstofnun sé tilkynnt lögreglu. Telji hjónin að svo hafi ekki verið gert og tilkynni því sjálf „andlát sonar síns í kjölfar lækna- mistaka,“ og óski eftir því að lög- regla rannsaki andlátið. jss@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.