Fréttablaðið - 19.11.2003, Side 2
2 19. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
„Sá hlýtur þá að fá bjartsýnisverð-
laun fyrir að reyna að ræna
fjársvelt heilbrigðiskerfi.“
Sveinn Guðmundsson er yfirlæknir í Blóðbankan-
um. Ekki hefur enn verið reynt að fremja rán hjá
honum þótt bankarán virðist í tísku.
Spurningdagsins
Sveinn, þú óttast ekki að það verði
brotist inn hjá þér?
Þúsundir lögreglu-
manna gæta Bush
George W. Bush Bandaríkjaforseti kom í opinbera heimsókn til Lundúna í gær.
Þúsundir breskra lögreglumanna og bandarískra sérsveitarmanna gæta öryggis
forsetans. Búist er við fjölmenni í mótmælaaðgerðum á götum borgarinnar.
LUNDÚNIR, AP Gífurlegur viðbúnað-
ur er í Lundúnum vegna heim-
sóknar George W. Bush Banda-
ríkjaforseta sem hófst í gær. Yfir
5000 lögreglumenn verða á vakt í
borginni á meðan á heimsókninni
stendur. Áætlað er að kostnaður-
inn við öryggisgæsluna nemi
rúmum 640 milljónum íslenskra
króna. Ken Livingstone, borgar-
stjóri Lundúna, sem hefur kallað
Bush „mestu ógn við líf á jörð-
inni“ hefur mótmælt því harðlega
að fé skattborgaranna skuli vera
varið í það að taka á móti forset-
anum.
Lögreglumönnunum er einkum
ætlað að hafa hemil á mótmæl-
endum og koma í veg fyrir að
hryðjuverkamenn láti til skarar
skríða. Öryggisgæsla á flugvöll-
um, lestarstöðvum og höfnum var
hert verulega auk þess sem
leyniskyttur koma sér fyrir á hús-
þökkum við þær götur sem forset-
inn fer um. Bresku lögreglumenn-
irnir njóta fulltingis hundruða
vopnaðra sérsveitarmanna frá
Bandaríkjunum. Þrátt fyrir þetta,
tókst konu á sjötugsaldri að klifra
upp á hlið Buckingham-hallar og
breiða út borða þar sem heimsókn
Bush var mótmælt.
Samtökin „Stop the War Coa-
lition“ og samtök múslima í Bret-
landi hafa fullvissað lögreglu um
að aðeins verði efnt til friðsam-
legra mótmæla. Þau hafa því
fengið leyfi til að ganga með mót-
mælaspjöld í Whitehall, fram hjá
Downing-stræti 10 og að þinghús-
inu. Áætlað er að á annað hundrað
þúsund manns taki þátt í mót-
mælaaðgerðum meðan á heim-
sókninni stendur.
Bush hefur sjálfur lýst því
yfir að hann hafi ekkert á móti
því að komu hans verði mótmælt
en Tony Blair, forsætisráðherra
Breta, hefur hvatt stuðnings-
menn Bandaríkjaforseta til að
láta einnig í sér heyra. Ný skoð-
anakönnun sem birt var í dag-
blaðinu Guardian bendir til þess
að meirihluti Breta sé sáttur við
heimsókn Bandaríkjaforseta.
43% aðspurðra sögðust vera
hlynnt komu Bush til landsins en
36% hefðu heldur kosið að hann
sæti heima.
Þetta er í fyrsta sinn í 85 ár
sem forseti Bandaríkjanna fer í
opinbera heimsókn til Bretlands í
boði þjóðhöfðingjans. Karl Breta-
prins tók á móti Bush á Heat-
hrow-flugvelli síðdegis í gær en
þaðan var flogið með hann í þyrlu
til Buckingham-hallar þar sem
forsetahjónin gista. Að sögn dag-
blaðsins Washington Post
þvertók Elísabet Englandsdrottn-
ing fyrir það að bandarískar her-
þyrlur svifu yfir höllinni á meðan
á dvölinni stæði. ■
Mikil hækkun hlutabréfa:
Miklar væntingar í verðinu
VIÐSKIPTI Hlutabréfaverð á Íslandi
gefur til kynna miklar væntingar
um vöxt og góða afkomu að mati
greiningardeildar Landsbankans.
Greining á helstu kennitölum fyrir-
tækja á aðallista Kauphallar Ís-
lands bendir til þess að hlutabréf
séu dýr á Íslandi. Úrvalsvísitalan
sló fyrri met í síðasta mánuði og
hefur ekki verið hærri frá upphafi.
Greiningardeild Landsbankans
telur stöðuna á margan hátt ólíka
því sem hún var þegar vísitalan
náðu hámarki fyrir tæplega fjór-
um árum. Mikið fjármagn sé á
lausu nú miðað við þá. Fjármagn
sem leitar tækifæra á markaði. Þá
séu væntingar um vaxtaþróun
hagstæðari fyrir hlutabréf nú en
þá. Hagstæðar efnahagshorfur og
útrásartækifæri, sem mörg hver
hafi skilað góðum árangri, auka
enn á bjartsýni fjárfesta.
Greiningardeild Landsbankans
telur því líklegt að hlutabréf geti
átt nokkra hækkun inni, enda þótt
hún verði minni en verið hefur að
undanförnu. Búast megi við því að
fjárfestar vilji sjá væntingar sín-
ar raungerast að hluta áður en
hækkanir fari verulega af stað á
ný. Gangi þær hins vegar ekki eft-
ir megi búast við að hlutabréfa-
verð gefi eftir. Hækkandi gengi
krónunnar vegna stóriðjufram-
kvæmda myndi einnig hafa nei-
kvæð áhrif vegna áhrifa á útflutn-
ings- og útrásarfyrirtæki. ■
UM BORÐ Í GULLVERI NS-12
Útgerð Gullvers keypti um það bil 400
þorskígildistonna kvóta af Brimi sem áður
tilheyrði Dvergasteini.
Dvergasteinn:
Heimamenn
keyptu
VIÐSKIPTI Seyðfirðingar hafa
keypt húseignir fiskvinnslunnar
Dvergasteins og aflaheimildir
af Brimi ehf., sjávarútvegssviði
Eimskips.
Gullberg ehf. á Seyðisfirði,
sem gerir út ísfisktogararann
Gullver NS-12, keypti 400
þorskígildistonna kvóta, þar af
eru um 624 tonn af bolfiski og 39
tonn af rækju. Adolf Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Gull-
bergs keypti húseignir Dverga-
steins. Kaupverð er ekki gefið
upp en viðskiptin mynda hvorki
söluhagnað né tap hjá Brimi.
Áformað er að koma á fót
nýrri fiskvinnslu í húsakynnum
Dvergasteins. ■
HAGNAÐUR HJÁ KÖGUN Hagnað-
ur Kögunar eftir skatta tímabilið
janúar til september 2003 var 281
milljónir króna en var 84 milljón-
ir fyrir sama tímabil í fyrra.
Þetta er hagnaðaraukning um
235%. Rekstrartekjur Kögunar
námu 818 milljónum króna á
fyrstu níu mánuðum ársins sam-
anborið við 715 milljónir í fyrra.
Stjórnarandstæðingar:
Agaleysi
stjórnvalda
ALÞINGI Minnihlutinn í fjárlaga-
nefnd Alþingis gagnrýndi meiri-
hluta nefndarinnar í umræðum um
fjáraukalög á þinginu í gær fyrir að
leggja fram frumvarp sem gerir
ráð fyrir tæplega 17 milljarða króna
aukningu á fjárheimildum ársins,
eða 6,5% af fjárlögum. Minnihlut-
inn benti á að því miður gæfi frum-
varpið enn einu sinni tilefni til at-
hugasemda, sýndi lítið aðhald í fjár-
málastjórn ríkisins og agaleysi
meðal þeirra sem tækju ákvarðanir
um útgjöld. Meirihluti fjárlaga-
nefndar hefur gert 42 breytingar-
tillögur við fjárlagafrumvarpið sem
fela í sér útgjaldahækkun upp á
rúmlega fjóra milljarða. ■
Grunnskólar:
Filippínska
algengust
SKÓLAMÁL Alls voru 458 ungmenni
við nám í grunnskólum Reykja-
víkur sem höfðu íslensku sem
annað tungumál haustið 2002.
Langflest þeirra eða 56 voru
við nám í Austurbæjarskóla en
næstflest, eða 36, voru í Fella-
skóla. Í öllum skólunum voru ein-
hverjir nemendur með íslensku
sem annað tungumál, en fæstir
eða aðeins einn var í Korpuskóla.
Flestir nemendanna voru með
filippínsku, víetnömsku eða
pólsku sem móðurmál. ■
Afkoma bankanna rædd á Alþingi:
Deilt um einkavæðingu
VIÐSKIPTI „Miklar sviptingar á fjár-
málamarkaði og eignarhald sem
hefur færst á færri hendur hefur
leitt til samþjöppunar og fákeppni
meðal bankanna. Það hefur orðið
sprenging í hagnaði og almenn-
ingi er ofboðið,“ sagði Álfheiður
Ingadóttir, varaþingmaður Vinstri
grænna, í utandagskrárumræðu
um afkomu bankanna sem fram
fór á Alþingi í gær.
Álfheiður var málshefjandi og
var Valgerður Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra til andsvara.
„Einkavæðing bankanna hefur
mistekist því hún hefur ekki skil-
að neytendum betri vöxtum eða
þjónustu og það er umhugsunar-
efni að bankar séu farnir að taka
þátt í áhættusömum atvinnu-
rekstri,“ sagði Álfheiður.
Viðskiptaráðherra sagði ekki
að undra að almenningur sypi
hveljur yfir hagnaði bankanna en
sameiginlegur hagnaður þeirra á
fyrstu níu mánuðum ársins nam
tæpum 12 milljörðum króna.
„Það verður að setja hagnaðinn
í samræmi við stærð bankanna en
eignir þeirra hafa sexfaldast á 10
árum. Hagnaðurinn sýnir að fjár-
festar hafa trú á íslenskum hluta-
bréfamarkaði og ég tel að einka-
væðingarferlið sé einhver best
heppnaða aðgerð stjórnvalda í
langan tíma. Það eru hins vegar
teikn á lofti um að útlánaskriða sé
að hefjast hjá bönkunum og í því
sambandi verða menn að fara að
öllu með gát,“ sagði viðskiptaráð-
herra. ■
DÝR HLUTABRÉF
Verð hlutabréfa er í hærri kantinum miðað við kennitölugreiningu greiningardeildar
Landsbankans. Gangi væntingar bjartsýnna fjárfesta eftir má búast við hækkunum. Bregð-
ist þær munu hlutabréf lækka.
ALÞINGI
Gagnrýnt var á Alþingi að einkavæðing
bankanna hefði ekki skilað neytendum
betri kjörum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
PRINSINN OG FORSETINN
Karl Bretaprins tók á móti George W. Bush í kvöldrökkrinu á Heathrow-flugvelli.
■ Viðskipti
■ Sjónmælingar
LÖG RÝMKUÐ Ríkisstjórnin mun
á næstunni leggja frumvarp fyrir
þingflokka sína til breytinga á
lögum um sjóntæknifræðinga.
Samkvæmt breytingunni getur
heilbrigðisráðherra heimilað
sjóntæknifræðingum að mæla
sjón, en fram að þessu hafa augn-
læknar einir mátt gera það.
M
YN
D
/A
P