Fréttablaðið - 19.11.2003, Side 17

Fréttablaðið - 19.11.2003, Side 17
17MIÐVIKUDAGUR 19. nóvember 2003 ■ Bækur Á mánudag hóf Seðlabankinndreifingu á nýjum fimm þús- und króna seðlum. Seðlarnir eru í grundvallaratriðum eins og hinir eldri en með nokkrum endurbótum til að gera fölsun erfiðari. Kristín Þorkelsdóttir og Steph- en A. Fairbairn teiknuðu eldri fimm þúsund króna seðilinn, líkt og aðra seðla frá myntbreytingu. Kristín vann einnig að endurnýjun fimm þúsund króna seðilsins nú. „Þetta er ákaflega krefjandi starf. Það þarf að setja önnur for- merki á peningahönnum en önn- ur verk,“ segir Kristín, en auk hönnunarinnar þarf listamaður- inn að setja sig inn í mjög flókna tækni svo hægt sé að prenta seð- ilinn og gera fölsurum erfiðara um vik. „Við sköpum útlit seðlanna, sem við nýtum til að vitna í for- tíðina og sögu okkar. Serían er þannig að hver seðill er með sitt þema. Fimm þúsund króna seðillinn er til að mynda helgaður nytja- list,“ segir Kristín. Venjan hefur verið sú að gera ekki seðla með núlifandi Íslend- ingum. Aðspurð hvort Björk okk- ar Guðmundsdóttir gæti samt orðið næsta viðfangsefni sagði Kristín: „Ég hef ekki enn verið beðin um að gera næsta seðil. En ég væri samt spennt fyrir því að tíuþúsundkallinn yrði helgaður tónlistinni.“ ■ Peningar KRISTÍN ÞORKELSDÓTTIR ■ Hún er hönnuður peningaseðla á Ís- landi og var að laga nýjan fimm þúsund króna seðil. Mest notuðu listaverk á Íslandi JODIE FOSTER Óskarsverðlaunaleikkonan Jodie Foster, sem sló fyrst í gegn sem ung stúlka í Bugsy Malone árið 1976, á stórafmæli í dag. Verður 40 ára gömul. JÓLABLA-DI-D 2003 97.000 EINTÖK ME–D FRÉTTABLA–DINU Út er kominbókin Draum- urinn um Ísland - Á ferð með Magn- úsi Magnússyni eftir Sally Magn- usson. Þessi óvenjulega bók er í senn ferðasaga og minningaþætt- ir, þar sem Sally Magnusson lýsir ferðalagi sínu og föður síns, Magn- úsar Magnússonar sjónvarps- manns, á slóðir forfeðra hans á Norðurlandi. Hún bregður upp lif- andi mynd af Magnúsi, sem fræða- þul og sagnamanni, og geymir margar spaugilegar lýsingar á eftir- minnilegri Íslandsferð, þar sem fað- ir reynir að skýra töfra Íslands fyr- ir dóttur sem aldrei hefur haft fasta búsetu hér á landi. Sally Magnusson er þekkt fjölmiðlakona í Bretlandi og hefur sent frá sér nokkrar bæk- ur. Árni Sigurjónsson íslenskaði. Mál og menning gefur bókina út. ■ KRISTÍN ÞORKELSDÓTTIR OG FIMMÞÚSUNDKALLINN Sjö mismunandi fjárhæðir seðla eru í gangi nú, samkvæmt Seðlabanka Íslands, og hafa Kristín og Stephen teiknað þá alla. Hundrað krónu seðlar eða lægri hafa ekki verið prentaðir um nokkurt skeið og því nánast komnir úr umferð. ??? Hver? Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, formaður Útvarpsráðs og framkvæmdastjóri Urðar Verð- andi Skuldar. ??? Hvar? Ég er staddur á skrifstofu minni á Snorrabraut. ??? Hvaðan? Ég er Reykvíkingur en bý í Garðabæ og á upp- runa minn í báðar ættir norður í Húnavatns- sýslu. ??? Hvað? Málið snýst um það að fréttatengdu efni í Út- varpi og Sjónvarpi sé fréttastýrt eins og öllum öðrum fréttum. ??? Hvernig? Tillaga okkar gengur nákvæmlega út á að ein- hver beri ábyrgð á öllu fréttatengdu efni sem sent er út í Sjónvarpi og Útvarpi. Ef tillagan verður samþykkt á næsta fundi Útvarpsráðs gerum við ráð fyrir að útvarpsstjóri og frétt- astjóri leggi tillögu fyrir Útvarpsráð um hvernig þessu verði framfylgt. ??? Hvers vegna? Þannig er það í öllum öðrum fjölmiðlum, sennilega í veröldinni, nema á Ríkisútvarpi- Sjónvarpi. Ég býst við að þannig sé það á Fréttablaðinu og svo sé meðal annars um þetta samtal okkar. ??? Hvenær? Sem allra fyrst. ■ Persónan GUNNLAUGUR SÆVAR GUNNLAUGSSON Hann hefur lagt fram tillögu í Útvarpsráði um að öllu fréttatengdu efni verði frétta- stýrt eins og á öðrum fjölmiðlum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.