Fréttablaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 12
12 19. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR ■ LögreglufréttirÞingmenn vilja stofna háskóla á Vestfjörðum Kennsla hefjist haustið 2005 HÁSKÓLI „Rökin fyrir sérstökum háskóla á Vestfjörðum eru enn þau sömu og sett voru fram þeg- ar stofnað var til háskóla á Ak- ureyri,“ segir í greinargerð með þingsályktunartillögu Kristins H. Gunnarssonar og Magnúsar Stefánssonar, Framsóknar- flokki, og Gunnars I. Birgisson- ar, Sjálfstæðisflokki. Í tillögunni er menntamála- ráðherra hvattur til að beita sér fyrir stofnun sjálfstæðs háskóla á Ísafirði sem starfi samkvæmt lögum um háskóla. Í greinar- gerð segir að aðsókn að háskóla- námi hafi aukist svo á Vestfjörð- um á skömmum tíma að líkja megi við sprengingu. Nú stundi 130 manns á Vest- fjörðum fjarnám við að minnsta kosti fjóra háskóla, þar sem eng- inn slíkur sé í fjórðungnum. Flutningsmenn gera ráð fyrir að rektor háskólans verði ráðinn til starfa á næsta ári til undir- búnings kennslu sem hefjist haustið 2005. ■ Mikið tilfinn- ingamál fyrir Sunnlendinga Staða Kaupfélags Árnesinga er allt önnur en for- svarsmenn félagsins ætluðu sér. Unnið er að því að koma fjármálum KÁ í betri farveg og forða félag- inu frá gjaldþroti. Framkvæmdastjóri KÁ segir að þrátt fyrir slæma stöðu þá séu menn bjartsýnir. ATVINNULÍF „Saga Kaupfélags Ár- nesinga er löng og því er það gríð- arlegt tilfinningamál fyrir Sunn- lendinga að reksturinn fari ekki í þrot. KÁ var lengi aðaldriffjöður- in í blómlegu atvinnulífi á Suður- landi, til dæmis á Selfossi og í Þorlákshöfn og það virðist vera almennur vilji til þess að bjarga félaginu,“ segir Guðmundur Búa- son sem hefur gegnt stöðu fram- kvæmdastjóra KÁ frá því í sumar. Hallar undan fæti Kaupfélag Árnesinga var stofnað árið 1930 og hefur verið eitt helsta flaggskip atvinnulífs- ins á Suðurlandi. Síðustu ár hefur hins vegar verulega hallað undan fæti í rekstrinum, ekki síst vegna harðnandi samkeppni á markaðn- um, en afgerandi breyting varð á félaginu árið 1998 þegar matvæla- hluti þess var seldur til Kaupáss. KÁ er í greiðslustöðvun til 25. nóvember næstkomandi en hún verður væntanlega framlengd í þeim tilgangi að leita nauðasamn- inga og semja við kröfuhafa. Að sögn Einars Gauts Steingrímsson- ar, lögfræðings og tilsjónarmanns KÁ á greiðslustöðvunartímabil- inu, verður óskað eftir frekari greiðslufresti vegna tafa á upp- gjöri á sölu fasteigna og vegna uppgjörs á Hótel Selfoss. Kröfur á KÁ hljóða upp á um 1,9 milljarða króna, þar af eru fallnar ábyrgðir að upphæð um 500 milljónir. Félagið skuldar rúmlega 900 milljónir króna um- fram eignir sem nema um einum milljarði króna, en inni í þeirri tölu eru fasteignir sem KÁ hefur samið um að selja Kaupási, þ.e. verslunarhúsnæði á Selfossi, Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn og í Vík. Kaupfélag Árnesinga er þessi misserin að segja skilið við rekstur Hótels Selfoss en eignar- haldsfélagið Brú sem átti hótel- bygginguna varð gjaldþrota í síð- asta mánuði og vinnur skipta- stjóri að því að finna nýjan rekstr- araðila. Ekki liggur enn fyrir hverjir munu taka við hótelinu en það tók til starfa í fyrra eftir hundruð milljóna króna endur- bætur. Erfitt að sætta sig við þetta Valur Oddsteinsson, sem er stjórnarformaður KÁ og hefur setið í stjórn félagsins undanfarin ár, segir að staða kaupfélagsins sé ekki sú sem menn ætluðu sér og hann undirstrikar í því sambandi að viðskiptaumhverfið hafi breyst gífurlega. „Það hefur ýmislegt farið öðru- vísi en stjórnin hefur ákveðið, sérstaklega síðustu ár, og það hef- ur vitaskuld hvarflað að okkur að við ættum erfitt með að laga okk- ur að þeim breytingum sem orðið hafa. Nú reynum við aðallega að koma fjármálunum í lag og vinna úr þeirri stöðu sem félagið er komið í. Menn eiga óneitanlega erfitt með að sætta sig við þetta,“ BELTIN BJÖRGUÐU Tveir menn sluppu ómeiddir þegar jeppi valt neðan við Skógarkot í Miðdölum í hádeginu í gær og hafnaði ofan í skurði. Að sögn lögreglunnar í Búð- ardal leikur enginn vafi á að þarna hafi beltin bjargað lífi mannanna. BÍLVELTA OG ÚTAFAKSTUR Ökumað- ur slapp án meiðsla þegar bíll sem hann keyrði valt við það að öku- maður missti stjórn á honum á Biskupstungnabraut í gærmorgun. Annar bíll fór út af veginum rétt við Laugarvatn. Ung stúlka, sem var undir stýri, slapp ómeidd. ÁREKSTRAR Á SELFOSSI Hálkan kom illa við ökumenn á Selfossi í gær. Um miðjan dag höfðu þrír árekstrar verið tilkynntir til lög- reglu. CLINTON OG KOIZUMI Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseti, og Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, eftir fundinn í Tokyo í gær. Clinton í Japan: Vill Japana til Íraks JAPAN, AP Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseti, sem nú er á fyrirlestraferð um Asíu, sagði á blaðamannafundi í Tokyo eftir fund með Junichiro Koizumi, for- sætisráðherra Japans, að þátttaka Japana í uppbyggingarstarfinu í Írak yrði öðrum þjóðum mikil hvatning. „Það myndi draga úr tor- tryggninni og gremju í garð Bandaríkjamanna sem yrði til þess að fólk hætti að líta á upp- bygginguna sem bandaríska her- setu,“ sagði Clinton, sem einnig lýsti áhyggjum sínum vegna kjarnorkudeilunnar við Norður- Kóreumenn. ■ RÚGBÍKAPPI Á BRIMBRETTI Rúgbíkapparnir, sem komnir eru til Sydney í Ástralíu til þess að taka þátt í úrslita- keppni heimsmeistaramótsins í rúgbí, gera sér ýmislegt til dægrastyttingar eins og þessi hér á myndinni sem leikur sér á brimbretti. KAUPFÉLAG ÁRNESINGA Félagið er í greiðslustöðvun til 25. nóvember næstkomandi en hún verður væntanlega framlengd í þeim tilgangi að leita nauðasamninga og semja við kröfuhafa. Kröfur á félag- ið hljóða upp á um 1,9 milljarða króna. Staða Kaupfélags Árnesinga er allt önnur en for- svarsmenn félagsins ætluðu sér. GUÐMUNDUR BÚASON Framkvæmdastjóri KÁ, segir að saga Kaup- félags Árnesinga sé löng og það sé gríðar- legt tilfinningamál fyrir Sunnlendinga að reksturinn fari ekki í þrot. KÁ hafi lengi ver- ið aðaldriffjöðurin í blómlegu atvinnulífi á Suðurlandi og það virðist vera almennur vilji til þess að bjarga félaginu. MARGRÉT INGÞÓRSDÓTTIR, Formaður verslunarmannafélags Suður- lands, segir Sunnlendinga uggandi um stöðu Kaupfélags Árnesinga. Það sé slæmt ef kaupfélagið, sem hafi verið einn af föstu punktunum í samfélaginu hér á Suður- landi, hverfi. Þegar svona stólpar fari þá taki við mikil óvissa og það sé erfitt fyrir alla á svæðinu. MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR Þingmaður Samfylkingarinnar og fyrsti þingmaður Suðurlands, segir það gríðar- lega erfitt að svo öflugt atvinnufyrirtæki eins og KÁ hafi þróast á þennan veg. Það sé alltaf sárt þegar fyrirtæki tapi og þetta sé ekki hvað síst erfiðast fyrir alla þá sem hafa verið í nánd við kaupfélagið. Fréttaskýring BRYNDÍS HÓLM ■ skrifar um vandræði Kaupfélags Árnesinga. KRISTINN H. GUNNARSSON Fyrsti flutningsmaður tillögu um stofnun háskóla á Vestfjörðum FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.