Fréttablaðið - 29.12.2003, Page 23

Fréttablaðið - 29.12.2003, Page 23
19MÁNUDAGUR 29. desember 2003 Chelsea aftur á beinu brautina eftir sigur á Portsmouth í úrvalsdeildinni í gær: Ljótur grikkur Lampards FÓTBOLTI Claudio Ranieri, knatt- spyrnustjóri Chelsea, hikaði ekki við að gera fimm breytingar á lið- inu sem tapaði fyrir Charlton, 4-2, á öðrum degi jóla. Hann setti Marcel Desailly, Glen Johnson, Joe Cole og Jimmy Floyd Hassel- baink á bekkinn og skipti um markvörð. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliðinu á nýjan leik en honum tókst þó ekki að skora þrátt fyrir að hafa fengið nokkur færi. Þessar breytingar skiluðu sér í 3-0 sigri og þótt fæðingin hafi verið erfið var sigurinn ör- uggur og sannfærandi. Það tók leikmenn Chelsea 65 mínútur að brjóta niður þéttan varnarmúr Portsmouth. Þá skoraði bakvörðurinn Wayne Bridge sitt fyrsta úrvalsdeildar- mark fyrir Chelsea og leiðin á eft- ir var greið. Frank Lampard, sem hafði verið mikið gagnrýndur fyr- ir frammistöðu sína í undanförn- um leikjum, var besti maður vall- arsins og sýndi fyrrum læriföður sínum hjá West Ham og núverandi stjóra Portsmouth, Harry Red- knapp, litla miskunn. Hann skoraði annað markið á 70. mínútu og Kamerúninn Geremi gulltryggði sigurinn á 82. mínútu. Claudio Ranieri, knattspyrnu- stjóri Chelsea, var sáttur við sig- urinn en ítrekaði enn eina ferðina að liðið ætti langt í langt með að standa jafnfætis Manchester United og Arsenal. „Munurinn á okkur og þeim er sá að bæði Manchester United og Arsenal verða að vinna titilinn á meðan við verðum að halda í við þau,“ sagði Ranieri. Hann sagðist jafnframt hafa verið búinn að bíða eftir leik sem þessum. „Des- embermánuður hefur verið slak- ur hjá okkur og það hlaut að koma að því að liðið myndi sýna góða frammistöðu.“ ■ FYRSTA MARKIÐ HJÁ BRIDGE Frank Lampard, Claude Makelele, Eiður Smári Guðjohnsen, John Terry og Geremi fagna hér Wayne Bridge, sem skoraði fyrsta mark Chelsea í gær. TAP HJÁ GUÐJÓNI Guðjón Þórðarson og lærisveinar hans í Barnsley biðu óvænt lægri hlut fyrir Chesterfield, 1-0, á heimavelli í ensku 2. deildinni í knattspyrnu í gær. Völlurinn í Barnsley var erfiður yfir- ferðar en Barnsley tapaði þar með þremur dýrmæt- um stigum í toppbaráttunni í 2. deildinni. Barnsley er nú í fjórða sæti deildarinn- ar, níu stigum á eftir Plymouth sem er í efsta sætinu. SIGUR HJÁ RANGERS Rangers bar sigurorð af Dundee, 2-0, á útivelli í skosku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu í gær og minnkaði þar með forystu Celtic á toppi deild- arinnar niður í átta stig. Portú- galinn Nuno Capucho og enski bakvörðurinn Michael Ball tryggðu Rangers sigurinn. ■ Fótbolti SLÆMUR DAGUR HJÁ DANNY MILLS Danny Mills, varnarmaður Middlesbrough, sést hér í baráttu við Ryan Giggs hjá Manchest- er United í leik liðanna í gær en Mills skoraði eina mark leiksins, að vísu í vitlaust mark. Mills maðkur í mysu Boro Skoraði sjálfsmark sem varð til þess að Middlesbrough beið lægri hlut fyrir Manchester United á heimavelli í gær. FÓTBOLTI Manchester United náði fjögurra stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í gær þegar liðið bar sigurorð af Midd- lesbrough, 1-0, á Árbakka-leik- vangi í Middlesbrough. Það var varnarmaður Middlesbrough, Danny Mills, sem skoraði sigur- mark United en þessi harðskeytti en jafnframt umdeildi leikmaður varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark strax á 14. mínútu. Leikmenn Manchester United hafa verið á miklu skriði undan- farið, unnu báða leiki sína um jól- in og hafa sýnt að þeir ætla sér ekkert annað en að verja titilinn. Darren Fletcher, Skotinn ungi í liði Manchester United, fékk að líta rauða spjaldið og Alex Fergu- son, knattspyrnustjóri Manchest- er United var ekki sáttur við það spjald. „Hann fór í tvær tækling- ar og uppskar tvö gul spjöl. Er það eðlilegt?“ spurði Ferguson eftir leikinn en hann var þó sáttur við úrslitin. „Við byrjuðum fyrri hálf- leikinn mjög vel en lið Middles- brough er erfitt viðureignar, það er frábært varnarlega og ég er af- skaplega hamingjusamur með að hafa komist með þrjú stig í burtu,“ sagði Ferguson. Charlton skellti sér í fjórða sæti deildarinnar með því að leggja Tottenham að velli, 1-0, og fylgja þar með eftir frábærum sigri á Chelsea á annan dag jóla. Ítalinn Paolo Di Canio lagði upp enn eitt markið fyrir Charlton en Carlton Cole skallaði hornspyrnu Di Canios í netið. Tottenham er komið í fallsæti en David Pleat, knattspyrnustjóri liðsins, sá þó ljósglætu eftir leikinn þar sem það eru enn nítján leikir eftir af tímabilinu. Darius Vassell, enski landsliðs- framherjinn hjá Aston Villa, er vaknaður til lífsins. Hann skoraði fyrstu tvö mörk sín á tímabilinu þegar Aston Villa bar sigurorð af Fulham, 3-0. Robbie Fowler kom aftan að sínum gömlu félögum þegar hann tryggði sínum mönnum í Manchester City eitt stig gegn Liverpool með marki á lokamín- útu leiksins. Þetta var annað mark kappans í tveimur leikjum og virðist hann vera að vakna til lífs- ins á nýjan leik eftir slaka frammistöðu það sem af er tíma- bilinu. Wolves vann sjaldgæfan sigur þegar liðið bar sigurorð af Leeds, 3-1. Norski landsliðsmaðurinn Steffen Iversen skoraði tvívegis fyrir Wolves, sem vermir þó enn botnsætið. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.