Fréttablaðið - 29.12.2003, Page 6
6 29. desember 2003 MÁNUDAGUR
■ Stjórnmál
Veistusvarið?
1Hvað heita börn leikarahjónannaIngvars E. Sigurðssonar og Eddu
Arnljótsdóttur, sem leika systkinin
Grím og Gottínu í kvikmyndinni Kalda-
ljósi?
2Hver er nýskipaður skólameistari viðFjölbrautaskóla Snæfellinga?
3Kringum hvaða palestínsku borg hafaÍsraelsmenn reist aðskilnaðarmúr?
Svörin eru á bls. 27
Reykjanesbær tekur við umönnun hælisleitenda:
Vel í stakk búin
FÉLAGSMÁL „Við teljum okkur vel í
stakk búin að takast á við þetta
verkefni,“ segir Árni Sigfússon,
bæjarstjóri í Reykjanesbæ, en
bæjarstjórn er í viðræðum við Út-
lendingastofnun að taka að sér
umönnun þeirra sem leita hælis
hérlendis. „Við teljum að þetta
falli vel að þeim þjónustugrunni
sem við höfum. Það getur verið
bæði hagstætt og um leið mikil-
vægt að geta sinnt þessari þjón-
ustu héðan,“ segir Árni og vísar til
nálægðar Reykjanesbæjar við
Leifsstöð.
Reykjanesbær tók á sínum
tíma að sér hóp flóttamanna sem
komu hingað eftir borgarastríðin í
lýðveldum fyrrum Júgóslavíu.
„Þá tók bærinn að sér þjónustu og
aðstoðaði einstaklinga. Hér er í
fyrsta lagi um að ræða þjónustu,
að veita þeim eðlilega aðstoð eins
og fæði og húsnæði,“ segir Árni.
Árni segir Rauða krossinn, sem
hefur séð um þessa þjónustu und-
anfarin ár, reiðubúinn að hjálpa
bænum við að koma þjónustunni
af stað. „Við gerum ráð fyrir að
þetta geti gerst upp úr áramótum
og verið komið í fullan gang
seinni part janúar.“ ■
FÍKNIEFNI Fjórtán fíkniefnamál
hafa komið upp á Keflavíkurflug-
velli það sem af er desember. Síð-
ustu þrettán mánuði þar á undan
komu mest upp sex slík mál í
febrúar, mars og júní. Í desember
hafa verið tekin tæplega fjögur
kíló af hassi og tæp 600 grömm af
kókaíni.
Aðspurður segir Ásgeir Karls-
son, yfirmaður fíkniefnadeildar
lögreglunnar í Reykjavík, erfitt
að segja til um af hverju þessi
aukning skýrist. Hann segir
miklu máli skipta að hitta á réttu
mennina til að leita á. Einnig sé
hugsanlegt að aukið eftirlitið á
gæti skýrt fjölgun þeirra sem
teknir eru.
Ásgeir segir jólamánuðinn oft
hafa verið vafasaman þegar komi
að fíkniefnum, oft hafi komið
sendingar á þessu tíma árs. Þá
nýti fólk sér ástandið þegar mik-
ið er um sendingar og pakka.
Hann segir líka hugsanlegt að
meiri neysla geti tengst meiri frí-
tíma.
„Síðustu þrjú ár hefur verið
augljóst að í hvert einasta skipti
sem við grípum inn í og náum ár-
angri breyta menn um starfs-
aðferðir,“ segir Jóhann R. Bene-
diktsson, sýslumaður á Kefla-
víkurflugvelli, um innflutning
fíkniefna í gegnum Leifsstöð.
Hann segir leit að fíkniefna-
smyglurum ekki ólíka því að stífla
bæjarlækinn, það byrji að leka á
einum stað og þegar komið sé í
veg fyrir lekann byrji að leka ann-
ars staðar. Hann segir að fyrir
þremur árum hafi orðið mikil
aukning á fíkniefnum sem náðust.
Þá voru margir Íslendingar teknir
sem voru þekktir í fíkniefnaheim-
inum. Smygl var ekki eða illa und-
irbúið, því náðust margir og
stundum með mikið magn efna.
„Árið 2001 og fram eftir árinu
2002 greindum við breyttar
starfsaðferðir. Erlend burðardýr
fóru að birtast í miklum mæli.
Okkur varð ljóst að seljendur efn-
anna erlendis höfðu tekið að sér
að afhenda efnin upp að þrösk-
uldi.“ Jóhann segir að á því tíma-
bili hafi verið teknir á þriðja tug
útlendinga með fíkniefni og af-
plánuðu þeir fangelsisrefsingu
hér á landi. Eftir að því tímabili
lauk breyttu menn aftur um
starfsaðferðir og fóru að flytja
efnin innvortis í stórum stíl og
geta því flutt minna magn í einu.
hrs@frettabladid.is
HJÖRÐ Í SÓTTKVÍ
Tvær kúahjarðir hafa verið settar í sóttkví
eftir að kúariðan greindist í einni kú í
Washington-ríki.
Kúariðutilfellið í BNA:
Gæti kostað
milljarða
BANDARÍKIN Brian Evans, yfirdýra-
læknir í Kanada, segir ótímabært
að ætla að fyrsta kúariðusmitið
sem komið er upp í Bandaríkjun-
um hafi borist með mjólkurkúm
sem fluttar voru inn frá Kanada.
Landbúnaðaryfirvöld í Banda-
ríkjunum fullyrða hins vegar að
fyrsta tilfellið, sem upp kom á bú-
garði í Washington-ríki, hafi
greinst í einni af 74 mjólkurkúm
sem í upphafi voru fluttar inn frá
Alberta í Kanada til Idaho í
Bandaríkjunum í ágúst 2001.
Tvær kúahjarðir hafa verið
settar í sóttkví eftir að smitið
greindist og er óttast að það geti
hafa alvarlegar afleiðingar og
kostað bandaríska nautakjötsiðn-
aðinn milljarða dollara. ■
Auðgunarbrot:
Hátt á þriðja
þúsund brot
LÖGREGLUFRÉTTIR Auðgunarbrot
sem komu til kasta ríkissaksókn-
ara í fyrra voru rúmlega 2.600 tals-
ins en ákært var í tæplega helm-
ingi tilfella, í 1.234 málum.
Þetta kemur fram í ársskýrslu
ríkissaksóknara fyrir árið 2002.
Þar sést einnig að skjalafals og
önnur brot er varða sýnileg sönn-
unargögn voru 164 á sama tímabili
og ákærur í þeim málaflokki voru
110. Ýmis önnur brot er varða fjár-
réttindi voru 476 og þar var ákært
í helmingi mála. ■
EBÓLUÓTTI Í SIMBABVE
Grunur leikur á að fyrsta ebólutilfellið hafi
komið upp í Simbabve fyrir jólin.
Ebóla í Simbabve:
Angólskur
maður lést
SIMBABVE Sunday Mail, eitt mál-
gagna stjórnvalda í Simbabve,
greindi frá því í gær að grunur léki
á að kaupsýslumaður frá Angóla
hafi látist úr ebólu á sjúkrahúsi í
bænum Victoria Falls í norðvest-
urhluta landsins í síðustu viku.
Í frétt blaðsins segir að maður-
inn hafi látist eftir augljós ein-
kenni ebólu og hafi heilbrigðisyfir-
völd staðfest það á föstudaginn og
jafnframt að sýni hafi verið send
til Suður-Afríku til greiningar.
Maðurinn mun hafa komið til
Simbabve frá Angóla með við-
komu í Namibíu og Botsvana. ■
Tollkvótar á blóm:
42-faldur
munur
BLÓM Miklu munaði á tilboðum
sem landbúnaðarráðuneytinu bár-
ust í tollkvóta vegna innflutnings
á afskornum blómum og potta-
plöntum. Boð í innflutning á af-
skornum blómum voru á bilinu
frá einni og upp í 42 krónur á
stykkið. Munurinn á tilboðum í
kvóta fyrir pottaplöntur var
minni hlutfallslega en meiri í
krónum talinn, frá 22 krónum á
stykkið upp í 155 krónur.
Meðalverð sem kvótar fóru á
var 34,17 krónur fyrir hvert af
265.000 afskornum blómum sem
auglýst var eftir tilboðum í og 131
króna á hverja pottaplöntu af
þeim 13.500 sem voru boðnar út. ■
ÁRNI SIGFÚSSON
Þjónusta við hælisleitendur fellur vel
að þeirri þjónustu sem bærinn veitir,
segir bæjarstjórinn.
JÓHANN R. BENEDIKTSSON
Jóhann segir mikið um að fólk flytji fíkniefni innvortis og geti þar af leiðandi flutt minna
magn í einu.
FJÖLDI FÍKNIEFNAMÁLA Á
KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Ár Mánuður Fjöldi mála
2002 nóvember 1
- desember 4
2003 janúar 5
- febrúar 6
- mars 6
- apríl 3
- maí 1
- júní 6
- júlí 4
- ágúst 1
- september 5
- október 5
- nóvember 3
- desember 14
Margir teknir með
fíkniefni í desember
Fleiri fíkniefnamál hafa komið upp í desember en næstu þrjá mánuði
á undan. Málin eru orðin rúmlega þrefalt fleiri en þau urðu í öllum
desembermánuði á síðasta ári.
VILJA LISTA YFIR STOFNFJÁREIG-
ENDUR Ungir jafnaðarmenn hafa
óskað eftir því við SPRON að fá
aðgang að lista yfir stofnfjáreig-
endur sjóðsins. Þannig vilja Ungir
jafnaðarmenn komast að því
hvaða stjórnmálamenn séu stofn-
fjáreigendur og spyrja þá hvernig
þeir hafi komist yfir stofnféð og
hvort þeim finnist siðferðislega
verjandi að hagnast á sölu þess.