Fréttablaðið - 29.12.2003, Blaðsíða 26
22 29. desember 2003 MÁNUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
26 27 28 29 30 31 1
DESEMBER
Mánudagur
FLUGELDAR Á SKÍÐASTÖKKPALLI
Flugeldar lýsa hér upp nýjan skíðastökk-
pall í Oberstdorf í suðurhluta Þýskalands
sem var opnaður á laugardaginn en bygg-
ing hans kostaði 1,5 milljarða.
Skíðastökk
■ ■ LEIKIR:
19.15 Landsleikur í körfubolta. Ís-
land gegn Catawba College í íþrótta-
húsinu í Þorlákshöfn.
■ ■ SJÓNVARP
16.15 Ameríski fótboltinn á Sýn.
Endursýndur leikur Tennessee Titans og
Tampa Bay Buccaneers.
18.25 Ensku mörkin á Sýn.
19.20 NFL tilþrif á Sýn.
19.50 Enski boltinn á Sýn. Bein út-
sending frá leik Southampton og
Arsenal.
22.00 Gillette sportpakkinn á Sýn.
KÖRFUBOLTI Framherjinn öflugi
Chris Webber, sem leikur með
Sacramento Kings í NBA-deild-
inni í körfuknattleik, veit ekki
hvenær hann getur byrjað að
spila með liðinu á nýjan leik en
hann hefur ekkert spilað síðan
hann meiddist illa á hné í leik
gegn Dallas Mavericks í úr-
slitakeppninni síðasta vor.
Webber, sem var skorinn upp í
sumar, hefur ekkert getað æft að
ráði til þessa en hann sagðist samt
vera á batavegi. „Ég má fara að
auka álagið á hnéð en læknarnir
hafa ekki enn gefið mér leyfi til
að mæta á æfingar. Þessi meiðsli
voru alvarlegri en haldið var og
því mun ég fara eftir því sem
læknarnir segja í einu og öllu,“
sagði Webber.
Rick Adelman, þjálfari Sacra-
mento, sagðist vera ánægður með
framfarirnar sem Webber hefði
sýnt að undanförnu en að það
væri allt of snemmt að koma með
tímasetningu fyrir væntanlega
endurkomu hans. „Við söknum
hans mikið enda er hann okkar
besti leikmaður en við þurfum að
fá hann til baka í toppformi og
hann verður einfaldlega að fá að
jafna sig,“ sagði Adelman.
Sacramento Kings er með
næstbesta árangurinn í NBA-
deildinni það sem af er tímabils
þrátt fyrir að vera án Webbers en
liðið hefur unnið tuttugu leiki og
tapað átta, einum meira en helsti
andstæðingurinn, Los Angeles
Lakers. ■
CHRIS WEBBER
Chris Webber veit ekki hvenær hann verð-
ur klár í slaginn á nýjan leik.
Óvissa hjá Chris Webber
Er ekki enn farinn að æfa með Sacramento eftir hnémeiðsli sem hafa hrjáð hann síðan í vor.
Freddie Kanoute:
Spilar líklega
með Malí
FÓTBOLTI Franski sóknarmaðurinn
Freddie Kanoute, sem leikur með
Tottenham, mun að öllum líkind-
um spila með landsliði Malí í Afr-
íkukeppninni sem hefst 24. janú-
ar. Kanoute, sem hefur ekki leikið
A-landsleik fyrir Frakkland og
getur spilað fyrir Malí þar sem
faðir hans er þaðan, mun verða
frá í sex vikur, sem er mikið áfall
fyrir Tottenham.
Forráðamenn liðsins reyna nú
allt hvað þeir geta til að sannfæra
Kanoute um að spila ekki fyrir
Malí, en hann hefur skorað sjö
mörk í tólf leikjum í úrvalsdeild-
inni. ■
FÓTBOLTI Mark Palios, fram-
kvæmdastjóri enska knattspyrnu-
sambandsins, segir að sambandið
hafi gert rétt þegar það dæmdi
varnarmanninn Rio Ferdinand í
átta mánaða bann fyrir að missa
af lyfjaprófi. Palios segir að sam-
bandið hafi þurft að setja for-
dæmi og það hafi það gert.
„Ég sé ekki fyrir mér að félög
leyfi leikmönnum sínum að missa
af lyfjaprófi framvegis,“ sagði
Palios og bætti við að ef hann yrði
fyrir strætisvagni á morgun þá
væri hann í það minnsta stoltur af
því að hafa náð að koma þessu
máli í gegn. Hann sagði að enska
knattspyrnusambandið hefði
gengið í gegnum erfitt ár en að
það væri loksins á réttri leið.
„Ég er ekki ánægður með sjálf-
an mig. Ég er eiginlega frekar
dapur þar sem ég veit að knatt-
spyrnuna hefur sett niður þar til
núna,“ sagði Palios. Forráðamenn
Manchester United og Rio Ferdin-
and sjálfur eru ekki á sömu skoð-
un og Palios og hafa tilkynnt að
málinu verði áfrýjað og því fylgt
eftir af hörku. ■
MARK PALIOS
Mark Palios, framkvæmdastjóri enska
knattspyrnusambandsins, er ánægður með
bann Rio Ferdinands.
Enska knattspyrnusambandið lætur heyra í sér:
Palios ver bannið á Ferdinand