Fréttablaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 10
10 19. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR Meðlagsgreiðslur: Dregur úr vanskilum INNHEIMTA „Þetta er heldur á upp- leið, miðað við árið í fyrra,“ sagði Hilmar Björgvinsson hjá Inn- heimtustofnunn sveitarfélaga um stöðu á greiðslum meðlaga til stofnunarinnar. „Þetta er svipað árferði og í fyrra, en mér sýnist að veltan í þjóðfélaginu sé að aukast.“ Hilmar sagði að Innheimtu- stofnun hefði innheimt um það bil tvo milljarða á ári undanfarin ár. Kröfurnar frá Tryggingastofnun ríkisins væru áætlaðar 2,5-2,6 milljörðum í ár. „Við höfum náð inn um 70 pró- sentum af meðlögum hvers árs undanfarin ár,“ sagði Hilmar. „Þá vantar upp á um það bil 600 millj- ónir á ári, sem greiddar eru úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Hann greiðir allt sem á vantar til að gera upp við Tryggingastofnun. Hún fær alltaf gert upp en sveit- arfélögin sitja uppi með ábyrgð- ina. Það sem á vantar með full skil er sótt til jöfnunarsjóðsins. Sveit- arfélögin eiga svo sínar kröfur hér og við reynum að ná fjármun- um inn eftir föngum.“ ■ SJÚKRAFLUG „Þetta gekk alveg prýðilega, eins og fótur í hosu,“ sagði Hörður, sem var flugstjóri í sjúkrafluginu. „Maðurinn er á vegum Nató þarna. Það var deild Nató í Brussel, sem hafði sam- band við okkur og bað okkur að sækja hann. Hann var mikið veik- ur þarna og var fluttur á sjúkra- hús hér í Reykjavík. Hörður sagði að með í för hefðu meðal annarra verið læknir og sjúkraflutningamaður. „Þetta var fullmönnuð áhöfn til sjúkraflutninga, sem var sett í þetta. Við fórum af stað á föstu- dagskvöld og komum heim aðfara- nótt sunnudags. Við millilentum í Vín á leiðinni út og Bremen á leiðinni heim. Í Vín töfðumst við aðeins, því það er enginn sér- stakur vinskap- ur milli Make- dóníu og Júgó- slavíu og við þurftum að bíða eftir yfirflugs- heimild. En þegar þeir vissu að þetta væri sjúkraflug á vegum Nató voru þeir ekki að tefja okkur lengur. Mer skilst að aðbúnaðurinn í Skopje hafi verið afar bágborinn, jafnvel þótt verið væri að þjóna sjúkum manni fyrir alþjóðastofn- un á borð við Nató. Mér skilst að læknarnir sjálfir hafi verið ágæt- ir, en tækjabúnaður, og aðbúnað- ur allur, var mjög dapur.“ Hörður sagði þetta langa flug, sem tók um átta klukkustundir hvora leið, ekki hafa verið neitt frábrugðið öðrum sjúkraflugum sem hann hefði farið í. „Ég lendi í sjúkraflugum alls staðar þar sem ég er,“ sagði hann. „Ég rak Erni í tæp 30 ár á ísafirði og sjúkraflug var þá eitt af aðal- verkefnum okkar. Svo var ég úti í sjö ár, hjá Atlanta í Þýskalandi og síðan hjá svissneskum fyrirtækj- um í ýmsum Afríkulöndum. Þá vann ég fyrir alþjóðleg olíufélög og þar meðal annars í sjúkraflug- um. Erni settum við síðan í gang aftur í sumar og erum búin að vera í rekstri í rúma þrjá mánuði.“ Hörður sagði að vélin sem not- uð var í sjúkraflugið, Cessna 441, væri sérlega útbúin fyrir slíka flutninga. Hún væri með stóra hurð, jafnþrýstibúnað og rafkerfi og fleira sem hæfði til sjúkra- flutninga. Hún væri jafnframt skrúfuþota með „forstjórainn- réttingu“. Verkefnin fælust að miklu leyti í því að fljúga fyrir stærri stofnanir og fyrirtæki til Evrópu, Grænlands og Færeyja svo dæmi væru nefnd. jss@frettabladid.is Akureyri: Strætó hált á svellinu SAMGÖNGUR Fyrstu strætisvagna- ferðir á Akureyri í gærmorgun féllu niður vegna fljúgandi hálku. Aðstæður voru óvenjuslæmar að sögn lögreglu, rigning og hiti við frostmark og fraus regnið jafn- harðan og það snerti jörð svo úr varð íshella. Treystu strætis- vagnastjórar sér ekki til að hefja akstur fyrr en búið væri að sand- bera göturnar. Á Akureyri er sem kunnugt er ekki borið salt á götur til að eyða hálku heldur sandur. Akstur strætisvagna á Akureyri hefst að venju klukkan sex en vegna hálkunnar hófst akstur ekki fyrr en rétt fyrir klukkan átta. ■ TVEIR Á SLYSADEILD Tveir leituðu sér aðstoðar á slysadeild eftir árekstur á Smiðjuvegi í Kópavogi á tólfta tímanum í gær. Ökumaður og far- þegi í öðrum bílnum kvörtuðu yfir meiðslum á hálsi. Báðir bíl- arnir voru fluttir á brott. FIMM BÍLA ÁREKSTUR Engin meiðsl urðu á fólki þegar STOKKHÓLMUR, AP Ákæra á hendur Mijailo Mijailovic, sem grunaður er um að hafa myrt Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, verður að líkindum ekki gefin út fyrr en í janúar á næsta ári. Mijailovic hefur verið í gæslu- varðhaldi síðan 24. september, tveimur vikum eftir að Lindh var stungin til bana í verslunarmið- stöð í Stokkhólmi. Saksóknarinn Agneta Blidberg segir að rann- sókninni muni ljúka um miðjan desember en áður en hægt verður að gefa út ákæru verður lögfræð- ingur Mijailovics, Peter Althin, að fara yfir skýrslu lögreglunnar. Næstkomandi föstudag munu saksóknarar fara fram á að gæsluvarðhald Mijailovics verði framlengt. ■ Á UPPLEIÐ Heldur hefur dregið úr vanskilum á meðlagsgreiðslum það sem af er þessu ári miðað við árið á undan. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar HÖRÐUR GUÐMUNDSSON Flugstjóri í einu lengsta sjúkraflugi sem flogið hefur verið héðan. „Ég lendi í sjúkraflugum alls staðar þar sem ég er. Flugið gekk eins og fótur í hosu Hörður Guðmundsson flugstjóri, sem rekur flugfélagið Erni, flaug um síðustu helgi eitt lengsta sjúkraflug sem flogið hefur verið. Ferðinni var heitið til Skopje í Makedóníu, þar sem sóttur var fársjúkur Íslendingur. ANNA LINDH Mijailo Mijailovic, sem grunaður er um að vera banamaður Önnu Lindh, verður að líkindum ákærður á næsta ári. Meintur morðingi Önnu Lindh: Ákærður á næsta ári ALGENGUSTU KVENMANNSNÖFN 1. Guðrún 2. Anna 3. Sigríður 4. Kristín 5. Margrét 6. Helga 7. Sigrún 8. Ingibjörg 9. Jóhann 10. María Svonaerum við fimm bílar lentu í árekstri á bíla- stæði við Kársnesskóla í Kópa- vogi í gær. Áreksturinn er rakinn til hálku. ÚTAFAKSTUR Í JÖKULDAL Tveir menn sluppu án meiðsla þegar bíll sem þeir voru í fór út af veg- inum í Jökuldal í gærmorgun. Bíllinn skemmdist lítillega en mikil hálka var á veginum þegar slysið varð. ■ Lögreglufréttir FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.