Fréttablaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 16
■ Afmæli
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona, 68
ára.
Anna Geirsdóttir læknir er 52 ára.
Ágúst Borgþór Sverrisson rithöfundur,
38 ára.
Finnborgi
Pétursson
myndlistar-
maður, 44 ára.
■ Andlát
Helga Sigfúsdóttir lést sunnudaginn
16. nóvember.
Skafti Pétursson lést sunnudaginn 16.
nóvember.
Brynhildur Kristinsdóttir, Víðilundi 24,
Akureyri, lést sunnudaginn 16. nóvem-
ber.
Jórunn (Lóa) Melax, Æsufelli 4, Reykja-
vík, lést þriðjudaginn 4. nóvember. Út-
förin fór fram í kyrrþey.
Reynir Vilhelmsson, Skarðshlíð 11c, Ak-
ureyri, lést sunnudaginn 16. nóvember.
Tryggvi Halldórsson, frá Bæjum,
Snorrabraut 56, lést sunnudaginn 16.
nóvember.
Magnús Guðmundsson, bóndi í Túni,
Borgarhreppi, lést miðvikudaginn 5.
nóvember. Útförin fór fram í kyrrþey.
Friðrik Pétursson, Forsölum 1, Kópa-
vogi, lést mánudaginn 17. nóvember.
■ Jarðarfarir
15.00 Kolbrún Einarsdóttir, Kópavogs-
braut 1b, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
16 19. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Nýjar plötur
Brasilíska knattspyrnugoðiðPele skoraði þúsundasta mark
sitt á ferlinum þennan dag árið
1969.
Pele, sem heitir í raun Edson
Arantes do Nascimento, er einn
besti knattspyrnumaður fyrr og
síðar. Hann hóf ungur að leika
knattspyrnu og gekk til liðs við
Santos í heimalandi sínu þegar
hann var 16 ára. Hann leiddi liðið
margoft til sigurs í brasilísku
deildarkeppninni. Hann sló hvert
markametið af fætur öðru og
skoraði í allt 1281 mark á ferlin-
um, þar af eitt mark að meðaltali í
leik með brasilíska landsliðinu.
Blómaskeið Pele var á sjötta og
sjöunda áratugnum. Hann vann
heimsmeistaratitilinn í þrígang,
árin 1958, 1962 og 1970. Hann gat
þó ekki leikið úrslitaleikinn árið
1962 þar sem hann meiddist um
mitt mót.
Pele hætti að leika með lands-
liðinu árið 1971 en hélt áfram að
leika með Santos. Árið 1975 gerði
hann sjö milljón dollara samning
við New York Cosmos og lék þar
um tveggja ára skeið áður en hann
lagði skóna á hilluna.
Árið 1995 var Pele gerður að
íþróttamálaráðherra Brasilíu og
starfar nú fyrir Alþjóða knatt-
spyrnusambandið, FIFA. ■
Ég er alveg ótrúlega lítil afmæl-ismanneskja. Mér finnst ekk-
ert merkilegt að eiga afmæli,“
segir Hanna María Karlsdóttir
leikkona, sem er 55 ára í dag.
Afmælisbarnið er ekki búið að
ákveða hvað það gerir í tilefni
dagsins. Ætlar í vinnu og eldar
kannski skárri mat en venjulega.
„Það gæti jafnvel farið svo að ég
fari með köku upp í leikhús,“ seg-
ir það.
Hanna María heldur yfirleitt
ekki upp á afmælið sitt en gerir
undantekningu á tíu ára fresti. Þá
gerist hún voða grand, eins og hún
orðar það, býður í stóra og flotta
veislu.
„Þegar ég varð fimmtug leigði
ég sal og réð Rússibanana til að
leika fyrir dansi,“ segir Hanna
María. „Þá bannaði ég allar ræður
og afmælisgjafir. Þeir sem áttu
pening máttu hins vegar borga
þúsund kall inn sem rann í að
borga Rússibönunum. Þeir kost-
uðu nefnilega hundrað þúsund
kall.“
Móðir Hönnu Maríu sá um
veislurnar þegar hún var barn.
Hanna María segist eiga eitt afar
eftirminnilegt afmæli frá þeim
árum: „Það var stelpa sem kom í
afmælið mitt og ég rak hana heim
af því að hún kom ekki með
pakka,“ segir leikkonan og minnir
að hún hafi verið fimm ára þegar
þessi atburður átti sér stað.
„Mig minnir að foreldrar henn-
ar hafi verið fátækir. Ég sé alveg
rosalega eftir þessu því það er
ljótt að gera svona. Ef hún les
þetta bið ég hana fyrirgefningar.
Hún man örugglega eftir þessu
eins og ég,“ segir Hanna María
Karlsdóttir afmælisbarn. ■
LARRY KING
Spjallþáttakóngurinn Larry King er
sjötugur í dag.
19. nóvember
■ Þetta gerðist
1703 Maðurinn með járngrímuna deyr
í Bastillunni í París. Mikil leynd
hvíldi yfir því hver maðurinn bak
við grímuna væri og varð það
uppsprettan að bókmenntaverk-
um Francois Voltaire og Alex-
andre Dumas.
1893 Fyrsta litablaðsíðan í dagblaði
kom út í sunnudagsútgáfu New
York World.
1942 Rússar hófu vetrargagnsókn
gegn Þjóðverjum í seinni heims-
styrjöldinni.
1969 Geimfararnir Charles Conrad og
Alan Bean lentu á tunglinu á
geimflauginni Apollo 12.
1977 Anwar Sadat, forseti Egypta-
lands, varð fyrsti Arabaleiðtoginn
til að heimsækja Ísrael.
1985 Ronald Reagan og Mikhail Gorb-
atsjev hittust í fyrsta sinn í borg-
inni Genúa á Ítalíu.
PELE
Heitir réttu nafni Edson Arantes do Nasci-
mento. Hann skoraði 1281 mark á ferli
sínum.
Þúsundasta mark Pele
TÍMAMÓT Í FÓTBOLTA
■ Þennan dag skorar Pele þúsundasta
mark sitt á ferlinum.
19. nóvember
1969
Biðst fyrirgefningar eftir 50 ár
HANNA MARÍA KARLSDÓTTIR
Biður gamla vinkonu afsökunar á því að hafa rekið hana út úr afmæli sínu þegar hún var fimm ára.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
Afmæli
HANNA MARÍA KARLSDÓTTIR
■ Leikkonan er 55 ára í dag. Hún held-
ur yfirleitt ekki upp á afmælið sitt. Rak
stelpu út úr afmæli sínu fyrir fimmtíu
árum þar sem hún kom ekki með gjöf.
Út er komin ný plata frá Karla-kórnum Heimi. Sú heitir
Áfram veginn og er safnplata vin-
sælustu laga kórsins. Heimir var
stofnaður í Skagafirði 1927 og
hefur starfað samfellt í 75 ár og
er diskurinn gefinn út vegna
þeirra tímamóta. Þetta er sjöundi
diskurinn sem kórinn sendir frá
sér og hafa nokkur laganna verið
gefin út áður. Einnig var gerð
kvikmynd um kórinn í tilefni 75
ára afmælisins, sem heitir „Söng-
ur í 75 ár“. Karlakórinn gefur
sjálfur út, en plötunni er dreift af
Sonet.
Ómar Guðjónsson djassgítar-leikari sendi frá sér sína
fyrstu breiðskífu, Varma land, á
dögunum. Á plötunni er að finna
13 frumsamin lög. Bróðir hans,
Óskar Guðjónsson, sér um tenór-
saxófónleik, Þórður Högnason um
kontrabassaleik en Helgi Svavar
Helgason um trommuleik. Platan
er gefin út af 1001 nótt.
Hefur þú tjáningarfrelsi?
Er faglegu sjálfstæði þínu ógnað?
Bandalag háskólamanna og Læknafélag Íslands bjóða til málþings um tjáningar-
frelsi og faglegt sjálfstæði háskólamanna klukkan 13:30 í dag á Grand Hótel
Reykjavík.
Dagskrá:
13:30 Málþing sett
Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélags Íslands
13:45 Erindi
Einar Páll Tamimi, lektor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík
14:15 Erindi
Jón Ásgeir Sigurðsson, formaður starfsmannasamtaka Ríkisútvarpsins
14:30 Erindi
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
14:45 Erindi
Sigurður Guðmundsson, landlæknir og varaformaður Félags forstöðumanna
15:00 Kaffihlé
15:30 Pallborðsumræður
Þátttakendur: Bryndís Hlöðversdóttir, alþingismaður, Hafdís Ólafsdóttir, forstöðumaður nefndasviðs Alþingis,
Gísli Tryggvason, hdl. og framkvæmdastjóri Bandalags háskólamanna. Ína Björg Hjálmarsdóttir, formaður Félags
íslenskra náttúrufræðinga. Magnús Jónsson, veðurstofustjóri
Pallborðsumræðum stjórnar Kristrún Heimisdóttir, lögfræðingur
16:45 Málþingi slitið - Halldóra Friðjónsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna
Málþingið er öllum opið
BHM og Læknafélag Íslands hvetja alla
félagsmenn sína og aðra áhugasama að koma
til málþings og taka virkan þátt í umræðunni.