Tíminn - 08.10.1971, Blaðsíða 6
1 i ' 1 1 i i í r * i t r ■ < i f >' f t i i r >
TIMINN
FÖSTUDAGUR 8. oktdber 1971
ð þarf oft aS stympast vlS hrossin í Laufskálarétt og hér á myndunum tveim sést hvar hraustir SkagfirSingar stympast við tvö hrossin I réttlnni.
(Tímamyndir Stefán Pedersan)
í hrossarétt
í Hjaltadal
Ein fjölmennasta hrossarétt
f Skagafirði, er Lanfskálarétt í
Hjaltadal, en þar rétta bænd-
ur f Ilólahrcppi og ViSvíkur-
hreppi hross sín. Rcttað var í
Laufskálarétt laugardaginn 25.
september s.l. og tók þá Stefán
Pedersen ljósmyndari á Sauð-
árkróki meðfylgjandi myndir.
Eunnugir töldu að í réttina
hefðu komið 5—600 hross, og
þurfti að reka þrisvar inn í
almenninginn. Þarna voru mörg
mjög falleg hross, enda margir
bændur í áðurnefndum hrepp-
um eigcndur góðra hrossa.
Það er aðdáunarvert hvnð
reyndum hestamönnum tekst
vel að reka hrossin í viðkom-
andi dilka, en alltaf þarf Þó að
taka eitthvað af hrossum með
valdi, og koma þeim þannig í
dilkinn sinn. Það eru kannski
þessi átök við hrossin, sem
mesta athygli aðkomumannsins
vekja, en þótt beita þurfi
valdi, er laglega að farið, og
enginn hrottaskapur viðhafður.
Afrétturinn þar sem hrossin
úr þessum tveim hreppum
ganga, er girtur, og er hross-
nnum smalað í seinni göngum,
ásamt því fé sem orðið hefur
eftir í fyrstu smalamennskunni.
Sigurmon á Kolkósi ef hér að beina hrossum sírvum í dllkinn með sínum ágæta staf.
ikkl veitlr af að margir hjálplst við að koma hrossunum i dllkana,
ér hjálpast marglr að og ýla á hrossið.
Hér á myndinni fyrir ofan eru ungir menn úr Skagafirði að koma ódælu
hrossi I réttan dilk I Laufskálaréft. Að ofan til hægri er Guttormur Óskars.
son á Sauðárkróki að hressa sig á réttarpelanum, meðan réttarstjórinn
Guðjón frá Ási horfir á. Að neðan er Björn Runólfsson, Hofsstöðum, að
lita yfir hrossahópinn slnn i dilknum sínum.