Fréttablaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 19.11.2003, Blaðsíða 29
Búið er að fresta tökum á myndástralska leikstjórans Baz Luhrman um Alexander mikla. Ástæðan er sú að ekki náðist að fá japanska fjárfesta til þess að taka þátt. Þetta eru mikil von- brigði fyrir Leonardo DiCaprio, sem hefur tekið að sér að leika aðalhlutverkið í myndinni. Talið er að ef tökum verði frestað muni Leonardo taka að sér að leika í mynd- inni The Good Shepherd á móti Robert De Niro. Þessi seinkun kemur sér sérstaklega illa í ljósi þess að tökum á mynd Olivers Stones um Alexander er lokið. Kvikmyndaleikarinn JackNicholson gerðist kræfur í 50 ára afmælisblaði Playboy og skrifaði grein um ofsahræðslu við HIV og alnæmi á níunda áratuginum. Hann líkti hræðslunni við óttann við atóm- sprengjuna og sagði að þetta hefði haft mikil áhrif á skemmt- analífið. Sjálfur segist hann þó ekki hafa látið þetta stöðva sig í því að njóta kynlífs. Hann segir að flestir þeir sem hafi kynnt sér málið almennilega hafi vitað að það væri frekar ólíklegt að fá vírusinn nema að maður væri sprautufíkill eða stundaði enda- þarmsmök. Hann segir að í raun- inni hafi það verið jafn líklegt að fá vírusinn eins og að detta á höf- uðið á gangi á gangstétt. Verkakonan og dansarinn semmyndin Flashdance fjallaði óbeint um á sínum tíma hefur kært Jennifer Lopez. Þetta gerir hún vegna þess að þar sem það var þekkt staðreynd að myndin væri byggð að hluta til á hennar lífi hljóti myndbandið við lagið I’m Glad að vera það líka þar sem það er nákvæm eftirlíking á at- riðum í mynd- inni. Henni finnst því ekki sann- gjarnt að sjá atburði úr sínu lífi stöðugt á skjánum vit- andi að hún er ekkert að hagnast á því. Skurðlæknar í Malasíu urðufurðu lostnir á dögunum er þeir fundu matprjón í andliti sjúk- lings. Sjúklingurinn hafði komið á sjúkrahúsið vegna sýkingar í auga. Við skurðaðgerð tóku lækn- ar eftir því að hluti úr matprjóni var fastur á milli augna hans. Að sögn Dr. Gurdeep Singh Man var maðurinn, Ng Keng Chool, afar heppinn að vera lifandi því prjón- inn hafði nuddast lengi við heila hans. „Ef prjónnin hefði farið hálfum sentimetra dýpra hefði hann getað dáið.“ Ástæða þess að prjónninn var fastur á milli augna Chool er sú að hann hafði orðið fyrir árás fimm árum áður. Einhver árásarmann- anna hafði þá stungið hann með matprjóni eftir að hafa hulið and- lit hans með strigapoka. Chool sá þó ekki ástæðu til að fara til lækn- is fyrr en hann var hættur að geta hreyft hægra augað. „Ég hafði ekki hugmynd um að það væri matprjónn í auga mínu,“ sagði Chool eftir aðgerðina. Læknarnir eru ákaflega undr- andi á þessu máli. „Við höfum skoðað fjölmörg læknatímarit og teljum að þetta gæti verið í fyrsta sinn sem matprjónn finnst í and- liti sjúklings.“ ■ MIÐVIKUDAGUR 19. nóvember 2003 29 Skrýtnafréttin ■ Matprjónn fannst í andliti þrítugs Malasíubúa, læknum til mikillar furðu. MATPRJÓNAR Geta verið stórhættulegt vopn. Með matprjón í auganu FÓLK Vandræðabarn Hilton-fjöl- skyldunnar, hin 22 ára fyrirsæta Paris Hilton, heldur nú áfram að valda fjölskyldu sinni vonbrigð- um. Nú hefur nefnilega önnur kynlífsupptaka lekið á Netið. Sú fyrri lak á Netið fyrir síð- ustu helgi og þar sást stelpan njóta sín með kvikmyndafram- leiðandanum Rick Solomon. Mað- urinn, sem er giftur Shannen Doherty í dag, kærði Paris, fjöl- skyldu hennar og fjölmiðla- fulltrúa Hilton-hótelkeðjunnar á mánudag. Hann segir þau hafa reynt allt til að láta hann líta mjög illa út í fjölmiðlum með því að segja að Paris hafi verið nær meðvitundarlaus þegar mynd- bandsupptakan var gerð. Þau reyndu einnig að halda því fram að Paris hefði hugsanlega verið undir lögaldri þegar upptakan var gerð. Solomon hefur sannað að Paris var 21 árs og þeir sem hafa séð upptökuna vita að stúlk- an er ansi fjörug á henni og full af lífi. Það eykur svo ekki trúverðug- leika Paris að framleiðendur sjónvarpsþáttarins Celebrity Justice segjast hafa komist yfir aðra kynlífsupptöku af fyrirsæt- unni. Þar sprangar Paris um nak- in ásamt Playboy-fyrirsætunni Nicole Lenz. Þær leika sér einnig með kynlífstæki. Upptakan var gerð að lokinni 22 ára afmælisveislu Paris í Las Vegas í febrúar. Maðurinn á bak við myndavélina er leikarinn Simon Rex, sem leikur m.a. í Scary Movie 3. Hin unga Paris hefur nú leitað til fjölmiðla þar sem hún vill biðja fjölskyldu sína afsökunar opinberlega fyrir að draga fjöl- skyldunafnið í svaðið með kyn- lífsupptökunum. Hún hefur sam- þykkt að koma fram í viðtali þar sem hún ætlar að tala opinskátt um kynlífsupptökur sínar. ■ Velgengni Kylie Minogue náðihámarki skömmu eftir útgáfu síðustu plötu, Fever, sem var líka frábær poppplata. Ekki var hægt að kveikja á imbanum, tölvu, útvarpi eða fletta blaði án þess að verða hennar var á einhvern hátt. Hvort sem verið var að leika tónlist henn- ar eða dást að vel löguðum aftur- endanum. Nú fær straumlínulagaða popp- prinsessan svo það erfiða hlutverk að reyna að viðhalda vinsældunum. Ekki minnkaði þjóðarstolt okkar þegar hún leitaði í lagabanka Em- ilíönu Torrini til þess að takast á við það. Lagið Slow er skotheldur, svellsleipur slagari með útsetningu sem minnir mikið á Gusgus. Frá- bært lag, en því miður fyrir nýju breiðskífuna Body Language er það langbesta lag plötunnar. Eitt og eitt lag er fínt, nefni Chocolate og Promises sem dæmi, en yfir allt er útsetningar gamal- dags og flatar. Ég spái því að platan eldist illa. Svo fór það í taugarnar á mér hversu mörg lögin minntu mig á Madonnu frá Erotica-tímabilinu, meira að segja söngurinn á köflum! Ég dáist að Kylie, bæði sem manneskju og tónlistarmanni, en því miður hittir hún ekki í mark í þetta skiptið. Hefði betur slappað af, beðið og gert betri plötu. Birgir Örn Steinarsson Umfjölluntónlist KYLIE MINOGUE Body Language Kylie klikkar Fréttiraf fólki PARIS HILTON Vandræðabarn hótelfjölskyldunnar Hilton er 22 ára fyrirsæta að nafni Paris Hilton. Hún er ekki ómyndarleg, auk þess sem hún hefur starfað stuttlega á MTV, og því hafa kynlífsupp- tökurnar af henni verið vinsælar á Netinu. Vandræðabarn Hilton-fjölskyldunnar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.