Tíminn - 23.07.1971, Qupperneq 16
ftbalawar
wfwwfiglSw
Föstud^gur 23. júlí 1971.
3 biskupar
Mikil þátttaka í Kaup-
mannahafnarferð F.R.
á aðeins 7.50Ö krónur
embætta á
Skálholts-
hátíðinni
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
Skálholtshátíðin er á sunnudag-
inn, og verður þá messað í Skál-
holti. Sú athöfn hefst með
klukknahringingu kl. 13,30. Biskup
íslands, herra Sigurbjörn Einars-
son, og séra Sigurður Pálsson,
vígslubiskup, þjóna fyrir altari,
en séra Pétur Sigurgeirsson,
vígslubiskup, prédikar. Er þetta
í fyrsta sinn sem 3 biskupar em-
bætta í einu í Skálholti.
Klukkan 16,30 á ■ sunnudaginn
verður síðan samkoma í kirkjunni.
Þar leikur Haukur Guðlaugsson
og Gunnar Egilsson. Dr. Jóhannes
Nordal, bankastjóri í Seðlabankan
um, flytur ræðu. Séra jGuðjón
Ouðjónsson les úr ritningunni og
fer með bæn, og Skálholtskórinn
syngur.
Farið verður frá Umferðarmið-
stöðinni kl. 11,00 á sunnudags-
morgunn, og til bæjarins eftir
klukkan 18,00.
1 kíló undan
kartöflugrasi
Vaitýr með kartöflurnar 24.
(Tímamynd-Gunnar)
KJ—Reykjavík, fimmtudag.
í dag valt dráttarvél út af vegi í Eyjafirði, og ellefu ára dreng-
ur, sem ók vélinni, lézt.
Dráttarvélarslysið varð um miðjan dag í dag, og var drengur-
inn einn á vélinni. Var hann að aka eftir þjóðvegi í Eyjafirði,
er vélin valt ofan í skurð, og mun drengurinn hafa kafnað í
skurðinum.
Menn komu sköinmu seinna þarna að, og var kallað' á sjiikra-
bíl frá Akureyri, en þegar á Fjórðungssjúkrahúsið kom, reyndist
drengurinn vera látinn. Blástursaðferð var reynd á drengnum á
slysstað og á leiðinni til Akureyrar, en án árangurs.
Ekki hafði náðst í nánustu ættingja drengsins í kvöld, og því
ekki hægt að birta nafn hans, né nafnið á bænum, þar scm
slysið varð.
að líffræðirannsóknum við Mývatn og Laxá, að rannsaka í sam-
vinnu við Orkustofnunina hvaða áhrif afreniislisvatn frá væntan-
legri hitaveitu í Reykjahlíð við Mývatn, og djúpvatn frá Bjarnar-
flagi, kunni að hafa á lífið í Mývatni.
. Á fundi í Veiðifélagi Mý-
vatns, sem haldinn var 14. júlí
var vatnsmál þetta tekið til um
ræðu og samþykkt um það
ályktun. í upphafi ályktunarinn
ar segir að í annað árið í röð
virðist lífið í Mývatni í lág-
marki, þrátt fyrir gott vor og
sumar, og megi því ætla að
mengtin eða önnur utanaðkom
andi öfl, valdi því, hve lífið
í vatninu sé lítið.
Þá fer hér á eftir orðréttur
kafli úr ályktuninni:
„Þar sem ósannað er, að af-
rennslisvatn væntaniegrar hita
veitu sé hættulegre Mývatni
heldur en diúpvatnið, sem
runnið hcfur frá borholunum
í Bjarnarflagi og þaðan í Mý-
vatn, ályktar fundurinn að
Framhald 4 bls. 14
Örfá sæti hafa losnað. Rætt við Kristin Finnboga-
son, formann Framsóknarfélags Reykjavíkur,
um starfsemi félagsins.
Alf-Reykjavík. — TÍMINN
sneri sér nýlega til Kristins Finn-
bogasouar, formanns Framsóknar-
félags Reykjavíkur, og innti hann
eftir því, hvað væri helzt á döf-
inni lijá félaginu.
Sagði Kristinn, að venjulega
færi lítil starfsemi fram yfir sum
armánuðina, en ákveðið hefði ver
ið að efna til tveggja hópferða til
Kaupmannahafnar og gefa félags
mönnum kost á ódýrum ferðum.
Fyrri ferðin er 28. júlí, en sú síð
ari 4. ágúst.
„Fljótlega var upppantað í báð
ar ferðirnar“, sagði Kristinn, „en
vegna forfalla losnuðu örfá sæti
í fyrri ferðinni — og 5 sæti í
þeirri síðari. Ferðirnar fram og
til baka kosta ekki nema 7500
krónur, og skal þeim bent á, sem
áhuga hafa á Kaupmannahafnar
för með Framsóknarfélaginu, að
hafa samband við skrifstofu Fram
F>-amhald á bls. 14
Kristinn Finnbogason, formaðwr
Framsóknarfélags Rðykjavíkur.
Þorkell Grimsson er fremst á myndinni en í baksýn er verið að grafa og maeia út.
Fundu 2 járnnuglu, beina - og
viSwkfhr ká hndnámsöld
SB—Reykjavík, fimmtudag
Tveir járnnaglar, bcin- og viðarleifar hafa fundizt í Uppsala-
grunninum. Fannst þetta í gosöskulagi, srai álitið er að sé síðan
Torfajökull gaus á landnámsöld. Átta manns vinna nú við upp-
gröftinn og verður haldið áfram fram í miðjan næsta mánuð.
Þegar Tíminn skrapp niður í
Uppsalagrunn í dag, var múgur
og margmenni þar í kring og
fylgdist af áhuga með greftr-
inum í gegn um hina rammgeru
girðingu, sem komið hefur ver-
ið upp kring um grunninn.
Innan girðingarinnar eru að
störfum átta manns, Sænsku
fornleifafræðingarnir Bengt
Schönback og kona hans Else
Nordahl, Þorkell Grímsson,
safnvörður og Þóra Magnús-
dóttir, fornleifafræðinemi og
svo fjórir verkamenn. Þorkell
sýndi okkur naglana, sem eru
nokkuð stórir. — Þetta eru
járnnaglar, sagði Þorkell, — en
ekki er gott að segja, hvað þeir
hafa verið negldir í.
Staðurinn, þar sem naglarn-
ir fundust er nyrzt í grunninum,
austarlega og þurfti að grafa
um 2 metra niður á þá. Þarna
eru líka viðarkol og dýrabeina-
leifar fundust skammt frá nögl-
unum. Þá sagði Þorkell að
þarna rétt við virtist móta fyr-
ir einhverjum viðarhlut eða
drumbi. Haldið verður áfram að
grafa á þessum bletti og lengra
niður vestar. — Við erum sann-
færð um, sagði Þorkell, að við
erum hér á stað, sem eitthvað
er upp úr að hafa og væntan-
lega á fleira eftir að koma í
ljós.
Næsta sumar verður grafið
hinum megin við húsið Aðal-
stræti 16, en þar voru gerðar
prufuholur í fyrra og fannst
ýmislegt athyglisvert. Sem
kunnugt er, er talið að land-
námsbær Ingólfs Arnarsonar
hafi staðið á þessum slóðum.
ÞÓ—Reykjavík, fimnitudag.
Valtýr Sæmundsson, sem býr
í Hafnarfirði, á sér lítinn kartföflu
garð eins og margir, og í gær
tók hann fyrstu grösin upp og
undan einu grasinu komu 24 kart
öflur, sem viktuðu 1 kíló.
Að sögn Valtýs, þá lét hann
kartöflurnar fyrst spíra, síðan lét
hann þ er • í mjólkurhyrnur og
iét þær blómstra þar ,upp í 20—
cm. Sáði hann síðan kartöflun-
utn í garðinn þe.nn 10. maí, og
setti ramma utan um garðinn,
síðan lét hann plast yfir ramm-
ann og hafði plastið yfir honum,
þangað til, að grösin voru farin
að vaxa upp í plastið. Svo var
það í gær að hann tók fyrstu
grösin upp, og þá kom þessi
góða uppskera í ljós. Það mun
vera mjög sjaldgæft, ef ekki eins-
dæmi, að svo fljótt og mikið komi
undan einu kartöflugrasi.
11 ára drengur
lézt í dráttar-
vélarslysi
Ályktun Veiðifélags Mývatns:
Vilja láta loka bor-
holunum í Bjarnarflagi
KJ—Reykjavík, fimmtudag
Iðnaðarráðuneytið hefur falið sérfræðingum þeim, sem vinna
Naglarnir, sem fundust vi3 upp-
gröftinn.