Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.11.2003, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 19.11.2003, Qupperneq 25
FÓTBOLTI „Fyrri leikurinn var mjög erfiður,“ sagði Iker Casillas, markvörður Spánverja. „En ég hef trú á liðinu okkar og viss um að Spánverjar keppa í lokakeppninni í Portúgal. Norð- menn eru með gott lið og við gáf- um þeim of mörg færi í fyrri leiknum. Það má ekki gegn jafn góðum leikmönnum því verður okkur refsað eins og kom á dag- inn. Við höfum miklar áhyggjur af styrkleika þeirra í loftinu og verðum að vera á varðbergi á miðvikudag.“ Casillas er viss um sigur Spán- verja. „Spánverjar eiga góða leikmenn eins og Raúl sem geta unnið leiki upp á eigin spýtur. En við erum lið og verðum að leika eins og lið til þess að ná réttum úrslitum.“ Casillas hefur ekki að- eins trú á að Spánverjar komist í úrslit. „Ef ég ætti að veðja myndi ég veðja á að Spánverjar sigri í úrslitaleiknum.“ Norðmenn höfðu vonast eftir hjálp frá veðurguðunum. „Stjörnusafn Spánverja lenti á Gardermoen í gær og þegar þeir vöknuðu í morgun var kuldi og snjókoma en það er það sem þeir vilja síst í leiknum í Ósló,“ sagði í dagblaðinu Verdens Gang. Það er hins vegar útlit fyrir að hitinn verði átta til níu gráður í kvöld og er það frekar milt í Ósló á þessum árstíma. Spánverjinn Carlos Marchena og Norðmaðurinn Henning Berg taka út leikbann í kvöld en Ronny Johnsen er tæpur vegna meiðsla. Nils Johan Semb hefur kallað á Magne Hoset, leikmann Molde, og Vidar Riseth, frá Rosenborg, inn í hópinn. Starf Semb er í húfi í kvöld en hann hefur sagt að hann sé hættur með landsliðið komist Norðmenn ekki áfram. ■ 25MIÐVIKUDAGUR 19. nóvember 2003 Evrópumeistarakeppnin 2004: Spánverjar sigra í úrslitaleiknum FÓTBOLTI Lettar keppa að því í kvöld að tryggja sér sæti í lokakeppni á stórmóti í fyrsta sinn. Þeir leika við Tyrki í Istanbúl í kvöld og hafa eins marks forystu eftir fyrri leik- inn á laugardag. Maris Verpa- kovskis, sem skoraði mark Letta í fyrri leiknum, leikur ekki í kvöld. Hann tekur út leikbann eins og Tyrkirnir Rustu Recber, Fatih Akyel og Emre Asik sem taka út leikbann í kvöld. Emre var rekinn af velli en hinir fengu annað gula spjald sitt í keppninni. Senol Gunes, þjálfari Tyrkja, er sigurviss. „Við höfum ekki tapað neinu. Við höfum sýnt að við get- um unnið þetta lið og við höfum engu að tapa. Ef við leikum af eðli- legri getu komumst við í loka- keppnina.“ Slóvenía og Króatía leika í Lju- bljana í kvöld. Þjóðirnar gerðu 1-1 jafntefli í Zagreb á laugardag og nægir Slóvenum því markalaust jafntefli til að komast í lokakeppni þriðja stórmótið í röð. Otto Baric, landsliðsþjálfari Króata, er hins vegar sigurviss. „Við getum skor- að tvisvar í Ljubljana og tryggt okkur sæti í lokakeppninni,“ sagði Baric. „Þrátt fyrir ósannfærandi frammistöðu í leiknum í Zagreb hefðum við átt að vinna 2-1.“ ■ TYRKLAND - LETTLAND Lettarnir Adrejs Rubins og Valentins Slobanovsof og Tyrkinn Okan Buruk berjast um bolt- ann í fyrri leik þjóðanna á laugardag. Evrópumeistarakeppnin 2004: Lettar í sögu- bækurnar? NOREGUR - SPÁNN Norðmenn treysta á veðurguðina. Það snjóaði í Ósló í gær en útlit er fyrir að hitinn verði átta til níu gráður í kvöld.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.