Fréttablaðið - 29.12.2003, Síða 14

Fréttablaðið - 29.12.2003, Síða 14
matur o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um mat og drykk Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: matur@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is Kanill lækkar blóðsykurinn Danska fagblaðið Ingeniøren segir fráþví á vefsíðu sinni að hálf teskeið af kanil á dag dugi til að lækka blóðsykur- inn hjá sykursjúkum einstaklingum. Rannsóknir sýna einnig að kanill lækkar blóðsykur hjá fullfrísku fólk. Ekki er þó ráðlegt að rífa í sig eplapæ og kanilsnúða en upplagt að nota kanil út á þann mat sem maður er vanur að borða, segir í frétt frá Neytendasamtökunum. ■ Asti Riccadonna og Blue Nun Gold Edition: Freyðandi með flug- eldunum Asti Riccadonna er létt,ávaxtaríkt og náttúru- lega sætt freyðivín unnið eingöngu úr Moscato d’Asti þrúgunni frá Piemonte-héraðinu á Ítal- íu. Asti Riccadonna er til- valið sem eftirréttavín og hentar vel með ýmiss konar kökum, ísréttum og ávöxtum. Asti Riccadonna fæst í Vínbúðum á 880 kr. og er tilvalið með flug- eldunum. Gull hef- ur lengi verið tákn vel- gengni og arðsemi fram- tíðarinnar og því ekki úr vegi að skála í Blue Nun Gold Edition þar sem 22 karata gull- flögur dansa í glasinu. Blue Nun Gold Edition er milliþurrt, með fersku yfirbragði og fæst í Vínbúðum á 1.190 kr. ■ Gott um áramótin: Svartbauna ídýfa Tilvalið er að búa þessa ídýfu efvon er á gestum á gamlárs- kvöld. Hún er góð allan sólar- hringinn. 1 1/2 bolli svartar baunir í dós 2 hvítlauksrif 3 msk grænmetisolía 1 stór græn paprika smátt söxuð, geymið um eina teskeið til skreytingar 1 lítill rauðlaukur, smátt saxaður, geymið um eina teskeið til skreytingar 2 tsk. mulið þurrkað kúmen 2 msk. eplaedik Salt og pipar 1 tómatur, fínt saxaður Þurrkaður chilipipar Ferskt kóríander til skrauts Doppa af sýrðum rjóma til skrauts Hitið olíuna í potti. Bætið í paprikunni, lauknum og kúmin. Hitið og hrærið þar til paprikan er orðin mjúk. Hellið safanum af baununum og setjið einn bolla af baunum út í pottinn, ásamt 1/4 bolla af vatni. Látið malla með lokinu á í um 15 mínútur. Setjið baunablönduna í bland- ara ásamt edikinu. Blandið ör- stutt, þar til blandan hefur hrærst vel saman, en ekki láta hana verða mjúka sem sósu. Saltið og piprið. Færið yfir í fallega skál og hrærið í 1/2 bolla af baunum úr dósinni. Kælið blönduna og skreytið með kórí- ander, lauk, papriku og sýrðum rjóma. Berið fram með tortilla- flögum. Ídýfan geymist í tvo daga í kæli. ■ Lakkrís og ber ... : Barton & Guestier Barton & Guestier CabernetSauvignon er unnið eingöngu úr Cabernet Sauvignon-þrúgunni frá Languedoc-svæðinu er liggur við Miðjarðarhafið í sveitum Suður-Frakklands. Klassískar franskar hefðir eru viðhafðar við gerð vínsins en Barton & Guestier Cabernet Sauvignon hefur djúp- rauðan lit, ákafan berjailm ásamt lakkrís og langa og mjúka end- ingu. Vínið hentar vel með pasta- réttum, grilluðu rauðu kjöti, önd og ostum. Verð í Vínbúðum 990 kr. ■ Stjörnusnakk: Nýtt ára- mótasnakk Iðnmark hefur nýverið sett ámarkað nýtt Stjörnusnakk sem heitir Partý mix pizza margarita. Þetta er þriðja teg- undin undir l í n u n n i Stjörnu partý mix en fyrir eru Partý mix paprika og Partý mix s a l t & p i p a r. Þessi vara hef- ur notið mik- illa vinsælda hjá íslensk- um neytend- um undan- farin ár. I ð n m a r k hefur starfað að vöruþróun í nokkra mánuði með fyrirtæk- inu Symrise í Þýskalandi sem sérhæfir sig í kryddi fyrir snakkiðnaðinn og fleiru í mat- vælaframleiðslu. Eftir mikil samskipti við Symrise hefur Iðnmark fundið rétta bragðið og ætlar sérstaklega að kynna þessa nýju vöru um áramótin, þegar snakkneysla landans nær hámarki. ■ Coto Real: Ofurspánverji vín ársins? Ofurvín eru nýmóðins hugtaksem notað er yfir vín sem vínfyrirtækin hafa lagt einstak- lega mikið í. Fyrir réttum þrem- ur áratugum kom fram vín sem nefnist Tignanello hjá hinum virta ítalska framleiðanda Antinori og var það nefnt „Ofur- toskani“, Super-Toscano, eftir héraðinu Toscana þar sem það er framleitt. Átti þetta vín stór- an þátt í endurreisn ítalskrar víngerðar. Þegar spænska vínfyrirtækið El Coto kom fram með vínið Coto Real fyrir nokkrum árum síðan þótti það sæta viðlíka tíð- indum og var þegar byrjað að tala um „Ofurspánverja“ eða „Súper-Rioja“ enda héraðið Rioja höfuðhérað spænskrar víngerðar. Coto Real hefur á undanförnum árum unnið til fjölda verðlauna og hlotið mikið lof í víntímaritum. Má nefna að vínið hefur hlotið gullverðlaun á vínsýningunum Challenge International du Vin og Mundus Vini í ár auk þess að fá yfir- burðaeinkunir í tímaritum á borð við Wine Enthusiast og Wine Spectator. Coto Real er nútímalegt vín þar sem þrúgan Tempranillo er í forgrunni, heil 70%, en blönduð með 25% svörtum grenache og 5% graciano. Vínið er látið þroskast á franskri og amerískri eik í heila 20 mánuði og síðan geymt á flösku í tvö ár áður en það fer á markað. Vínið er djúp- rautt og ávaxtaríkt með keim af lakkrís, súkkulaði og kryddi. Ákaflega kraftmikið vín sem hefur afgerandi eftirbragð og ræður við gífurlega volduga kjötrétti eins og þá sem Íslend- ingar bera á borð um áramót. Coto Real hefur hlotið góðar um- sagnir hér- lendis, m.a. verið valið vín mánaðar- ins í Gestgjaf- anum, og heyrst hefur að það sé nefnt sem eitt af vínum ársins hjá v í n g a g n - rýnendum. ■ Dádýr, akurhænur og fasanar: Hægt að leika sér með sósuna Nú er hægt að fá alls kynsframandi dýr í kjörbúðum og eru eflaust margir sem langar til að prófa dádýr, akurhænu eða fasana yfir áramótin en vita ekki hvernig á að elda slíkar kræsing- ar. Kokkarnir á Skólabrú bjóða upp á villibráð af ýmsu tagi og þeir segja auðvelt að matreiða dá- dýr með góðum árangri. „Við bjóðum upp á bæði grafið og steikt dádýr,“ segir William Scobie, matreiðslumaður á Skóla- brú. „Fyrst steikjum við kjötið á pönnu til að loka því. Hægt er að nota hvaða krydd sem er, basil, taragon, timjan, rósmarín, salt og pipar. Síðan set ég það inn í ofn við 160 gráðu hita. Svo er hitinn lækkaður niður í svona 120. Þegar bera á það fram er það skorið í sneiðar eins og roast beef og framreitt ýmist heitt eða kalt. Soðið frá kjötinu er hægt að nota í sósu. Meðlæti getur verið brúnað- ar kartöflur, rauðkál eða blandað grænmeti.“ Dádýr er dálítið líkt hreindýri á bragðið en aðeins bragðminna. Guðmundur H. Halldórsson, yfir- matreiðslumaður á Skólabrú, seg- ist yfirleitt aðeins krydda dádýr með salti og grófum muldum svört- um pipar. „Dádýrið er ekki mjög bragðsterkt þannig að það er ekki gott að krydda það of mikið. Það er frekar hægt að leika sér með sós- urnar sem maður hefur með því.“ Akurhænu má ekki ofelda „Ef þú færð heila akurhænu er hún yfirleitt pensluð með smjöri og krydduð með salti og pipar. Síðan er hún sett í frekar heitan ofn í smástund til að fá gullin- brúnan lit á skinnið. Svo lækka ég alveg niður í 95 gráður og tek það rólega þar til hún er tilbúin. Safanum og fitunni sem lekur af er svo dreypt yfir annað slagið til að koma í veg fyrir að hún þorni. Akurhænur eru litlar og það er langbest að heilsteikja þær svona svo þær verði safaríkar. Þær mega heldur ekki við of mikilli eldun því kjötið er fínt. Ef akur- hænan er úrbeinuð er hægt að pönnusteikja hana í smjöri, fyrst á skinnhliðinni og svo á kjöthlið- inni, og krydda með salti og pipar. Svo hellir maður smá kjúklinga- soði yfir, fær smá gufu, færir yfir á bakka og eldar rólega í ofni.“ Guðmundur segir akurhænuna aðeins bragðmeiri en kjúkling. „En það er til dæmis miklu meira villibráðarbragð af fasana. Fasani er yfirleitt eldaður á sama hátt en hann verður þurrari þannig að það þarf að nota svolítið af fitu ofan á hann, til dæmis andafitu. Oft er hann líka vafinn með fitu- miklu beikoni, aðeins brúnaður á pönnu og svo eldaður í ofni.“ Soðsósa með dádýri, akur- hænu eða fasana Mýkið lauk í smjöri á pönnu. Hellið út í smá hvítvíni, rjóma, kjúklingasoði og soðinu af kjötinu sem verið er að elda. Leyfið þessu að sjóða svolítið niður. Þykkið með smá maízena-mjöli. Gott er að bragðbæta með Masala víni eða sérrí. Með dádýrinu er gott að bæta út í þetta sveppum og villisvepp- um sem bleyttir hafa verið upp í Masala eða sérríi. Með akurhænunni er gott að nota græn vínber í sósuna. Berin eru klofin og steinarnir teknir úr. Setjið smá eplasíder út í sósuna og vínberin í lokin. ■ KOKKARNIR Á SKÓLABRÚ Ráðleggja um matreiðslu framandi dýra. PARTÝ MIX PIZZA MARGARITA Þriðja tegundin í Stjörnu partý mix.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.