Tíminn - 08.10.1971, Side 1
*** ************
f Wj? .1»
RMPTÆKMOQU), >ttfBAI»itTBg.THtMtfj»‘<MB
228. fbl.
Enn
hopa
jöklar
Tungnaárjökull
hefur hopað um
500 m. á 4 árum
KJ—Reykjavík, fimmtudag.
f Jökli, ársriti Jöklarann-
sóknafélags íslands, fyrir árjð
1970, er gott yfirlit um jökla-
breytingar eftir Sigurjón Rist
vatnamælingamann. Nær yfir-
litið yfir tímabilið 1966—1970.
í athugasemdum og viðauk-
nm við yfirlitstöflur segir Sig
urjón: „Haustið 1970 voru
lengdarbreytingar imældar á 52
stöðum. Jökuljaðar hafði gengið
fraim á 13 stöðum, haldizt ó-
breyttur á 12 stöðum en hopað
á 27 stöðuim. Síðan veðráttan
kólnaði eftir 1964 heyrist því
oft haldið fraim, að jöklarnir
muni fara að aukast. Engin
slík snögg umskipti hafa átt
sér stað. Heildarniðurstaðan er
ámóta og undanfarin ár, enn
halda jöklamir áfram að hopa.
Eftirtektarverðasta mælingin
er frá Tungnaárjökli austan Jök
ulheima. Frá hausti 1969 til
jafnlengdar ’70 hefur jökuljað-
arinn hopað um 192 mctra, en
á síðastliðnum 4 árurn hefur
hann hopað samtals um hálfan
kílómetra.
Þá dregur Breiðamerkurjök
ull að sér athyglina. Hann held
ur áfram að rýrna vestan Jök
ulsár, en gengur fram austan
Jökulsárlóns og einnig fram í
það austanvcrt. L,angjökull held
ur áfram að hopa: nú í sumar
(1970) hjálpaði Hekluvikurinn
til að auka leysinguna, jökull
inn var allur dökkur. Hofsjök
ull virðist vera í jafnvægi."
Athugun á Slipp-
stöðinni:
HEFUR
SKILAÐ
SKÝRSLU
j»Ó—Reykjavík, fimmtudag.
Nefnd sú, sem ríkisstjórnin
skipaði 23. fyrra mánaðar til
að kanna málefnj Slippstöðvar
innar á Akureyri, hefur nú skil-
að skýrslu sinni til ríkisstjórn
arinnar.
Nefndin dvaldi á Akureýri í
síðustu viku og kannaði þá
málin ýtarlega. Jón Sigurðsson,
ráðuneytisstjóri, var formaður
aefndarinnar.
mn
SENDIBILASTOÐlNHf
— Föstudagur 8. október 1971 —
55. árg.
Myndirnar eru af einbýlishúsunum, sem veriíS er að smíSa á Kópaskeri.
(Tíma-myndir BÞ)
Kornuppskeru lokið:
Fengu 20-28 tunnur af hektara
EB—Reykjavík, miðvikudag.
Nú hafa þeir fjórir aðilar hér
á landi, er ræktuðu korn á þessu
suinri, skorið komið og eins og
við mátti búast þroskaðist koruið
með bezta móti. Samkvæmt þeim
upplýsingum er Tíminn hefur afl
að sér, niun Eggert Ólafsson,
bóndi á Þorvaldseyri í Austur
Eyjafjallalireppi, liafa fengið
beztu uppskeruna, um 28 tunnur
af liektara. Á Sámsstaðabúinu varð
afraksturinn 20 tunnur af licktara,
hjá Jóni Sigurðssyni, bónda í
Eyvindarhólum í Austur-Eyja-
fjallahreppi, var um sömu upp-
skeru að ræða og ennfremur mun
Klemenz Kristjánsson á Kornvöll-
um við Holsvöll hafa fengið álíka
uppskeru, en hann mun ekki vera
búinn að þreskja allt sitt korn.
Eggert á Þonvaldseyri sagði, í
viðtali við Tímann í gær, að
slæmt tíðarfar í september hefði
dregið eitthvað úr kornuppsker-
unni; gerði norðvestun rok og
hlauzt dálítið tjón af vegna þess.
— Eg hefði fengið yfir 30 tunn
ur af liektara, ef óveðrið' hefði ekki
komið, sagði Eggert.
Eggert sáði í 7 liektara lands,
þannig að hann uppskar nær 200
tunnur af korni. í fyrra fékk hann
30 tunmir af liektara, enda var tíð
arfar þá með eindæmum óhag-
stætt fyrir kornræktioa. Eggert
sagðist liafa lokið uppskerustörf-
um s.l. sunnudag. Allt kornið fer
í fóður.
Kristimi Jónsson, tilraunastjóri
á Sámsstöðum, sagði Tímanum, að
þar á búinu hefði korni verið sáð
í 5 hektara lands, og uppskeru
hefði lo'kið s. 1. sunnudag. — Krist
inn sagði, að slæmt tíðarfar í s.l.
mánuði hefði dregið úr uppsker-
unni svo og tafið uppskerustörfin.
Ifins vegar væri uppskeran með
bezta móti. 30 tunnur af þessu
korni munu fara í útsæði, en allt
hitt komið fer að sjálfsögðu í
mjölframleiðslu.
Kornuppskeru á Eyvindarhól-
um lauk 20. september, en þar
var í yor sáð í tvo og hálfan hekt-
ara lands og sem fyrr segir, varð
afraksturinn um 20 tunnur á
hektara. Jón Sigurðsson í Eyvind
arhólum sagði Tímanum, að í
fyrra hefði hann fengið 13 tunnur
af komi af hektara.
-r- Allt komið, sem við fengum
nú, verður þurrkað og malað,
sagði Jón að lokum.
7 hús fokheld
á níu vikum á
Kópaskeri
— fjórðungs viðbót
við íbúðarhús staðarins
KJ—Reykjavík, fimmtudag.
Fyrir forgöngu Kaupfélags
Norður-Þingeyinga var í sumar
hafizt handa um byggingu sjö
einbýlishúsa á Kópaskeri í sumar,
og voru þau gerS fokheld á 9
vikum, en yfirsmiður við húsin
var Stefán Óskarsson, Reyn í
Reykjahverfi í S.-Þing. Fyrir
voru á Kópaskeri um 25 íbúðar
hús.
Nokkur undanfarin ór hefur
ekki verið byggt eitt einasta íbúð
arhús á Kópaskeri, en húsnæðis
vandræðin hafa vaxið þar með
hverjn árinu seim líður. Margt
ungt fólk hefur viljað setjast að
á staðnum, en húsnæðisvandræði
hafa staðið staðnum fyrir þrifum.
Á þessu éri ákvað svo Kaupfélag
Norður-iÞingeyinga að hafa for-
göngu im byggiiigu íbúðarhúsa á
Kópaskeri, og veitti það byggj
endum fjárhagsaðstoð fyrsta
áfangann, eða þar lái húsin verða
lánshæf.
Að því er fréttaritari Tímans
á Kópaskeri, Barði Þórhallsson,
sagði blaðinu, þá voru fengnar
teikningar hjá Húsnæðismálastofn
un ríkisins, og eru fjögur hús-
anna byggð eftir sömu teikningu
og þrjú eftir annarri. Fimm hús
anna standa við nýja götu, en
tvö era við götra þar sem byggt
var fyrir nokkrum árum. Eigend-
ur húsanna eni flestir ungt fólk,
sem vantað hefur húsnæði á Kópa
skeri, en vill búa þar og trúir á
staðinn. Er þetta framtak þvi
ánægjulegur vottur um að byggð
arlagið á framtíð fyrir sér.
Stefán Óskarsson byggingameist
ari á Reyn í Reykjahverfi tók að
sér að gera húsin fokheld, og
Framhald á bls. 10
Feðgar björguBust aaumlega er
báti bvolfdi á ísafjarBardjápi
GS—ísafirði, fimmtudag.
Vélbátnum Kópi ÍS 48 hvolfdi á ísafjarðardjúpi í morgun, er skips-
menn voru að rcyna að innbyrða rækjuvörpu, sem þeir höfðu fest í
botni í fyrradag. Tveir menn voru á bátnum og björguðust þeir báðir.
Mennirnir eru feðgar og heita Vilhelm Annasson og Annas Kristmunds-
son. Ekki mátti tæpara standa að tækist að bjarga mönunum, því rétt
í þann mund, sem vélbáturinn Ver kom Þeim til aðsloðar, sökk Kópur.
Tildrög slyssins voru þau, að
í fyrradag fór Kópur á rækjuveið
ar í ísafjarðardjúpi og voru þeir
á honum, Vilhelm, sem er eigandi
og skipstjóri bátsins og Annas
faðir hans. Við svokölluð Breiða-
sker festu þeir vörpuna og skyldu
þeir hana eftir, þar sem veður
var vont. í morgun fóru þeir svo
að sælcja vörpuna og vpru þeir
búnir að hífa lóðrétta víra, en
þá náðu þeir ekki meira inn af
vörpunni. Þá hreyfði Vilhelm bát
inn lítilsháttar, og eins og hendi
væri veifað hvolfdi bátnum og fóru
báðir mennirnir í sjóinn. Vilhelm
gat strax náð í keðju, sem fest
var í stýrislykkju og komst hann
á kjöl, en hann varð strax að
renna sér aftur í sjóinn til þess
að ná í föður sinn, sem var ó-
syndur. Faðir hans var við stefni
bátsins og hafði þar enga hand
festu. Þegar Vilhelm hafði náð
taki á föður sínuim fór hann með
hann aftur með síðunni og kom
ust þeir á kjölinn.
Vélbáturinn Þristur, en skip-
stjóri á honum er Halldór Her
mannsson, var þarna nærstaddur
og sáu þeir á Þristi hvað komið
hafði fyrir. Þar sem Þristur var
með vörpuna úti kallaði hann í
vélbátinn Ver, sem var ekki bú
inn að kasta vörpunni. Bergmann
Þormóðsson, skipstjóri á Ver, brá
skjótt við og stefndi hann bát sín
um strax í áttina að Kóp, en
vegalengdin á milli þeirra var
um ein sjómíla. í þann mund, sem
Ver kom á slysstaðinn sökk Kóp
ur en þeir á Ver köstuðu bjarg
hring til mannanna og drógu þá
um borð. Þarna má heita að at-
hygli skipstjórnarmanna á Þristi
og Ver háfi bjargað tveknur
mannslífum.
í viðtali, sem fréttaritari Tím
ans átti við Vilhelm, þá heldur
hann, að það hafi verið komið
mikið grjót í vörpuna, en þarna
er mjög ósléttur botn. Vilhelm
Framhald á bls. 10