Fréttablaðið - 29.12.2003, Page 30

Fréttablaðið - 29.12.2003, Page 30
Þetta er í fyrsta sinn í sögubókmennta á Íslandi sem bók kemur út milli jóla og nýárs,“ segir Kristján B. Jónasson, bókaútgefandi hjá Forlaginu, sem var að gefa út bókina Þú getur hætt að reykja eftir Guð- jón Bergmann. „Það má því segja að áramótabókaflóðið sé að hefjast.“ Bókin byggir á námskeiðum sem Guðjón Bergmann hefur haldið síðustu ár. Guðjón var sjálfur stórreykingamaður en sneri baki við tóbaksfíkninni. „Mig langaði til að hætta að reykja eftir að hafa lesið bókina. Slíkur var sannfæringarkraftur- inn og ég sem hef aldrei reykt,“ segir Kristján. Bókin byggir á einfaldri hugmynd og verður sá sem vill drepa á sígarettunni að undibúa sig vel. „Þeir sem fá sér smók þegar þeir fá sér í glas verða að hætta að drekka,“ útskýrir Kristján og bætir við að aðferðin sé mjög huglæg. Það hljómar kannski sem hálfgerð bilun að gefa út bók stuttu eftir jólabókaflóðið en Kristján hefur útskýringu á því. „Það hefur enginn verið svo vitlaus að gefa út bók milli jóla og nýárs,“ segir Kristján. „En að öllu gamni sleppt er þetta í raun mjög einfalt. Um 90% þeirra sem strengja áramótaheit ætla að hætta að reykja. Þessi bók hefði drukknað í jólabókaflóðinu og því tilvalið að gefa hana út nú. Þetta er sá tími ársins sem fólk ætlar að endurskipuleggja sig.“ Kristján útilokar ekki frekari útgáfu á slíkum bókum á jafn óvenjulegum tíma. „Ég hugsa þessar bækur í einhvers konar tímaritaformi. Bókin kostar að- eins 999 krónur og er því álíka dýr og tveir sígarettupakkar. Fólk tímir því að kaupa hana. Þetta er fyrsta prufan í áramóta- bókaflóðinu.“ ■ Hrósið 26 29. desember 2003 MÁNUDAGUR Árni Björgvinsson, fyrrumeigandi Amigos í Lækjar- götu, hefur endurnýjað og opnað á ný veitingastaðinnn Rauða ljónið á Eiðistorgi. „Húsnæðinu hefur verið gjörbylt,“ segir Árni. „Þetta er allt miklu opnara, en það er líka hægt að skipta staðnum upp í minni einingar, sem býður upp á mikla möguleika.“ Eldhúsið opnar um áramót, en veitingastaðurinn verður op- inn frá hádegi og fram á kvöld. „Matseðillinn verður almenns eðlis en husanlega með mexíkósku ívafi,“ segir Árni. „Við verðum með lifandi tón- list um helgar, því nú er kominn hljómsveitarpallur og aðstaðan góð fyrir minni tónleika og að sjálfsögðu böll. Svo verður auð- vitað hægt að fá sali fyrir veisl- ur og hvers konar uppákomur.“ Árni er bjartsýnn á rekstur- inn og ákvað að skipta ekki um nafn. „Ef ég hefði til dæmis kall- að þetta Vesturbæjarbarinn eða eitthvað álíka hefðu allir sagt: „Já, þetta er þar sem Rauða ljónið var.“ Svo mér fannst bara betra að halda nafninu.“ Árni segist ekki síst stíla upp á fólk úr Vesturbænum og af Nesinu og vonar að fólk muni líta á barinn sem sinn hverfisb- ar. „Við erum líka með flottan búnað til að sýna íþróttaleiki og hvers konar íþróttaviðburði og ætlum að kappkosta að fólk geti komið þarna og gert sér glaðan dag af hvers kyns tilefni. Með nýjum eigendum koma nýjar áherslur,“ segir Árni. ■ Opnun RAUÐA LJÓNIÐ Á EIÐISTORGI ■ hefur gengið í endurnýjun lífdaga, en nú með nýjum eigendum og nýjum áherslum. Hrósið fá Finnbogi Vikar Guð- mundsson, Saga Ásgeirsdóttir og Steinunn Gunnlaugsdóttir fyrir að fylgja hugsjónum sínum og dvelja úti í Palestínu yfir hátíðarnar til að taka þátt í mótmælaaðgerð- um og hjálparstarfi. Söngkonan Þórunn Antoníadvelur nú í London. Nýlega söng hún með hljómsveitinni Junior Senior í hinum virta tón- listarþætti Top of the Pops á BBC: „Þetta var jólaþátturinn og það átti að taka upp lagið sem er búið að vera í efsta sæti breska vinsældalistans í ár,“ segir Þórunn Antonía. „Dönsku strákarnir í Junior Senior áttu topplagið um tíma en ég kynnt- ist þeim af tilviljun í veislu hjá vini mínum. Junior Senior hringdu í mig frá Japan því bak- raddasöngkonan þeirra komst ekki með til Bretlands. Þeir áttu að fara að syngja í tveimur sjón- varpsþáttum og vantaði söng- konu með sér,“ segir Þórunn Antonía, sem kom fram með hljómsveitinni í Top of the Pops og sjónvarpsþætti hins virta djasspíanista Jools Holland. „Ég sló til og fékk diskinn sendan í pósti en við náðum ekki að æfa neitt saman svo það var bara kveikt á myndavélinni og hopp- að út í,“ segir Þórunn, sem hafði gaman af ævintýrinu. „Þetta var rosalega skemmtilegt, ekki síst fyrir það að fá tækifæri til að koma upp á BBC og sjá allt þetta stóra batterí.“ Þórunn Antonía hefur nýver- ið lagt lokahönd á nýja plötu. „Ég og Wayne Murrey skipum dúett sem heitir The Honeymoon. Við kölluðum okk- ur áður The Lovers en urðum að breyta nafninu. Við syngjum og semjum öll lögin í sameiningu og höfum átt mjög gott sam- starf. Platan kemur út með haustinu en fyrsta smáskífan kemur í mars og við erum mjög ánægð með afraksturinn.“ The Honeymoon, er með samn- ing við útgáfufyrirtækið BMG en það stendur til að það sameinist Sony á næstu dögum. ■ í dag Rakettur bannaðar í þéttbýli Fræðimanns- ferill Hannesar í hættu Vill skila SPRON- gróðanum en veit ekki hvert Gríman 2003 Besta leiksýningin, að mati áhorfenda Miðasala í 5629700 og sellofon@mmedia.is www.sellofon.is þri. 30. des. kl. 21, UPPSELT fös. 2. jan. kl. 21, örfá sæti Ósóttar pantanir seldar í dag og á morgun ÁRNI BJÖRGVINSSON Hefur opnað Rauða ljónið á Eiðis- torgi og gjörbylt staðnum, sem býð- ur nú upp á ýmsar nýjungar. Rauða ljónið opnað á ný Söng í Top of the Pops Tónlist ÞÓRUNN ANTONÍA ■ Söngkonan Þórunn Antonía gerir það gott í London. Heilsíðumynd birtist af henni í The Face á dögunum og hún söng með dönsku hljómsveitinni Junior Senior í sjónvarpsþættinum Top of the Pops á BBC, en Junior Senior átti topp- lagið á breska vinsældalistanum í ár. THE HONEYMOON Söngkonan Þórunn Antonía og Wayne Murrey skipa dúettinn The Honeymoon en þau hafa nýverið lagt lokahönd á nýja plötu sem inniheldur rólega og þægilega stemningstónlist. Bækur ÞÚ GETUR HÆTT AÐ REYKJA ■ heitir ný bók eftir Guðjón Bergmann sem Forlagið gefur út. Útgáfustjóri Forlagsins útilokar ekki frekari útgáfu á jafn skrýtnum tíma. KRISTJÁN B. OG BÓKIN Kristján B. Jónasson í Forlaginu ætar að prófa að gefa út bók milli jóla og nýárs, sem hann segir vera í fyrsta sinn í sögunni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Fyrsta bókin í áramótabókaflóðinu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.