Fréttablaðið - 29.12.2003, Síða 2
2 29. desember 2003 MÁNUDAGUR
„Já, ég hef ofurtrú á
stjórnmálamönnum.“
Andrés Jónsson er formaður Ungra jafnaðar-
manna. UJ hefur óskað eftir að fá að sjá lista yfir
stofnfjáreigendur í SPRON. Þessara lista hefur ver-
ið gætt af töluverðri ákefð á undanförnum árum.
Spurningdagsins
Andrés, ertu bjartsýnn á þetta?
■ Lögreglufréttir
Ójafn leikur
í leikhúsrekstri
Forráðamenn Loftkastalans gagnrýna harðlega stefnu ríkis og borgar í
leikhúsmálum. Stóru leikhúsin tvö fá hundruð milljóna króna í styrki en
Loftkastalanum var synjað um rekstrarstyrki á næsta ári.
LEIKHÚS „Frá og með næstu áramót-
um nýtur Loftkastalinn engra opin-
berra styrkja og vandséð hvernig
við fáum þrifist í því umhverfi sem
ríki og borg hafa skapað. Að óbreyt-
tu munum við slíta félaginu næsta
vor og íhuga málshöfðun á grund-
velli samkeppnislaga,“ sagði Ari
Matthíasson, ráðgjafi Loftkastalans.
F o r s v a r s -
menn Loftkastal-
ans telja að hið
opinbera mis-
muni þeim sem
stunda leikhús-
rekstur og sendi
L o f t k a s t a l i n n
S a m k e p p n i s -
stofnun kæru í
sex liðum vegna
þessa fyrir jólin.
Þar er óskað
eftir því að stofn-
unin úrskurði um
hvort þau mark-
mið samkeppn-
islaga, að opin-
berir styrkir raski ekki samkeppni
á leikhúsmarkaði, séu brotin.
Frá stofnun hefur Loftkastal-
inn verið í fararbroddi íslensks
leikhúss og oftar en ekki átt að-
sóknarmestu sýningarnar. Loft-
kastalinn bryddaði upp á nýjung-
um, svo sem sumarsýningum.
Stóru leikhúsin fylgdu svo í kjöl-
farið þegar sýnt þótti að þær nutu
verulegra vinsælda.
Á átta ára starfstíma Loftkastalans
hefur rekstrinum verið haldið gang-
andi án verulegra opinberra styrkja.
Styrkir Reykjavíkurborgar til
rekstrarins námu samtals 9,9 millj-
ónum króna árin 1995 til 2003. Auk
þess fékk félagið fimm milljónir
árið 1995 frá Íþrótta- og tóm-
stundaráði vegna verkefna fyrir
ungt fólk. Þá hefur félagið tvívegis
notið fyrirgreiðslu frá Leiklistar-
ráði vegna einstakra verkefna,
samtals sex milljónir króna. Í allt
nema styrkirnir 20,9 milljónum
króna á átta árum.
Forsvarsmenn Loftkastalans
segja þessar styrkveitingar afar
rýrar þegar litið er til þess að leik-
húsið á í beinni markaðslegri sam-
keppni við stóru leikhúsin, Þjóðleik-
húsið og Borgarleikhúsið, sem njóta
samanlagt 600 til 700 milljóna
styrkja frá ríki og borg á þessu ári.
„Loftkastalinn hefur verið
helsta skjól frjálsra leikhópa og
það var gríðarlegt áfall þegar borg-
in ákvað að hætta stuðningi við fé-
lagið. Samningar ríkis og borgar
við stóru leikhúsin koma í veg fyr-
ir samkeppni. Stóru leikhúsin
þrengja mjög að okkar starfsemi,
keppa beint við Loftkastalann um
útleigu og stunda undirboð á mark-
aði,“ segir Ari Matthíasson.
Ari segir að erindum Loftkastal-
ans til menntamálaráðherra og
borgarstjóra og ósk um viðræður
vegna Loftkastalans hafi ekki verið
svarað.
the@frettabladid.is
Ekkert lát á skæruárásum:
Milljón dollarar til höfuðs eftirlýstum
ÍRAK Stjórnvöld í Írak hafa ákveð-
ið að leggja eina milljón dollara til
höfuðs tólf eftirlýstum stuðnings-
mönnum Saddams Husseins, fyrr-
um Íraksforseta, sem enn ganga
lausir af þeim 55 sem Bandaríkja-
menn lýstu upphaflega eftir. Áður
höfðu tíu milljónir dollara verið
lagðar til höfuðs þeim þrettánda,
sem er Izzat Ibrahim al-Douri,
fyrrum helsti aðstoðarmaður
Saddams, en hann er talinn aðal-
skipuleggjandi skæruárásanna á
liðsmenn bandamanna í Írak.
Á sama tíma halda skæruliðar
áfram árásum á hermenn banda-
manna, en í gær féllu tveir banda-
rískir hermenn til viðbótar í
tveimur aðskildum sprengjuárás-
um. Sú fyrri var gerð í höfuðborg-
inni Bagdad en þar létu tvö írösk
börn einnig lífið auk þess sem
margir særðust. Seinni árásin var
gerð nálægt borginni Fallujah
vestur af Bagdad en þar særðust
þrír bandarískir hermenn auk
þess sem lést.
Á meðan var tilkynnt að einn
búlgarskur hermaður og fimm
íraskir borgarar hefðu látist á
sjúkrahúsi í kjölfar sprengjuárás-
arinnar í Karbala á laugardaginn,
þar sem fjórir búlgarskir og tveir
taílenskir hermenn fórust ásamt
sjö íröskum borgurum.
Þá féllu þrír lífverðir kúrd-
íska herforingjans Jawamirs
Attiyah Kakis þegar reynt var að
ráða hann af dögum í norður-
hluta Íraks. ■
Spáin fyrir
gamlárskvöld:
Allra
veðra von
VEÐUR „Eins og staðan er núna er
voðalega erfitt að segja til um
veðrið á gamlársdag,“ segir Óli Þór
Árnason veðurfræðingur.
„Það lítur út fyrir að það verði
lægðardrag yfir landinu, ekki mik-
ill vindur en úrkoma sums staðar á
landinu. Það verður mikill vindur á
miðunum í kringum okkur og lítið
þarf að breytast til að vindurinn
skili sér inn á land. Ef vindurinn
mætir úrkomunni er ljóst að það
verður ekki spennandi veður alls
staðar á landinu,“ segir Óli Þór, „en
spáin getur breyst og skýrist að öll-
um líkindum seinnipartinn í dag.“ ■
Afnám sjómannaafsláttar:
Ekki tekið
bótalaust
VÉLSTJÓRAR „Það er ljóst að við mun-
um aldrei gefa sjómannaafsláttinn
eftir óbættan. Ég hef sett fram
ákveðnar hugmyndir um mótvægis-
aðgerðir vegna afnáms afsláttarins
og þeim hefur verið mjög vel tekið,“
sagði Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags Íslands, á aðalfundi
félagsins í gær.
Helgi vill að útgerðin taki á sig
það sem sjómenn tapa með afnámi
sjómannaafsláttar og að ríkið gefi
eftir auðlindagjald þannig að staða
útgerðar og sjómanna verði sú
sama fyrir og eftir breytingu.
„Þarna erum við að tala um sam-
eiginlegt hagsmunamál allra sjó-
manna og munum berjast hart gegn
því að tapa þeim tekjum sem sjó-
mannaafslátturinn tryggir okkur.“ ■
Eldisþorskur:
Dælt úr
kvíum
FISKELDI Snæfugl dældi eldisþorski
úr kvíum Síldarvinnslunnar úti á
Norðfirði í gær. Um er að ræða
3.000 fiska og er meðalþyngd þeir-
ra milli fimm og sex kíló. „Þorskin-
um verður svo slátrað og hann unn-
inn í fiskiðjuveri fyrirtækisins,“
segir Björgvin Jóhannesson, for-
stjóri Síldarvinnslunnar, og kveður
dælingu hafa gengið vel.
Fyrir nokkru urðu mistök við
dælingu eldisfisks sem varð til þess
að hluti hans slapp og gekk í ár víða
um land. Í gær gekk hins vegar allt
eins og best varð á kosið. ■
VOPNAEFTIRLIT Í LÍBÝU Mohamad
ElBaradei, yfirmaður Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunarinnar,
var í fararbroddi eftirlitsmanna
sem könnuðu fjórar stöðvar þar
sem Líbýustjórn hafði unnið að
því að koma sér upp gjöreyðing-
arvopnum. ElBaradei hefur sagt
að Líbýumenn hafi virst vera
langt frá því að koma sér upp
gjöreyðingarvopnum.
FLUTTIR HEIM Sameinuðu þjóðirn-
ar fluttu í gær 151 búrúndískan
uppreisnarmann frá átakasvæðum
í austanverðu Kongó. Flutningarn-
ir eru hluti af tilraunum til að
draga úr átökum sem geisað hafa
á svæðinu um margra ára skeið.
Uppreisnarmennirnir tóku þátt í
borgarastríðinu í Kongó.
Aðild að
Evrópusambandinu:
Andstaða
vex í Noregi
ESB-AÐILD Meirihluti Norðmanna
er andsnúinn aðild að Evrópu-
sambandinu, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun sem gerð var
fyrir norska Dagbladet. 44% að-
spurðra segjast vera á móti því
að Noregur gangi í sambandið,
40% segjast því hlynnt en 16%
eru óákveðin.
Andstaðan við ESB-aðild hef-
ur aukist í Noregi undanfarna
mánuði. Í september sögðust
38% á móti aðild en í janúar voru
aðeins 27% Norðmanna andsnú-
in ESB-aðild Noregs.
Á sama tíma sýnir ný skoð-
anakönnun frá Svíþjóð að and-
staða við evruna hefur aukist frá
því Svíar kusu um hana í
þjóðaratkvæðagreiðslu 14. sept-
ember. Nú segjast aðeins 38%
aðspurðra hlynnt því að taka upp
evruna en voru tæp 42% í
þjóðaratkvæðagreiðslunni. Sam-
kvæmt skoðanakönnuninni eru
59% Svía nú andsnúin evrunni
en voru 56% í atkvæðagreiðsl-
unni í september. ■
Mannránið í Íran:
Gíslunum
sleppt
ÍRAN Þrír evrópskir hjólreiða-
menn, tveir þýskir og einn írsk-
ur, sem rænt var af mannræn-
ingjum í Sistan-Baluchistan-hér-
aði í suðausturhluta Írans þann
8. desember, hafa verið látnir
lausir.
Mönnunum var rænt þar sem
þeir voru á leiðinni á hjólum sín-
um á milli borganna Zahedan og
Bam, þar sem jarðskjálftinn reið
yfir á föstudaginn, og er talið að
mannræningjarnir, sem kröfð-
ust sex milljóna dollara lausnar-
gjalds, séu eiturlyfjasmyglarar.
Að sögn Kamals Kharrazis,
utanríkisráðherra Írans, var
kröfum mannræningjanna hafn-
að og var gíslunum sleppt laus-
um um helgina við góða heilsu,
að sögn Kharrazis. ■
PÚSTRAR Í MIÐBORGINNI Lög-
reglan í Reykjavík þurfti að
hafa afskipti af sjö líkamsárás-
um í miðborg Reykjavíkur að-
faranótt sunnudags. Ekki var
um alvarlega pústra að ræða, en
nokkrir voru fluttir á slysadeild
með minniháttar meiðsl.
HLJÓP Á BROTT Fjórir voru tekn-
ir grunaðir um ölvun við akstur í
Reykjavík aðfaranótt sunnudags.
Einn lenti í árekstri, en ók af
vettvangi og yfirgaf bifreiðina.
Hann hljóp inn í Þingholtin, en
var eltur uppi af lögreglu sem
handtók hann og færði í fanga-
geymslur.
VILL ÁLIT SAMKEPPNISSTOFNUNAR Á STYRKJASTEFNUNNI
Ari Matthíasson, ráðgjafi Loftkastalans, sendi Samkeppnisstofnun erindi fyrir jól og vill að
stofnunin skoði hvort ríki og borg fari að lögum í úthlutun styrkja til leiklistarstarfsemi.
„Loftkastal-
inn hefur ver-
ið helsta skjól
frjálsra leik-
hópa og það
var gríðarlegt
áfall þegar
borgin ákvað
að hætta
stuðningi við
félagið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
LÖGREGLA „Við erum ánægðastir
með þann árangur sem kemur
fram í betri unglingamenningu,“
segir Önundur Jónsson, yfirlög-
regluþjónn á Ísafirði, um þá miklu
fækkun sem orðið hefur á afbrot-
um og fangelsunum í lögsagnar-
umdæmi hans. Þannig nefnir
hann að fangelsunum hafi fækkað
úr því að vera 233 árið 1985 niður
í 102 árið 2002. Árið 1990 voru
framin 90 innbrot á svæði Ísa-
fjarðarlögreglu en þau voru að-
eins 6 á seinasta ári. Sérstaklega
segist Önundur fagna árangrinum
varðandi unglingana þar sem for-
eldrar, lögregla, félagsmálayfir-
völd, skólayfirvöld og sjálfir ung-
lingarnir hafi lagst á eitt til að
bæta ástandið.
„Hér starfar forvarnarhópur-
inn VÁVEST sem unnið hefur
mikið og gott starf varðandi for-
varnir. Við teljum það vera mik-
inn sigur hvernig til hefur tekist.
Við förum mikið út á meðal ung-
linganna og leggjum ofurkapp á
að útivistarreglur séu virtar. Ef
þeir eru með áfengi gerum við
það upptækt og því er eytt. Þeg-
ar við verðum varir við að ung-
lingar eru undir áhrifum höfum
við strax samband við foreldr-
ana. Árangurinn kemur skýrt
fram í því að í skoðanakönnun-
um sem gerðar eru á landinu
kemur fram að drykkjuskapur
unglinganna okkar, reykingar og
fíkniefnaneysla eru undir með-
allagi.“ ■
ÖNUNDUR JÓNSSON
YFIRLÖGREGLUÞJÓNNINN
Segir að lögreglan leggi áherslu á að vera í
góðu sambandi við unglingana en stilli sér
ekki upp sem andstæðingum þeirra.
Unglingavandamál eru hverfandi á Ísafirði:
Afbrotum hefur snarfækkað
M
YN
D
S
ÍM
O
N
Ö
R
N
■ Afríka
HELGI LAXDAL
Formaður Vélstjórafélagsins vill að útgerð-
in bæti sjómönnum tekjutap vegna af-
náms sjómannaafsláttar en ríkið gefi í
staðinn útgerðinni eftir auðlindagjald.
LIÐSMAÐUR BANDAMANNA
Tveir bandarískir hermenn féllu í skæru-
árásum í Írak í gær.