Fréttablaðið - 29.12.2003, Síða 20

Fréttablaðið - 29.12.2003, Síða 20
bílar o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur bí lum Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: bilar@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Rúnar Freyr Gíslason leikarisegist ekki vera mikill bíla- karl. „Ég svo praktískur að draumabíllinn er bara einhver góður station-bíll. Nú er ég kom- inn með fjölskyldu og vil bara eitthvað sem ég ræð við. Mig dreymir ekkert um eitthvað sem ég get ekki fengið.“ Engu að síður lét Rúnar Freyr sig dreyma í sumar um stóran jeppa, einhvern sem kemst allt. „Ég, vinir mínir og konurnar okk- ar fórum inn í Kvígindisfjörð, sem er á suðurhluta Vestfjarða- kjálkans. Þetta er eiginlega óbyggður fjörður og við lentum í voðalegum hrakningum á venju- legum bílum. Einn vinur minn var á jeppa og hann þurfti að keyra alla á honum,“ segir Rúnar. „Þá fór mig að dreyma um einhvern rosalegan upphækkaðan jeppa með svakalegum tækjum.“ Dagsdaglega ekur Rúnar um á ‘98 árgerðinni af Daihatsu Sirion. „Ég er á rosalega litlum og skrýtnum bíl, algjörri saumavél sem kemst ekki neitt. Hann er gulur í þokkabót. Konan mín segir að það sé fínn bíll og ég er búinn að vera í rifrildi við hana alveg frá ‘98. Það er komið á sjötta ár sem ég er búinn að reyna að berj- ast gegn honum og fá mér station- bíl,“ segir Rúnar. Hann þvertekur aftur fyrir að eiga sér sérstakan draumabíl og segist frekar vilja öryggi og prak- tík. „Ég er afar jarðbundinn, bara týpískt naut.“ ■ Draumabíll Rúnars Freys: Einhver góður station-bíll Vinnuvélanámskeið Kvöldnámskeið. Námskeiðsstaður, Þarabakki 3. 109 Reykjavík (Mjódd). Verð 39.900.- Upplýsingar og innritun í síma: 894-2737 Flest verkalýðsfélög styrkja nemendur á vinnuvélanámskeið, einnig atvinnuleysistryggingasjóður Ford Focus C-Max: Öruggur gagnvart börnum BEÐIÐ EFTIR BENSÍNI Íraskir bílaeigendur hafa þurft að bíða í löngum biðröðum undanfarið eftir því að fá bensín á bíl- ana sína. Yfirvöld í landinu kenna gríðarlegum inn- flutningi á nýjum bílum undanfarna sjö mánuði um ástandið. Bakhnykksvörn Volvo: Dregur úr áverkum WHIPS-bakhnykksvörnin semVolvo kynnti til sögunnar fyrir fimm árum dregur úr alvar- legum bak- og hálsáverkum um a.m.k. 50% og í sumum tilvikum um allt að 75%. Þetta kemur fram í niðurstöð- um nýrra rannsókna sem voru gerðar á vettvangi raunverulegra bílslysa. WHIPS-vörnin virkar þannig að við árekstur hreyfist sætisbakið og höfuðpúðinn í sam- ræmi við hreyfingar líkamans og þannig er dregið úr höggi á lík- amann. Bak- og hálsáverkar eru algengustu og að mörgu leyti al- varlegustu áverkar sem koma í kjölfar bílslysa og eru niðurstöð- urnar því ákaflega góð tíðindi. ■ TOYOTA Á TOPPNUM Japanski bílaframleiðandinn Toyota skoraði hátt í nýlegri gæðakönnun þýska tímaritsins Autobild. Fimmtán helstu bílateg- undir í Þýskalandi tóku þátt í könnuninni, sem var gerð fyrir árið 2002. Þar hlaut Toyota 8,8 gæðastig alls miðað við allar teg- undir framleiðandans til þessa. Komst Toyota þar með fram úr þýska risanum Mercedes sem hafði áður verið í efsta sæti. ■ Gæðakönnun Hörður Smári Hákonarson, 65ára Reykvíkingur, datt svo sannarlega í lukkupottinn á dög- unum. Þá var nafn hans dregið upp úr pottinum í leiknum Léttara líf með Smáralind. Þetta þýðir að Hörður Smári ekur inn í nýtt ár á glænýjum Hyundai Getz frá B&L. Hörður Smári segir þetta vera eina stærstu og óvæntustu jóla- gjöf sem hann hafi fengið. „Ég trúði þessu tæpast þegar það var hringt í mig. Hélt kannski að það væri verið að gera at í mér. En sem betur fer þá var þetta satt og ég er himinlifandi með vinning- inn. Það er gott að fá þetta svona á gamals aldri. Þetta er mjög góð búbót,“ sagði Hörður sem starfar sem bensínafgreiðslumaður á bensínstöð Skeljungs við Gylfa- flöt. Þátttaka í leiknum var feikilega góð en u.þ.b. 70.000 gestir Smára- lindar fylltu út þátttökuseðil. ■ Hyundai Getz dreginn út: Hörður datt í lukkupottinn HÖRÐUR SMÁRI Hörður Smári Hákon- arson tekur við vinn- ingnum úr höndum Haraldar Haraldssonar, fulltrúa B&L. FjölskyldubíllinnFord Focus C-Max fékk hæstu einkunn sem gefin hefur verið í árekstrarprófi hinnar virtu stofnun- ar Euro-NCAP fyrir öryggi gagnvart börnum. C-Max var eini bíllinn sem fékk fjór- ar stjörnur, eða 38 stig, sem er hæsta einkunn sem gefin hefur verið hingað til. Stigin sem voru gefin eru reiknuð út frá þeim áverkum sem mælast á árekstrardúkkum. Aukastig eru gefin fyrir hversu auðvelt er að setja bílstóla í bílinn og fyrir aðvörunarkerfi sem varna alvarlegum áverkum. ■ FORD FOCUS Fékk hæstu einkunn í árekstrarprófi Euro-NCAP fyrir öryggi gagnvart börnum. RÚNAR OG SAUMAVÉLIN Rúnar ekur um á saumavélinni Daihatsu Sirion. Það er nóg að gera hjá Rúnari um þessar mundir því á annan í jólum var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu leikritið Jón Gabríel Borkmann þar sem hann fer með stórt hlutverk. M YN D /A P FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.