Fréttablaðið - 29.12.2003, Side 1

Fréttablaðið - 29.12.2003, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Íþróttir 19 Sjónvarp 24 MÁNUDAGUR KÖRFUBOLTI Karlalandsliðið í körfu- bolta leikur seinni leik sinn gegn banda- ríska háskólaliðinu Catawba í Þorlákshöfn í kvöld en fyrri leikurinn fór fram í gær- kvöldi. Sigurður Ingimundarson stýrir landsliðinu en í liði Catawba leikur Helgi Már Magnússon. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG TALSVERÐUR ÉLJAGANGUR í borg- inni og áfram kalt. Dregur úr frosti á morg- un og þá jafnvel frostlaust við suðurströnd- ina. Sjá síðu 6 ● framandi áramótamatur Gefa góð ráð matur o.fl Kokkarnir á Skólabrú: ▲ SÍÐA 14 29. desember 2003 – 325. tölublað – 3. árgangur ● söng í top of the pops Þórunn Antonía: ▲ SÍÐA 26 Gerir það gott í London ● ekur um á saumavélinni Á engan draumabíl bílar o.fl. Rúnar Freyr Gíslason: ▲ SÍÐA 16 ÍHUGAR MÁLSHÖFÐUN Loftkastal- inn nýtur engra opinberra styrkja frá ára- mótum meðan stóru leikhúsin fá drjúgar greiðslur. Að óbreyttu verður félaginu um Loftkastalann slitið næsta vor og íhuga for- svarsmenn Loftkastalans málshöfðun á grundvelli samkeppnislaga. Sjá síðu 2 OPNA FYRIR FLEIRI Vélstjórum hefur fækkað á undanförnum árum og hefur Vél- stjórafélag Íslands nú brugðist við því með því að opna félagið þannig að fleiri en vél- stjórar einir fái inni í félaginu. Formaðurinn segir ákveðinn félagafjölda nauðsynlegan til að reka öflugt félag. Sjá síðu 4 FLEIRI FÍKNIEFNAMÁL Rúmlega þrefalt fleiri fíkniefnamál hafa komið upp á Keflavíkurflugvelli það sem af er desember en allan desembermánuð á síðasta ári. Málin eru fleiri en næstu þrjá mánuði á undan samanlagt. Sjá síðu 6 ÁRÁSUM LINNIR EKKI Árásir á er- lenda heri í Írak halda áfram og féllu tveir bandarískir hermenn í árásum í gær. Banda- ríkjamenn heita andvirði rúmlega sjötíu millj- óna króna fyrir upplýsingar sem leiða til handtöku tólf þeirra 55 manna sem þeir lögðu mesta áherslu á að ná. Sjá síðu 2 ÍRAN Opinber embættismaður hér- aðsstjórnarinnar í Kerman-héraði í Íran segist óttast að tala látinna í jarðskjálftanum í borginni Bam á föstudagsmorguninn eigi eftir að hækka í 30.000. „Ég er hræddur um að talan verði nálægt 30.000 því ástandið í þorpunum í kring- um borgina er ennþá verra heldur en í borginni sjálfri. Mörg þeirra eru gjörsamlega í rúst og hætt við því að þúsundir hafi orðið undir rústunum,“ sagði embættismaður- inn, sem ekki vildi láta nafns síns getið. Áður hafði Jahanbakhsh Khanjani, talsmaður íranska inn- anríkisráðuneytisins, tilkynnt að tala látinna væri komin í 22.000 og ætti enn eftir að hækka. „Það er ennþá verið að grafa og leita í rústunum svo talan á örugglega eftir að hækka nokkuð,“ sagði Khanjani og bætti við að búið hefði verið að jarðsetja 20.500 lík um miðjan dag í gær. Jesper Lund, yfirmaður Mannúðarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að 22 al- þjóðlegar leitar- og björgunar- sveitir væru enn að leita í rúst- unum en bráðlega yrði öll áhersla lögð á að sinna þeim sem fundist hafa lifandi. Stjórnvöld í Írak áætla að um 100.000 manns hafi misst heimili sín í jarðskjálftanum og að þar af séu um 30.000 slasaðir. Hjálpargögn hafa stöðugt verið að berast víða að úr heim- inum og voru á annan tug full- hlaðinna flutningaflugvéla komnar til Írans í gær með hjálparliða og gögn, þar af fjórar frá Bandaríkjunum. ■ Meðallestur 25-49 Höfuðborgarsvæðið NOKKRAR STAÐREYNDIR UM Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í okt. ‘03 FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ 75% 56% Ástandið enn verra í minni þorpunum Opinber embættismaður í Kerman-héraði í Íran segist óttast að tala lát- inna í jarðskjálftanum í Bam verði nálægt 30.000 því ástandið í þorpun- um í kringum borgina sé ennþá verra en í borginni sjálfri. Atvinnuleysi vélstjóra: Nálgast tíu ára topp VÉLSTJÓRAR Atvinnuleysi meðal fé- lagsmanna Vélstjórafélags Íslands virðist vera að aukast á ný. Félags- gjöld vegna atvinnulausra félags- manna hafa tvöfaldast, auk þess sem fjöldi manna hefur óskað eftir að vera á skrá hjá Vélstjórafélag- inu yfir menn í atvinnuleit. Í ársskýrslu Vélstjórafélagsins sést að það sem af er þessu ári hafa verið greiddar tæplega 18 milljónir króna í bætur vegna 62 félags- manna í samtals 4.993 daga. Í fyrra voru greiddar tæpar 10 milljónir vegna 30 manna í samtals 2.905 daga. Atvinnuleysið meðal vélstjóra nálgast því tölur fyrir tíu árum en þá náði atvinnuleysið hámarki. ■ Þingkosningar: Óvenju mik- il kjörsókn BELGRAD, AP Útlit er fyrir að harð- línumenn úr röðum þjóðernissinna vinni ekki þann stóra sigur sem þeim hafði verið spáð í þingkosn- ingunum í Serbíu sem fram fóru í gær. Fyrstu tölur bentu til þess að stuðningsmenn lýðræðisaflanna, sem komu Slobodan Milosevic frá völdum árið 2000, mættu á kjörstað í meira mæli en gert hafði verið ráð fyrir. Í gærkvöldi var talið líklegt að þó svo að Róttæki flokkurinn, flokkur harðlínuþjóðernissinna, yrði stærstur gætu flokkar sem vilja nánari tengsl við Vesturlönd myndað stjórn, nái þeir að setja niður deilur sínar. ■ M YN D /A P FLUGELDAR Flugeldasala hófst víða í gær og samkvæmt þeim söluaðilum sem Fréttablaðið hafði samband við fór salan vel af stað. Magnús Árnason hjá Gullborg segir úrvalið gríðar- legt og að salan dreifist jafnt og þétt á vöruna. Gullborg hefur flutt inn flugelda í áratugi og voru þeir fyrstu til að nefna flugeldana íslenskum nöfnum. Í ár eru skotkökurnar nefndar eft- ir íslenskum fjöllum og flugeld- arnir bera nafn íslenskra fugla. Ævintýraflugeldar voru með opið á Stórhöfða og í Brautar- holti, en fleiri útsölustaðir verða opnaðir innan tíðar. „Salan var þokkaleg í dag, en fólk er að byrja að taka við sér. Það verður þó alltaf meira eftir því sem nær dregur áramótunum. Vinsælast er það sem heyrist hæst í,“ segir Rúnar Ólafsson flugeldasali, „og aldur viðskiptavina dreifist mjög. Stærsti kaupendahópur- inn er þó alltaf á bilinu 30-45 ára karlmenn.“ Rúnar segir engar sérstakar nýjungar hjá þeim í ár. „Við vorum með nýjar kökur í fyrra sem við bjóðum að sjálf- sögðu aftur í ár.“ Mikið úrval er á flugelda- markaði og fjölmargir söluaðil- ar, meðal annars Kiwanisklúbb- ar, íþróttafélög og björgunar- sveitirnar. ■ FLUGELDAMARKAÐUR Á STÓRHÖFÐA Flugeldamarkaðir opnuðu í gær og þeir spenntustu voru auðvitað mættir á fyrsta degi. Flugeldasalan hófst í gær: Hávært frekar en litskrúðugt LÁTNIR GRÁTNIR Maður grætur meðan samferðamenn hans bera lík eins fórnarlamba jarðaskjálftans í og við Bam. Í gær var búið að grafa rúmlega 20.000 lík en fleiri lík eru enn að finnast og því ljóst að tala látinna á enn eftir að hækka. Áætlað er að 100.000 manns hafi misst heimili sín og að 30.000 hafi slasast til viðbótar þeim sem létust. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T KOMIÐ TIL KJÖRFUNDAR Öryggisvörður leitar eftir merkingum sem koma áttu í veg fyrir að fólk kysi tvisvar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.