Tíminn - 11.08.1971, Page 16

Tíminn - 11.08.1971, Page 16
Reynir Leósson ætlar aS brjótast út úr rammgerum fangaklefas 7 -1 Slítur af sér fjötr- ana með óþekktu afli Miðvikudagur 11. ágúst 1971. FORSETA- HEIMSDKN- INNILÝKIIR ÞÓ—Reykjavík, þriðjudag. Forsetahjónin Kristján og Flalldóra Eldjárn eru enn í heim sókn á Austurlandi. í dag höfðu þau viðdvöl á Brcið- dalsvík, Djúpavogi og komu til Hafnar í Hornafirði í kvöld. f gærkvöldi höfðu for- setahjónin viðkomu á Stöðvar- firði, en sl. nótt gistu þau á Staðarborg í Breiðdal. Forsetahjónin komu til Stöðv- arfjarðar um kl. 18 í gær. Á landamerkjum Fáskrúðsfjarðarhrepps og Stöðvarfjarðarhrepps tóku oddviti Stöðvarfjarðar, hrepps- nefnd og eiginkonur þeirra á móti þeirn. Þar á merkj- unum var forsetafrúnni færður blómvöndur, en síðan var ekið af stað inn á Stöðvar- fjörð, þegar kom að brúnni við þorpið, var búið að gera þar skrauthlið og börn stóðu þar með íslenzka fána og náði röðin alveg upp að skólahúsinu. Við skólahúsið ávarpaði Guðmundur Björnsson > framkvæmdastjóri forseta, en forseti svaraði með ávarpi. Á eftir gekk forsetinn um á meðal fólksins og rabbaði við það. Síðan bauð hreppsnefnd in til kvöldverðar, þar ávarp- aði Bjöm Kristjánsson oddviti forsetahjónin, en forsetinn þakk aði. Þegar kvöldverði var lokið, Framhalc á bls. 14 H OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Reynir Lcóson er þjóðkunnur B maður síðan hann sýndi ótrúlega ■ krafta sína og getu til að leysa ■ sig úr ramgerum fjötrum í sjón- _ varpinu ekki alls fyrir löngu. Voru tilþrif Reynis svo röskleg “ að fólk sem á horfði trúði vart ■ sínum eigin augum og hefur marg ■ ur haft á orði að þetia sé í raun- ™ inni yfirnáttxiruiegt, og mun það mála sannast að því er Reynir " segir sjálfur. En kraftajötunnnm ■ á enn eftir að sýna getu sína, og B mun einhvern næstu daga láta H fjötra sig með sex handjámum, _ sem gerð eru úr hertu stáli við 1 stálstiga og ætlar hann að losa ® sig af eigin rammleik. Þá mun B Reynir á næstunni freista þess g að brjótast út úr fangaklefa. Verð _ ur hann handjárnaður áður en hann verður lokaður inni í klef- " anum. Verður þetta hvorutveggja H kvikmyndað og sýnt víða um heim. B Nú má ætla að ekki sé mikill ™ vandi að brjótast út úr fangaklefa á fslandi, enda virðist nær hvaða 1 strákur sem vill leika það eins og H dæmin sanna. En þess ber að B geta að strokfangar hafia farið úr n fangelsum, sem löngu eru orðin úrelt og alls ekki mannheld. Reyn " ir ætlar aftur á móti að láta loka ■ sig inni í rammbyggðum klefa, B annaðhvort í nýju fangagcymsl- m unni við Snorrabraut eða í fanga- geymslu á Keflavíkurílugvelli. “ Eru á báðum stöðunum traustir ■ klefar, sem engu venjulegu fólki fl dytti í hug að reyna að komast iy út úr sé þeim á annað borð lokað. _ Reynir siagði Tímanum, að dóms málaráðherira væri búinn að gefa H vilyrði sitt til að hann fengi að B spreyta sig á að komast út úr B fangelsi oig yrði klefi látinn í té í þeim tilgangi. Verður tekin sjónvarpskvikmynd af atburðinum, sem vætanlega verður sýnd hér en aðallega er ieikurinn gerður fyrir erlendan markað. Munu lög- reglumenn sjá um að járna Reyni og loka tryggilega á eftir hon- Næstu daga, eða áður en hann brýzt út úr klefanum, ætlar hatm að þreyta aðra raun. Hann ætlar að láta hlekkja sig við járnstiga með sex handjárnum á höndum og fótum og binda sig með keðju líka við stigann. Úr þessu ætlar hann að losa sig á nokkrum mín- útum. Segist Reynir ekki efast um að þetta gangi vel. Hefur þú æft mikið undanfarið? — Þessi atriði eru alveg óæfð, en ég er tilbúinn að fara í þetta tafarlaust. Ég hef ekki reynt að láta loka mig inni til að brjótast Framhald á bls. 14. um. Það er sama bve rammlega Reytrh- Leóson er bondinn. Hann losar sig avSveldlega úr ötlum fjötrum. ANÆGÐ YFÍR ELLÍLAÍÍNAHÆKKUN SB—OÓ—Reykjavík, þriðjud. Gamla fólkið sem sótti elli- lífeyrinn sinn í dag fékk 20% hærri upphæð í hend- ur en það fékk er það sótti lífeyrinn síðast. Stafar það af bráðabirgðalögum ríkis- stjómarinnar um að lagðar skuli fram 170 millj. kr. til hækkana tryggingabóta síð- ustu fimm mánuði ársins. Hækkaði ellilífeyrinn um 980 kr. fyrir einstaklinga og 1764 kr. fyrir hjón. A fimmtudaginn verður byrjað að borga út örorkubætur og fá ör- Ragnheiður GuSmundsdóttir yrkjar þá einnig 20% hærri upphæð. Sama dag verður byrj að að borga út barnalífeyri og meðlög, sem hækka um 40%. Örorku- og ellilífeyrir hækk- ar nú til einhleypinga úr kr. 4.900,00 í kr. 5.880,00 á mán- uði og til hjóna hækkar ellilíf- eyririnn úr kr. 8.820,00 í kr. 10.584. Þeir, sem fá ellilíf- eyri eru nú nær 15 þúsund manns og hátt á 4. þús. öryrkjar fá bætur Auk hækkunar bót- anna ákvað ríkisstjórnin að enginn bótaþegi hafi minna en kr. 7.000,00 á mánuði, þannig að þeir sem ekki hafa aðrar tekjur en elli- og örorkulífeyri fá greiddan mismun sem þessu nemur. Tíminn hafði í dag tal af nokkrum bótaþegum, sem voru að koma út úr Tryggingastofn- uninni eftir að hafa náð í ellilífeyrinn. Kom þeim öllum saman um að talsverður mun- ur væri að fá þá upphæð, sem nú var greidd heldur en þegar þau sóttu lífeyrinn sinn síðast. Hannes Sveinsson er sjötug- ur að aldri. Ifann kveðst ekki hafa getað stundað vinnu síð- Hannes Sveinsson an árið 1963. Hann sagði að þetta hefði verið orðið alveg óbrúklegt og væri talsverður munur að fá þessa hækkun, sem gjarnan hefði mátt koma fyrr. Sagði Hannes að ekki veitti af talsvert hærri ellistyrk en þó væri vel í áttina, að stjórnvöld hefðu hækkað styrk inn sem raun ber vitni. María Magnúsdóttir kvaðst vera ósköp ánægð með þessa hækkun, sem orðið hefði á elli styrknum sínum. — Þetta er nú samt ekki of Framhald á bls. 14. María Magnúsdóttir Flskverðið hækkar ÞÖ—Reykjavík, þriðjudag. í ölkynningu frá Verðlagsráði sj ávarútvegsins, sem Waðið fékk í dag, kemur fram að fiskur hækkar frá 1. ágúst sl. að telja um 11% til 18,84%. Mest er hækkunin á þorski eða um 18.84%, en minnst á kola eða um 11%. Tilkynning Verðlagsráðsins er á þessa leið. „Verðlagsráð sjávarútvegsins hefur lokið endurskoðun lágmarks- verðs á bolfiski, flatfiski og skel- fiski samkvæmt ákvæðum bráða- birgðalaga frá 21. júlí 1971 um breytingu á lögum nr. 79 31. des- ember 1968, um ráðstafanir í sjáv- arútvegi vegna breytingar gengis íslenzkrar krónu og um hækkun á aflahlut og breytt fiskverð. Samkomulag náðist ekki í Verð- lagsráðinu, en í yfirnefnd ráðsins varð samkomulag um eftirfarandi breytingar á lágmarlcsverði er gild- ir frá 1. ágúst 1971. Þorskur hækkar um 18.84%, grá- lúða hækkar um 12% og koli um 11%. Aðrar fisktegundir hækka um 18,3%, þar á meðal humar, rækja og hörpudiskur. Við framangreindar verðhækk- anir er tekið tillit til niðurfellingar á greiðslu hlutdeildar í útgerðar- kostnaði samkvæmt 3. gr. laga nr. 79/1968, sem var 11% til viðbótar auglýstu lágmarlcsfisltverði. Reykjavík, 10. ágúst 1971. Verðlagsráð sjávarútvegsins“

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.