Fréttablaðið - 19.11.2003, Side 26
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Tíbrá: Ljóðatónleikar í Saln-
um. Systurnar Signý Sæmundsdóttir og
Þóra Fríða Sæmundsdóttir flytja þýskar,
franskar og finnskar söngperlur. Á efnis-
skrá eru sönglög eftir tónskáld róman-
tíska tímabilsins, Franz Liszt, Maurice
Ravel, Pauline Viardot og finnsku tón-
skáldin Oskar Merikanto og Yrjö
Kilpinen, ásamt austurríska tónskáldinu
Hugo Wolf.
20.00 Páll Óskar Hjálmtýsson og
Monika Abendroth verða með tónleika
í Akureyrarkirkju í tilefni af útkomu
jólaplötunnar Ljósin heima ásamt
Diddú, strengjakvartett og
Hljómeykikórnum.
22.00 Sérvitri roots-rokkarinn
James Apollo spilar á Grand rokk.
James Apollo heimsækir Ísland í fyrsta
skipti núna í vikunni. Mike Pollock mun
spila á undan Apollo, en hann var einn-
ig að gefa út plötuna World Citizen og
er nýlentur úr tónleika- og útgáfuför um
miðríki Bandaríkjanna. Miðaverð er 500
krónur.
22.00 Heiða og heiðingjarnir
verða með tónleika á 22 í tónleikaröð-
inni Ofanjarðar. Hljómsveitirnar Ríkið og
Æla hita upp. Heiða og heiðingjarnir
eru að kynna nýja plötu sem ber nafnið
Tíu fingur upp til Guðs. Aðgangur er
ókeypis.
22.00 Útgáfutónleikar Margrétar
Eirar verða á Litla sviðinu í Borgarleik-
húsinu. Auk hljómsveitar Margrétar
Eirar á strengjakvartett þátt í að skapa
eftirminnilega stemningu.
Í tilefni af 20 ára afmæli Gauksins er
boðið til brjálaðs balls með Gauksgoð-
sögninni Loðinni rottu á Gauki á Stöng.
■ ■ SKEMMTANIR
20.00 Uppistandarinn 2003 á
NASA. Vegna fjölda áskorana og allra
þeirra sem frá þurftu að hverfa á uppi-
standarakvöldunum. Þeir sem koma
fram eru uppistandarar úrslitakvöldsins:
Steinn Ármann, Sveinn Waage, Guð-
mundur Atla, Böðvar Bergs og Haukur
Sig ásamt Töframanninum Bjarna. At-
hugið, aðeins þetta eina kvöld. Miða-
verð aðeins 1.000 kr.
21.00 Uppistandskvöld á Kringlu-
kránni. Leikarinn og skemmtikrafturinn
Davíð Þór Jónsson lætur gamminn
geisa. Með honum koma fram Fíllinn,
fyndnasti maður Íslands 2002 og fyndn-
asti maður Norðurlands.
19. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGURhvað?hvar?hvenær?
16 17 18 19 20 21 22
NÓVEMBER
Miðvikudagur
Söngkonan Margrét Eir hefurfyrir löngu sungið sig inn í hugi
og hjörtu þjóðarinnar. Hún hefur
nýverið sent frá sér plötuna And-
artak og af því tilefni verður hún
með tónleika í Borgarleikhúsinu í
kvöld: „Ég vil að fólk finni fyrir
því að þetta er lifandi tónlistar-
flutningur,“ segir Margrét Eir.
„Með mér í för verður hljómsveit
skipuð frábærum listamönnum og
snilldar strengjasveit undir stjórn
Rolands Hartwigs. Við flytjum öll
lögin á nýju plötunni og jafnvel
fleiri til.“
Fyrri plata Margrétar Eirar,
Meir, innihélt lágstemmdan tónlist-
arflutning á gömlum og góðum lög-
um í nýjum búningi: „Núna fékk ég
Þorvald Bjarna, Magnús Þór, Kalla
Olgeirs og fleiri góða lagahöfunda
til liðs við mig þannig að stærsti
hluti plötunnar inniheldur ný lög.
Þessi plata reynir mun meira á mig
sem söngkonu því öll lögin liggja
mjög hátt. Ég er með þokkalega
breitt raddsvið en er búin að vera
stanslaust heima með nótnastatífið
fyrir framan mig og æfa svo ekk-
ert klikki,“ segir Margrét Eir.
En hver er martröð söngkon-
unnar? „Auðvitað er maður alltaf
hræddur við að allt fari úrskeiðis á
síðasta sprettinum og að kvef eða
aðrir kvillar segi til sín. En ég hef
engar áhyggjur því nú reyni ég að
líta svo á að dagurinn í dag er bara
eins og hann er,“ segir Margrét,
sem hlakkar til tónleikanna í
kvöld. „Það eru forréttindi að
vinna með svona frábæru fólki.
Við erum vel undirbúin og ég get
lofað því að fólk gengur út með
skemmtilega minningu.“
thora@frettabladid.is
■ TÓNLEIKAR
Lifandi Andartak
RICHARD SCOBIE
Er þegar ég er einn uppi á tindi,“segir söngvarinn Richard
Scobie en hann syngur ásamt Loð-
inni rottu á Gauknum í kvöld.
„Það er mjög frískandi. Maður
hefur það þá á tilfinningunni að
maður sé einn í heiminum og get-
ur hreinsað allt út úr huganum og
sálinni.“
Stundinmín
Úrval höfuðljósa
frá
Lát ljós
þitt skína
MARGRÉT EIR
Verður með lif-
andi útgáfutón-
leika í Borgarleik-
húsinu í kvöld.