Tíminn - 11.08.1971, Blaðsíða 10
T f
TIMINN
MIÐVIKUDAGUE 11. ágúst 1971
HALL CAINE:
GLATAÐI SONURINN
40
mála landshöfðingjanum og vil
þakka Guði fyrir að storminn hef-
ur lægt og að nú er sigling greið.
Óskar er guðsonur minn og nú er
hann orðinn sonur minn, einskis
hetra hefði ég getað óskað mér“.
Gestirnir gerðu góðan róm að ræðu
faktorsins, svo hélt hann áfram og
sagði: „Það er heilladrýgra að
efna lítið loforð, en gleyma hin-
'um stóru, ég ætla nú að standa
vjð dálítið, sem ég lofaði, þegar
trúlofunarveizlan var haldin, þó
sum ykkar geri kannski ekki ráð
fyrir, að skoðun mín sé sú, að
ungt fólk eigi að njóta æsku sinn-
ar, þá er það nú samt sannfær-
ing mín, einhvem veginn tókst
mér að glutra niður gæfu minni,
mitt lff hefur verið samfellt strit,
sama má segja um landshöfðingj-
ann, við höfurn hvorugir unnt
okkur hvíldar né skemmtunar um
dagana, en nú ætlum við báðir
að snúa íbaki við snjó og harð-
indum og sjá suðlæg lönd, já, í
elli okkar ætlum við að skoða
heiminn, og það ætlum við að
gera í gegn um augu barna okkar,
við ætlum ekki að horfa í kostn-
aðinn, ef Óskar vill vera svo
vænn að lyfta upp diskinum sín-
um, mun hann finna olíuna sem
þarf til að smyrja hjól farartækj-
anna.“ Óskar tók upp ávaxta-
diskinn sinn, undir honum voru
tvær ávísanir. Þegar fólkið var
enn búið að skála þá reis Ósk-
ar upp, fólkið hafði aldrei fyrr
séð hann svo fölan, taugaóstyrk-
ann og alvarlegann, hann sagði:
— Ég þakka landshöfðingjan-
um og faktornum hinar rausnar-
legu gjafir. . . ég þakka ykkur
öllum fyrir að heiðra okkur með
því að koma hingað í brúðkaups-
veizluna það er yndislegt að vera
umkringdur fólki sem maður hef-
ur þckkt alla ævi. í einni fom-
sögunni segir leitaðu l.venfangs
meðal vina þinna“ það má segja
að ég hafi fundið mína konu í
fjölskyldu minni. Ég vona að þess
ir tveir ættarmeiðir sem hafa
sameinazt í morgun megi aldrei
skiljast. Ég vil líka þakka biskupn
um fyrir hin viturlegu og hlýlegu
orð sem hann mælti við vígsluna
í morgun. Ég veit að ástin er
hinn eini rétti grundvöllur fyrir
traustu hjónabandi og það vona
ég að hjónaband okkar Þóru
verði. Ég elska konu mina ekki
eins heitt og hún á skilið það er
ekki hægt en ég vonast til að
ást min verði eins og Þóra verð-
skuldar þegar tímar líða og að
ekkert freisti mín til aö reynast
henni ekki sem sannur maður. Vel
veit ég, að ég verðskulda ekki þá
góðu stúlku sem hefur geíizt mér
í dag en ég mun reyna að láta
hana aldrei iðrast þess. í annari
fornsagna okkar stendur; Fyrir-
gef ávallt galla konunnar“ en í
þessu tilviki á betur við að stila
þessi orð upp á manninn ég get
aðeins beðið Guð um að hjálpa
mér til að lifa þannig að konan
mín þurfi ekki að fyrirgefa mér
of margt“;
Þegar Óskar hafði lokið ræðu
sinni fannst öllum karlmönnun-
um að ræða hans hefði verið til-
gerðarleg og langsótt en hver ein
asta kona átti þá ósk heitasta að
kyssa hann. Þóra þurrkaði sér um
augun en svipur hennar var samt
glaðlegur.
Margrét frænka kajlaði til henn-
ar:
— Frú Stefánsson þér er holl-
ast að haía gætur á manni þínum
annars tekur einhver hinna ungu
kvenna hér hann frá þér.
Mörg fleiri minni voru drukkin
að lokum mælti rektor fyrir minni
brúðai-meyjanna, hann brá á glens
og sagði:
Fólk segir að misjafnt sé að
kyssá konur um það get ég ckk-
ert sagt þar sem ég er gamall
piparsveinn en þessi ungi mað-
ur sem situr mér á hægri hönd
og má tel.iast einn glæsilegasti
maður landsins — rektor benti á
Níels Finsen — hefur trúað mér
fyrir því að honum lítisf svo vel
á eina brúðarmeyna að ef hann
hefði vcrið í Óskars sporum hefði
hann flutt til Austurlancla til áð
geta kvænst báðum dætrum fakt-
orsins. — Allir hlóu og litu á
Ilelgu sem hafði ekki haft aug-
un af Óskari á meðan setið var
til borðs. Þóra leit Hka til systur
sinnar og mundi nú eftir þeirri
yfirbót sem hún hafði haft í huga
til að bæta fyrir tortryggnina í
garð systur sinnar. Þóra var nú
óumdeilanlega drottning dagsins
og taldi stundina því komna til að
konia fram vilja sínum hún reis
á fætur og lagði handlegginn
feimnislega um háls föður síns
og hvíslaði einhverju að honum.
Faktorinn varð alvarlegur á svip-
inn og sagði:
— Hvað segir Óskar um það?
— Óskar samþykkir þetta áreið
anlega — sagði Þóra og laut aft-
ur að föður sínurn og hvíslaði ein-
hverju að honum.
— Ja ég geng ekki á gefin
heit en þú verður að spyrja Ósk-
ar — sagði faktorinn.
Þóra roðnaði og gekk til Ósk-
ars og hvíslaði einhverju að hon-
um Óskar varð alvarlegur og
spurði:
— Þóra ertu viss um að þú
viljir þetta raunverulega?
— Já, áreiðanlega, sagði
Þóra hún var orðin eldrauð og
allir horfðu á hana.
— Við skulum tala um þetta á
mo>'gun — sagði Óskar.
— Nei núna — sagði Þóra.
— En það er ekki víst að
Helga... — sagði Óskar þegar
Helga heyrði nafn sitt nefnt
spurði hþn.
Hvað enið þið að pískra um
mig.
er miðvikudagurinn
11. ágúst
Árdegisháflæði í Rvík kl. 09.34.
Tungl í hásuðri kl. 05.11.
HEILSUGÆZLA
Slysavarðstofan I Borgarsoítalan
ttm er opin aUan sólarhrbiginn
Simi 81312.
Slökkviliðið og sjíikrabifreiðir fyr
tr Reykjavfk og Kópavog sfm'
11100
SJúkrabifreið i Bafnarfirði «lml
51336
rannlæknavakt er 1 Heilsuvemdar
stöðinnl. þar sem Slysavarðsioi
an vai, og er optn laugardaga o<
sunnudaga kl. 5—6 e. h. — Sim
22411
álmennar applýslngar um lækna
þjóniistn i borginnl eru gefnar
simsvar# l.æknafélags Reykjavik
ar, stmi 1888ÍJ
/Vpötek Uafnartjarðar ei opið al1
virka dag trá Si 9—1. a laugar
dögum kl 9—2 oe a nmnudba
utn og ððrum neisirióyum er op
■T> trí fcl i—4
Nætur- og helgidaeavgrzla lækna
Neyðarvakt:
Mánudaga — föstudaga 08.00 —
17.00 eingöngu i neyðartilfellum
sími 11510.
Kvöld-, nætur og belgarvakt.
Mánudaga — fimmtudaga 17.00
— 08.00 frá “I 17.00 föstudag til
fcl 08 0P mánudag Sími 21230
Kvöldvarzla apóteka í Reykjavik
annast Laugarnessapótek og Ing-
ólfsapótek.
Næturlæknir í Keflavík vikuna
10. — 16. ágúst:
11. —12. ágúst Jón K. Jóhannsson.
FLUGAÆTLANIR
Loftleiðir h.f.:
Snorri Þorfinnsson er væntanlegur
frá NY kl. 0700. Fer til Luxem-
borgar kl. 0745. Er væntanlegur til
baka frá Luxemborg kl. 1600. Fer
til NY kl. 1645.
Eiríkur rauði er væntanlegur frá
NY kl. 0800. Fer til Luxemborgar
kl. 0845. Er væntanlegur til baka
frá Luxemborg kl. 1700. Fer til
NY kl. 1745.
Þorfinnur karlsefni ef væntanlegur
frá NY kl. 0900. Fer til Luxem-
borgar kl. 0945. Er væntanlegur til
baka frá Luxemborg kl. 1800. Fer
til NY kl. 1845.
Leifur Eiríksson er væntanlegur
frá NY kl. 1030. Fer til Óslóar,
Gautaborgar og Kaupmannahafnar
kl. 1130.
ÁRNAÐ HEILLA
70 ára er í dag frú Kristjana Guð
mundsdóttir, starfsmannahúsi
Kópavogshælis. Hún verður stödd
á heimili dóttur sinnar Klettagötu
4 Hafnarfirði, laugardagskvöldið
14. ágúst.
SIGLINGAR
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla kemur til Rvíkur í fyrramál-
ið að vestan úr hringferð. Esja er
á Isafirði á norðurleið. Herjólfur
er í Vestmannaeyjum.
Skipadcild S.Í.S.:
Arnarfell fór í gær frá Borgar-
nesi til Norðurlandshafna. Jökul-
fell fer væntanlega á morgun frá
New Bedford til Rvíkur. Dísarfell
er á Dalvík, fer þaðan til Húsavík-
ur og Kópaskers. Litlafell fer í dag
frá Reykjavík til Austfjarðahafna.
Helgafell væntanlegt til Murmansk
á morgun, fer þaðan til Köping í
Svíþjóð. Stapafeli fer frá Akureyri
í dag til Rvíkur. Mælifell fór í
gær frá Hamborg til Gdynia.
GENGISSKRANING
Nr. 102 — 10. ágúst 1971
1 Bandar. dollar 87,90 88,10
1 Sterlingspund 212,60 213,10
1 Kanadadollar 86,45 86,65
100 Danskar kr. 1.172,70 1.175,36
100 Norskar kr. 1.237,40 1.240,20
100 Sænskar kr. 1.704,04 1.707,90
100 Finnsk m. 2.101,90 2.106,68
100 Franskir fr. 1.595,20 1.598,80
100 Belg.fr. 177,10 177,50
100 Svissn. frankar 2.161,80 2.166,70
100 Gyllini 2.512,80 2.521,30
100 V.-þýzk mörk 2,572,10 2.580,80
100 Lírur x 14,14 14,18
100 Austurr. seh. 353,60 354,40
100 Escudos 308,80 , 309,50
100 Pesetar 126,27 126,80
100 Reikningskrónur —
Vöruskiptalönd 99,86 100,14
1 Reikningsdollar —
Vöruskiptalönd 87,90 '8,10
1 Reikningspund —
Vöruskiptalönd 210,95 211.45
RIDG
Á HM á Formósu kom þetta spfl
fyrir:
4 ÁKG76
¥ ÁD8
4 K 2
* G 3 2
A 8532 A D 10 4
¥ K G ¥ 10 3
♦ Á 7 ♦ D 9 8 63
* ÁKD96 * 10 7 4
A 9
¥ 976542
4 G 10 5 4
A 85
Þegar bandarísku sveitirnar spil-
uðú saman opnaði N — Don Krauss
— á 1 sp. er var passað til V —
Bobby Wolff. Hann sagði 2 L. N
doblaði og S — Lew Mathe stökk
í 3 hj. í S, sem hæklcuð voru í 4.
Dallas-ásinn í V spilaði út L-Ás og
tók síðan L-K, og fann nú einu
vörnina til að gera spilið erfitt —
spilaði T-7. Mathe gat á engan hátt
vitað hvað hann átti að gera —
hann varð jú að reikna með að
V ætti Hj-K annars var spilið von-
laust — og hann áleit að V hefði
sagt sterkar á spilin einnig með
T-Ás. Hann lét því lítið úr blind-
um og vörnin fékk tvo T-slagi.
„Finnst þér, að þú sért með næg
spil fyrir 3 Hj. sögnina", sagði
Krauss eftir spilið. „Næg“, svar-
aði Mathe. „Ég átti of mikið — án
T-G hefði ég alltaf unnið spilið“.
A skákmóti í ár í Hannover kom
þessi staða upp milli Degenhardt
og Krull, sem hefur svart og á
leik.
ABCDEFGH
03
•O
03
Ol
03
(3
1 g « M
gg á 8* g§
afwfiá81
co
e»
eo
«o
eo
C4
ABCDEFGH
16.--Bh3! 17. Rxd5 — Rf5f
18. Khl — Df7 19. RxRf — BxR
20. De2 — Dh5 21. Bxf3 — e4xf3
22. De4f — Kh8 23. Hel — He8
24. Bf4 — HxB 25. DxH — Bg5.
Vinnur drottninguna eða mát. Hvít
ur gafst upp.
HIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIMIIIIIIIIIIItlllKllltMIIIIIIIIMIMIttllHMIimnillinilHIIIUIIIIIIIIItlllliiililiililllllllllM illlllltltlllllllttllllllllllllllllllllllllitiiiitlitilllltltlllltllllllflfllllltllltlllillllllltllltltlltilllllltiltlKllllllllllllllllltlllltllllllllllliiiiiinn
Taklu upp byssur þeirra. Svo er rétt, að
þeir segi mér, hvar þcir hafa falið Arn-
arklóna, svo ég gcti tckið liaiin fastann.
— Ég skal segja þcr það'. Hann cr í
Indiánaþorpinu. — Aruarklóin cr að rcyna
að bjarga lífi Dádýrshorns höfðingja, scm
bufflarnir slösuðu með hornuni sínum.
— Þess cr ekki þörf. því Indíánarnir hafa
sinn ciginn lækni, Úlfsaugað. — Úlfs-
augami hcfur ekki tekizt að lækna
höfðingjann. — Mér stendur á sama um
það. Mitt verk er aðeins að handtaka
ínanninn, sem nefndur er Arnarkló á
liandtökuskipuiiinni, sem ég cr hér með,
og það skal ég gera þegar í stað.
•IMMtMMIHtlMtltMMMMIMIllttllMMtMtMtlMMMIMIMIIJIMMIMIIIMIIIMMIIMItllllllltllllllllllllll III t III lllll II llllllllill II llllll 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 lll llMlillllllllllllllMIMtlllllllllllllllllllllllllMllMIMMnilif