Fréttablaðið - 19.11.2003, Side 13
13MIÐVIKUDAGUR 19. nóvember
segir stjórnarformaður KÁ. Hann
bendir á að litið hafi verið sér-
staklega til þess hvernig Eyfirð-
ingar hafi tekið á sínum málum og
hann segir að stjórn KÁ hugleiði
nú hvernig bregðast skuli við
breytingum í þjóðfélaginu.
„Sunnlendingar hafa spurt
mikið um gang mála og við verð-
um varir við að fólk vill að kaup-
félagið verði áfram til. Ég er
bjartsýnn á að það takist að forða
því frá gjaldþroti,“ segir Valur
Oddsteinsson.
Einn af föstu punktunum
Margrét Ingþórsdóttir, for-
maður verslunarmannafélags
Suðurlands, er uggandi um stöðu
Kaupfélags Árnesinga. „Það er
slæmt ef kaupfélagið er að hver-
fa, fyrirtæki sem hefur verið einn
af föstu punktunum í samfélaginu
hér á Suðurlandi. Það er mikið til-
finningamál að það leggist ekki af
en það er ljóst að það hefur veru-
lega hallað undan fæti og því hafa
menn gríðarlegar áhyggjur. Það
er sárt þegar svona stólpar fara
því þá tekur við mikil óvissa,“
segir formaður Verslunarmanna-
félags Suðurlands.
Margrét Frímannsdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar og
fyrsti þingmaður Suðurlands, seg-
ir það griðarlega erfitt að svo öfl-
ugt atvinnufyrirtæki eins og KÁ
hafi þróast á þennan veg. „Það er
alltaf sárt þegar fyrirtæki tapa og
þetta er ekki hvað síst erfiðast
fyrir alla þá sem hafa verið í nánd
við kaupfélagið.“ ■
John Allen Muhammad fundinn sekur um morð:
Saksóknarar
krefjast dauðadóms
VIRGINÍA, AP Dómstólar í Virginíu
hafa fundið hinn 42 ára gamla John
Allen Muhammad sekan um aðild
að leyniskyttumorðunum í Was-
hington og nágrenni í október á síð-
asta ári. Kviðdómur mun á næstu
dögum skera úr um það hvort hann
skuli hljóta dauðadóm eða lífstíðar-
fangelsi.
Það tók kviðdómendur sex og
hálfa klukkustund að komast að
niðurstöðu. Muhammad var dæmd-
ur fyrir morðið á Dean Harold
Meyers sem var skotinn til bana
fyrir utan bensínstöð í Manassas.
Hann var jafnframt fundinn sekur
um að hafa tekið þátt í fimmtán öðr-
um skotárásum sem kostuðu níu
manns lífið. Á grundvelli nýrra
laga um hryðjuverk var
Muhammad dæmdur fyrir að hafa
haldið samfélaginu í heljargreip-
um með því að valda ótta og skelf-
ingu.
Réttarhöld standa enn yfir hin-
um átján ára gamla Lee Boyd Mal-
vo, meintum vitorðsmanni
Muhammads. Malvo getur einnig
átt yfir höfði sér dauðarefsingu en
verjendur hans halda því fram að
hann sé ekki ábyrgur fyrir gjörð-
um sínum þar sem hann hafi verið
heilaþveginn af Muhammad. ■
Stjórnarformaður A.P. Möller:
Hættir eftir
40 ára feril
KAUPMANNAHÖFN, AP Mærsk Mc-
Kinney Möller lætur af stjórnarfor-
mennsku í danska flutningafyrir-
tækinu A.P. Möller-Mærsk A/S um
miðjan desember.
Mc-Kinney Möller, sem varð ní-
ræður á þessu ári, er á lista við-
skiptatímaritsins Forbes yfir rík-
ustu menn heims. Árið 1965 tók
hann við rekstri tveggja skipa-
félaga sem faðir hans, Arnold Peter
Möller, stofnaði og byggði upp
flutningafyrirtæki sem nú starfar í
100 löndum og hefur 60.000 manns á
launaskrá. Mc-Kinney Möller var
forstjóri fyrirtækisins fram til árs-
ins 1993. ■
SEKUR
John Allen Muhammad sýndi engin svip-
brigði þegar dómurinn var kveðinn upp.
Nokkrir kviðdómendur og aðstandendur
fórnarlambanna felldu tár.