Tíminn - 11.08.1971, Side 8

Tíminn - 11.08.1971, Side 8
3 ...... .... ■■■■■ i ........ Cristján Ingólfsson: TÍMINN —----—--- MIÐVIKUDAGUR 11. ágúst 1971 Austfirskir bændur þinga á Hallormsstað FJÖLGA ÞARF í SVEITUM Hjaltastaðaþingháin nefndist áður Útmannasveit. Hún liggur að og upp frá Héraðsflóa aust- anverðum. Þar er sagður fyrst- ur landnámsmaður, Uni hinn •*M\ski. Þúsund árum seinna hyggði meistarinn Kjarval hús sitt þar í sveit og sigldi snekkju sinni niður Selfljótið. í Hjalta- staðaþinghá er náttúrufegurð rómuð. Yfir sveitina gnæfa Dyr fjöllin og þar er Hjaltastaðablá in, sem Ásgrímur Jónsson gerði að 1-staverki. Þaðan úr sveit var ofan á allt þetta ein- hver frægar.ti draugur íslenzkra sagna, vottfestur af þremur prestum og einum sýslumanni, sem óskiljanlegt veraldarund- ur. í Hjaltastaðaþinghánni var áður fjölmenni á íslenzkan mæli kvarða, félags og menningarlíf. Á síðari árum hefur hinsvegar fólk flutt burtu. Við náðum hér Sævar Sigurbjarnarson f oddvita þessarar merku sveit- ar, Sævar Sigurbjarnarson, bónda á Rauðholti. — Hvernig gengur búskapur- inn í Hjaltastaðaþinghá, Sævar? — Hann gengur vonum bet- ur vil ég segja. Eftir það, sem ég vil kalla óyfirstíganlega örð- ugleika. I sambandi við búskap f Hjaltastaðaþinghá dettur manni fyrst og síðast í hug kalið. Kalið herjaði þar á alla ræktun, svo að gömlu túnin skil- uðu ekki hálfri uppskeru á s.l. ári. — Var s.l. vetur betri? — Já, já, hann bjargaði 6- trúlega miklu. Gripir hraustir og það litla fóður, sem náðist í fyrra gott og kornverð við- ráðanlegt, svo við gátum að nokkru vegið upp heyjatapið með því að stefna að miklum af- urðum. — Hvernig heppnaðist sauð- burður? — Hann heppnaðist vel, að slepptu þó lambaláti, sem nokk- uð bar á. 1 sambandi við þessi tvö atr- iði vil ég leggja á það áherzlu, að ég tel að Bjargráðasjóði beri í ríkara mæli að koma til móts við þá, sem verða fyrir afurða og uppskerutjóni. —Hvað álítur þú vera erf- Iðasta andstreymi bændastétt- arinnar í dag? — Það hefur stundum sótt að mér sú hugsun að mesta hagsmunamál strjálbýlisins sé að fjölga sveitafólki án þess að fjölga bændum í hefðbundn- um skilningi. Það er að færa þjónustustörf út í sveitirnar og efla nýjar búgreinir, og er mér fiskiræktin þar ofarlega í huga. Því satt að segja hygg ég það að mestu ókannað máL LÆKNAÞJÚNUSTAN GETUR — Hvað ui ^ landbúnaðar- framkvæmdir í Múlaþingi á sl. ári Páll? — Já, hvað ræktunarfram- kvæmdir snertir, þá hefur orð- ið samdráttur í nýrækt og end- nrrinnslu tftna. VARLA MINNI VERIÐ Og aö siðustu þetta: Bænda- stéttin er í seuninni í úlfa kreppu. Það þýðir ckki að kalla á aukið og ódýrt fjármagn á landbúnað, ef við vitum ekki áhveðið hvað við ætlum að framleiða, og höfum ekki tryggt að vinnulaun bænda aukist í sama hlutfalli. Alla vega þarf að endurskipuleggja lánapóli- tíkina. KJARNINN OG GYLFI. í Narðvík er krossinn helgi. Síðan skömmu eftir 1300 hef- ur heilagur kross haldið vernd- arhendi sinni yfir þeim sem um þessar bröttu og grýttu skriður hafa farið. Og í Njarðvík hefur jafnan verið vel búið. Annar núverandi bænda þar er Bjöm Andrésson. Við innt- um hann sagna af högum Borg- firðinga. — Heyleysi hefur háð okk- ur undanfarin ár, segir Björn. í fyrra var þó lítið kal, og heyskapur eiginlega ágætur. í vor var útlitið alveg sérstaklega gott, en nú hafa kuldar hins- vegar hamlað sprettu. Um þeirra má getá þéss,' áð eihs-‘- dæmi má telja, að við seldum frá okkur hey í fyrrasumar. Nú, hvað búskapinn að öðru- leyti snertir, þá má segja að hér sé fyrst og fremst sauðfjár- bú^kapur. Nautgriparæktin er sáralítil, og það svo að við Borg- firðingar flytjum mjóik frá Egilsstöðum án þess að flytja nokkuð þangað í staðinn. — Þið stundið þá fyrst og fremst sauðfjárrækt Hvað um afréttir? — Þær hafa aukizt að mikl- um mun síðan vikurnar sunnan Borgarfjarðar fóru í eyði. Ann- ars eru miklir ræktunarmögu- leikar ónytjaðir í sveitinni. — En, er búskapurinn í Borgarfirði að dragast saman þessi árin? — Já, frekar en hitt, og út- litið bendir til enn frekari sam- dráttar. — Nú, en þetta er sveit með ónytjaða möguleika, og samt dregst búskapurinn saman. Hvað veldur? — Það eru náttúrulega þessi harðæri sem vorn, og afleiðing- ar þeirra. Svo er það bara fólksfæðin í sveitinni, hún veld ur því m.a. að unga fólkið sezt ekki að heima. Orsakirnar fyrir því eru nú reyndar fleiri, svo sem skólamálin, atvinnuskipt- ingin. Fólksfæðin veldur því m.a. að það fólk giftist ekki sem heima situr, og afleiðingin verð- ur sú, að byggðin deyr út á jörðum með þessura einstakl- ingum. -- Er Borgarfjörður að þín- um dómi einangrað byggðar- lag? — Já, afskekkt að minnsta kosti. Það veldur því náttúrlega mikið hvað vegasamgöngur eru slæmar þangað. Vegurinn yfir Vatnsskarð og Njarðvíkur skrið ur er svo illa uppbyggður að hann er oftast ófær í fyrstu snjó um, og lítill áhugi fyrir því að halda honum opnum yfir sum- arið. — En þetta er nú samt ykkar læknisleið. Hvernig gengur með það? — Egilsstaðalæknar eiga að hafa þarna ákveðna daga, og það gengur náttúrlega betur af því að þeir hafa snjóbíl til ferðalaganna. — En vikjum aftur að bú- skapnum, Björn. Hvað álítur þú, að sé nú mesta hagsmuna- mál bændastéttarinnar í dag? — Ég hygg að lánamálin mættu vera hagstæðari, sér- staklega fyrir þá, sem ætla að kaupa vel uppbyggðar jarðir og bústofn. Og finna þarf ráð til ' öruggari og ódýrari fóðuröfl- unar handa búpeningi. Það er stórmál, sem leysa þarf í ná- inni framtíð. Og einhvemveg- inn þarf að finna öruggari mark aðsleiðir. — Og að lokum, Björn? — Já, ég vil þá leyfa mér að mæla fyrir hönd okkar Borg- BOÍÍ68I9' 2. GREIN firðinga og segja að lokum þetta. Það, sem hefur angrað okkur í búskapnum á undanförnum árum er, kuldinn, kjaminn og Gylfi. — Nú er Gylfi úr leik, Kjarninn sennilega á næsta ári, og vonandi fer hlýnandi eftir því sem fleiri geimför og gerfi- hnettir fara á loft. Samgöngumál okkar Borgfirð- inga mætti bæta að miklum mun t.d., með nýrri höfn við Hafnarhólma, með því að brúa lækina í Njarðvíkurskriðum og með því að breikka veginn þar og víðar, með því að hækka veginn yfir Vatnsskarðið að miklum mun og byggja yfir hann í Vatnsskarðsbrekku, sem einnig er nefnd Sprengi- brekka. Þá þyrfti og að steypa lag á flugvöllinn. Atvinnumálastefna hrepps- yfirvalda hefur verið sú að koma sem flestum að heiman til atvinnu t.d. á vertíð, en sára- lítið gert til að auka atvinnu heima fyrir. Verzlunarmálin þyrfti að bæta með því að auka vöru- val. Læknaþjónusta getur varla minni verið. Fræðslumál hafa farið batn- andi, en þó er margt er bæta mætti í þeim efnum. Bankaþjónusta engin. Verði ekki gerðar róttækar aðgerðir í þessum málum nú á næstu ár- um þá má búast; við sveitar- auðn í Borgarfirði eystra. Svo “mæltiát’ Birni ‘b'óhda í Njarðvík, og enginn vafi leik- ur á, að hér er talað úr sveit þar sem ástæðurnar gefa tilefni til alvarlegra orða. OF MIKIL NOTKUN TILBU INS ÁBURÐAR. Á aðalfund Búnaðarsam- bands Austurlands koma starfs- menn sambandsins og gefa skýrslur sýnar og eru til ráðu- neytis. Við finnum hér að máli Pál Sigbjörnsson, ráðunaut. Þessi samdráttur er veruleg- ur. Var á s.l. ári 371 hektari, en ’69 — 585 og þar á undan 740 ha. Þetta á við um nýræktina. — Hvað veldur? — E.t.v. eru bændur hikandi við að leggja í nýrækt vegna kalskemmda. Vegna erfiðs ár- ferðis síðustu árin, þá hafa bændur haft örðugari aðstöðu til allra framkvæmda. — Hefur kal verið meira hér en í öðrum landshlutum? — Það byrjaði fyr, og á norð- ur hluta svæðisins er það eins slæmt og verstu svæðin ann- arsstaðar. — Og stöndum við alla tíð Björn Andrésson jáfn ráðalausir gagnvart kalinu? — Nei, ekki alveg. Við þekkjum ástæðuna fyrir kal- inu að nokkru leyti. — Og hverjar eru þær? — Jú, þær erlendu grasfræ- tegundir sem eru á markaði lifa ekki hérlendis nema þar sem Framhald á bls. 12. Stjórn Búnaðarsambands Au,'*,,'<ands: Snæþór Sigurbjörnsson, form. Guttormur Þormar, Sipurjón FriSrikssor Sigurjón SigurSur Lárusson, Steinþór Magnússon,

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.