Tíminn - 11.08.1971, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.08.1971, Blaðsíða 1
KISTUTt * 3CbJmx£iLcijxAAéJLctA* ft-f RAF7ÆKJAUEILD, HAFfJARSTRÆTl 23, S 178. fbL — Miðvikudagur 11. ágúst 1971. — 55. árg. SAMVIHNUBANKJNN ÁVAXTA? SPARIFÉ YÐAR MEÐ HÆS! U VÖXTUM Landbúnaðarráðherra vígði kornturnana í gær MASS DÆLT I FYRSTU ÚR SKIPI í TURNANA EB—Reykjavík, þriðjudag. • Kornturnar Kornhlöðunnar h.f. við Sundahöfn í Reykjavík voru formlega teknir í notkun kl. 17.30 í dag með því, að Halldór E. Sig- urðsson, landbúnaðarráðherra, kveikti á korndælu, sem dælir korn inu úr skipi inn í turnana. • Fjöldi gesta var viðstaddur vígsluna er fór fram í m.s. Brúar- fossi, en í skipinu voru rösk 700 tonn af maís frá Ameríku, sem er fyrsti farmurinn, sem tekið er á móti í korngeymana. Stjórn Kornhlöðunnar h.f. hélt í tilefni vígslunnar fund með frétta mönnum og kynnti þeim fram- kvæmdir við byggingu kornturn- anna og annað í sambandi við starf- semi fyrirtækisins, en sæti eiga í stjórninni þeir Hjalti Pálsson, fram kvæmdastjóri Innflutningsdeildar SÍS, og er hann formaður stjórnar, Leifur Guðmundsson framkvæmda stjóri Mjólkurfélags Reykjavíkur og Hjörtur Jónsson framkvæmda- stjóri Fóðurblöndunar h.f. — en eins og flestum mun vera kunnugt stofnendor og Muthafar að jöfnu: FóðurWandan hf. Mjólktrr- félag Rvíkur og Samband ísl. sam- vmnufélaga. Myndin er tekm þegar kornturnamlr voru vfgðlr f gær. Á myndinnl sfást mja., f!h. HJortor Hiartar, forstfórl Skipadeildar SÍS, Ingóffur Jónsson, fyrrverandi landbúnaSarráðherna, Eysteinn Jónsson, fyrrverand! ráðherra og Haildór E. Sigurðsson, landbúnaðarráðherra. (Thnamynd Gunnar) Alfreð Þorsteinsson Alfreð Þorsteinsson tekur sæti í borgarstjórn IGÞ—Reykjavík, miðvikudag. f bréfi til borgarráðs í dag sagði Einar Ágústsson, utanríkis- ráðherra af sér störfum borgar- fulltrúa vegna annarra starfa. Við sæti Einars í borgarstjóm tekur Alfreð Þorsteinsson, blaðamaður, set* verið hefur varamaður í borg arstjóm. AllTe'ð er yngstur þeirra fuiltrúa sem sæti eiga í borgar- stjórn. Hann er tuttugu og sjö ára gamall. Halldór E. Sigurðsson, landbúnað- arráðherra, flytur ræðu sína vlð vígsluathöfnina I gær. Kornturnarnir eru I baksýn. Bílaumferð yfir Flosagjá lögð niður -»0—Reykjavík, þriðjudag. Framkvæmdir við vegalagningu á Þinigvöllum, innan þjóðgarðsins, hefjast í næstu viku. Verður lagð- ur nýr vegur á hálfs annars km kafla. Á bílaumferðin að færast vf Völlunum austur á hraunið, iustur fyrir Folsagjá, sem sumir eru farnir að kalla Peningagjá. Nýi vegurinn kemur inn á núver- andi veg milli brúarinnar á Flosa- gjá og heimreiðarinnar við Val- höll. Ekki þarf að brúa gjána að nýju, því hún er ekki opin þar inn frá Framhald á bls. 14. MOKA HÖRPUDISKINUM UPP MEÐ NÝJUM VEIDARFÆRUM Verzlun meS fóSurvöfu í rsl. höndum Tilgangur félagsins er að reisa og reka kornturna við Sundahöfn og annast losun, lestun og geymslu á korni ásamt innflutningi og verzl un með kornvöru til kjarnfóður- framleiðslu. Þeir aðilar sem standa að félaginu, hafa á nndanförnum áratugum haft á hendi megnið af fóðurkornsinnflutningi landsins sem og kjarnfóðurframleiðslu úr korni og öðrum hráefnum, erlend- um og innlendum. Stofnun Korn- hlöðunnar hf. er hugsuð sem skref í þá átt að leggja grundvöll að nú- tíma hagkvæmni um rekstur og Framhald á bls. 3 KK—Blönduósi, þriðjudag. Um hádegisbil í dag kom vél- báturinn Hrímnir frá Bolungarvík að bryggju á Blönduósi, en bát- urinn hefur undanfamar vikur verið að ranns. skelfisksmið fyr- ir Norðurlandi og allt austur á Stöðvarfjörð og hefur Hrafnkell Eiríksson, fiskifræðingur stjómað þessari leit. Síðan á föstudaginn var hafa þeir félagar prófað nýja gerð veiðarfæra við hörpurisks- veiðar hér á Húnaflóa, er Einar Guðmundsson, útgerðarmaður á Höfðakaupstað keypti til landsins fyrir nokkru og voru nú reynd í fyrsta sinn. Sýndu veiðarfæri þessi frábæran árangur. Skelfisksplógur þessi eða skafa er smíðuð á eynni Mön, en þar umhverfis eru skelfiskveiðar stundaðar í stórum stíl. Fram kom í viðtali við Hrafnkel Eiríksson, að verulegt magn er af hörpudiski í Húnaflóa og má segja að samfelld mið séu frá Króks- bjargi og inn undir Blönduóss- bryggju, og með þessu nýja tæki gæti verið um hreina byltingu að ræða í sambandi við hörpudisks- veiðarnar. Guðmundur Rósniundsson, skip- stjóri á Hrímni, taldi árangurinn með þessu nýja veiðarfæri frábær an, og væri nú jafnvel möguleiki á að ná sama magni af hörpdiski á einni klukkustund og áður tók sólarhring að veiða. Tveir megin- kostir þessa plógs fram yfir eldri gerðir, telur Cuómundur að séu, að hægt er að fiska í misjafnari botni og að upp kæmi hreinni skel. Guðmundur þakkaði Einari ^uð- mundssyni, útgerðarmanni, mikinn dugnað og framsýni við innkaup á þessum veiðarfærum til lands- ins. Framhald á bls. 14. Nýjl hörpudlckaplógurinn sem nvargfaldaðl veiðina I Húnaflóa. Við hann stendur skozkur skipstjóri, sem var með I veifiiför Hrimnis, og leiðbeindi við notkun veðarfærislns. (Tímamynd KK)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.