Fréttablaðið - 19.11.2003, Qupperneq 4
4 19. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
Hefur þú hugleitt að fremja
bankarán?
Spurning dagsins í dag:
Stendur Saddam Hussein að baki árás-
um á bandarískar hersveitir í Írak?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
60,8%
39,2%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Evrópa
BANKARÁN „Ekki verður krafist
gæsluvarðhalds. Þeir hafa báðir
játað og allt hefur komið fram,“
segir Björgvin Björgvinsson, lög-
reglufulltrúi í Reykjavík, um
rannsókn vegna bankaránsins í
Búnaðarbankanum við Vestur-
götu á mánudag.
Björgvin segir mennina tvo,
sem eru 25 ára og 21 árs, hafa
áður komið við sögu lögreglu
vegna ýmissa brota en eigi þó
ekki langan feril að baki. Vitni
sem stödd voru fyrir utan bank-
ann þegar ránið var framið veittu
ræningjunum eftirför og gátu því
gefið lögreglu vísbendingar um lit
og gerð flóttabílsins, auk fyrstu
tveggja stafanna á númeraplöt-
unni.
Björgvin segir mennina hafa
skipt með sér verkum og hafi sá
yngri farið inn í bankann til að ná
í peningana en sá eldri hafi verið
ökumaður og eigandi flóttabílsins.
„Maður gerir sér grein fyrir að
alls staðar þar sem vopn eru ann-
ars vegar má lítið út af bera til
þess að þetta geti orðið verra en
það hefur hingað til orðið. Við
erum nýbúnir að halda fund með
bankastarfsmönnum þar sem far-
ið var yfir ýmis atriði.“ Hann seg-
ist ekki vita hvort málin séu kom-
in á það stig að vörður þurfi að
vera í hverjum banka. Ránin hafi
verið tilviljunarkennd og yfirleitt
er um að ræða unga menn í mikilli
peningaþörf, þar sem fíkniefni
eru oft á tíðum bakgrunnurinn.
Hann segir bankarán oft koma í
törnum en að nú hafi verið óvenju
langt tímabil með stöðugum rán-
um. ■
BANKARÁN Alda bankarána á síð-
ustu mánuðum hefur vakið upp
spurningar um hvort pottur sé
brotinn í öryggismálum í íslensk-
um bönkum. Sjö bankarán hafa
verið framin á Íslandi á rúmlega
hálfu ári. Fjögur
þeirra eru að
fullu upplýst og
hið síðasta í röð-
inni, sem framið
var í fyrradag í
Búnaðarbankan-
um við Vestur-
götu, virðist svo
gott sem upp-
lýst. Tvö eru
ennþá óupplýst; annað frá 14. nóv-
ember og hitt frá 18. september.
Í sex af sjö bankaránum hafa
ræningjarnir verið með eggvopn
en aldrei hefur komið til átaka
eða uppþota í tengslum við þessa
glæpi og enginn hefur hlotið áver-
ka.
„Þetta er hálf uggvænleg þró-
un og bankamenn þurfa að spyrja
sig að því hvort þetta sé komið til
að vera - og hvað við þurfum að
gera. Þetta er óþolandi ástand í
sjálfu sér eins og þetta er,“ segir
Friðrik Halldórsson, forstöðu-
maður viðskiptasviðs Kaupþings -
Búnaðarbanka.
Hann segir að starfsmenn úti-
búsins í Vesturgötu hafi brugðist
hárrétt við á mánudaginn enda
hafi starfsmenn hlotið þjálfun í
viðbrögðum við slíkum uppákom-
um. Hann segir að árás sem þessi
sé þó töluvert áfall og að mönnum
sé brugðið. Sérfræðingar hafa
veitt starfsmönnum útibúsins í
Vesturgötu áfallahjálp og nauð-
synlega aðstoð í kjölfar ránsins.
Sverrir Jónsson, yfirmaður ör-
yggismála hjá Íslandsbanka, seg-
ir að bankarnir séu vel búnir til að
takast á við rán af þessu tagi og
að mikið samstarf sé milli banka
og sparisjóða um öryggisviðbún-
að.
Forsvarsmenn öryggismála í
bönkunum telja ekki líklegt að
gripið verði til þess úrræðis að
hafa mannaða öryggisgæslu í
bankaútibúum og segja að slíkt
væri í senn óhemjudýrt og mikil
afturför í bankastarfsemi á Ís-
landi.
Öryggisstjórar bankanna segja
að ekki sé mikið upp úr bankarán-
um að hafa, sérstaklega ef tekið
sé tillit til þeirra þungu viðurlaga
sem liggja við glæpum af því tagi.
Friðrik Halldórsson veltir því þó
fyrir sér hvort tíðar árásir á
banka á Íslandi gefi tilefni til þess
að skoða betur þann möguleika að
gera Ísland að peningalausu hag-
kerfi - þannig að allar peninga-
færslur yrðu rafrænar; en notkun
greiðslukorta á Íslandi er nú þeg-
ar með því allra mesta sem gerist
í heiminum.
thkjart@frettabladid.is
ATVINNULEYSI Í FINNLANDI At-
vinnuleysi í Finnlandi mældist
8,3% í október. Á sama tíma í
fyrra voru 8,5% atvinnubærra
manna í Finnlandi án vinnu. Í
september á þessu ári var at-
vinnuleysi í Finnlandi 8,0%.
Störfum hefur fjölgað í þjónustu-
greinum en samdráttur hefur
verið í iðnaði, verslun og fjár-
málageiranum.
TÍU MEÐLIMIR ETA HANDTEKNIR
Spænska lögreglan handtók tíu
manns sem grunaðir eru um aðild
að ETA, aðskilnaðarhreyfingu
Baska. Lögreglan braust inn í
fjölda íbúða í þorpum og bæjum í
héruðunum Guipuzcoa og
Navarra í Baskalandi. Einn
mannanna er grunaður um að
hafa tekið þátt í einni af hryðju-
verkaárásum ETA.
BABIC ÁKÆRÐUR FYRIR STRÍÐS-
GLÆPI Stríðsglæpadómstóll
Sameinuðu þjóðanna hefur gefið
út ákærur á hendur Milan Babic,
fyrrum leiðtoga Serba í Króatíu.
Babic er sakaður um að hafa tek-
ið þátt í þjóðarhreinsunum í
Júgóslavíu í byrjun síðasta ára-
tugar. Hann er ákærður fyrir
stríðsglæpi og glæpi gegn mann-
kyninu og getur átt yfir höfði sér
lífstíðarfangelsi verði hann fund-
inn sekur.
Heilbrigðisráðherra:
Setur nýjan
landlækni
HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðisráð-
herra mun í dag setja nýjan land-
lækni í máli
sem upp er
komið vegna
andláts barns
skömmu eftir
fæðingu þess á
H e i l b r i g ð i s -
stofnun Suður-
nesja. Barnið
var tekið með
bráðakeisara-
skurði en lést
skömmu síðar
á Landspítala
Háskólasjúkra-
húsi. Lögmað-
ur Landlæknisembættisins hefur
úrskurðað að starfsmenn þess séu
vanhæfir til að fara með málið,
þar sem framkvæmdastjóri heil-
brigðisstofnunarinnar er eigin-
kona landlæknis. Rannsóknin
beinist að því hvort rekja megi
andlát barnsins til rangrar lækn-
ismeðferðar. ■
VIÐSKIPTI Stærstu eigendur Aco
Tæknivals hafa sameinað eign
sína í einu félagi Grjóta ehf.
Grjóti á nú ríflega 65% hlut í Aco
Tæknivali. Að félagin standa
Baugur group, Fengur, Fludir
Holding og Framtak fjárfesting-
arbanki. Innan fjögurra vikna
verður öðrum hluthöfum gert yf-
irtökutilboð.
Erfiðleikar hafa steðjað að í
rekstri Aco Tæknivals. Hópurinn
sem stendur að Grjóta kom að
rekstri félagsins eftir miklar
þrengingar. Niðurstaða níu mán-
aða uppgjörs félagsins var nei-
kvæð um 235 milljónir króna.
Skarphéðinn B. Steinarsson,
framkvæmdastjóri hjá Baugi og
stjórnarformaður Aco Tæknivals,
segir að þó vissulega megi greina
batamerki í rekstrinum þá sé
staða þess erfið. Félagið hefur
ekki verið virkt í Kauphöllinni um
skeið, síðustu viðskipti með bréf
þess voru í ágúst síðastliðnum.
„Við höfum samt fulla trú á því að
með samstilltum aðgerðum eigi
fyrirtækið framtíðina fyrir sér.“
Gengi yfirtökutilboðs er áætl-
að 0,4. Skuldir félagsins eru 1,8
milljarðar og er eigið fé neikvætt
um tæplega 570 milljónir. ■
Hagnaður hjá Impregilo:
Kárahnjúkar
stærstir
UPPGJÖR Rekstrarhagnaður ítalska
verktakafyrirtækisins Impregilo
nam 113,4 milljónum evra fyrstu
níu mánuði ársins eða ríflega tíu
milljörðum króna. Niðurstaðan
fyrir sama tímabil í fyrra var ríf-
lega 73 milljónir evra. Rekstrar-
hagnaður fyrir skatta var tæpar
50 milljónir evra eða um 4,5 millj-
arðar íslenskra króna.
Impregilo nýtur undanþágu og
greiðir ekki skatta á tímabilinu.
Stærsti samningur fyrirtækisins
á uppgjörstímabilinu er Kára-
hnjúkavirkjun en andvirði samn-
ingsins í bókum félagsins er 450
milljónir evra á tímabilinu eða um
40 milljarðar króna. ■
BÚNAÐARBANKINN VESTURGÖTU
Ekki verður farið fram á gæsluvarðhald yfir ræningjunum þar sem játning liggur fyrir og
allt hefur komið fram.
Bankaránið í Búnaðarbankanum við Vesturgötu:
Ók eigin bíl
á flóttanum
JÓN
KRISTJÁNSSON
Setur nýjan landlækni
í dag.
AFSKRÁNING
Skarphéðinn B. Steinarsson, stjórnarformaður Aco Tæknivals, segir fyrirtækið í erfiðri
stöðu þótt greina megi ljósa punkta í rekstrinum. Stefnt er að því að afskrá það úr Kaup-
höll Íslands.
Erfitt hjá Aco Tæknivali:
Félagið af markaði
ANNRÍKI HJÁ LÖGREGLUNNI
Það sem af er þessu ári hafa sjö bankarán verið framin. Þar ef eru tvö en óupplýst.
„Þetta er
óþolandi
ástand í sjálfu
sér eins og
þetta er.
Uggvænleg þróun
Framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Búnaðarbankans segir að
menn hljóti að hugsa sinn gang vegna tíðra bankarána. Engin áform
eru uppi um mannaða verði í íslenskum bönkum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M