Tíminn - 13.10.1971, Qupperneq 3

Tíminn - 13.10.1971, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 13. október 1971 TIMINN Gamla símstöðin á Selfossi eyðilagðist í eldi í gær SB—Reykjavík, þriðjudag. Ilúsið Austurvegur 1 á Selfossi er talið ónýtt eftir eldsvoða í kvöld. f húsinu var verzluni.n Elf ur, skrifstofur Ferðamálaráðs og samkomusalur Sjálfstæðisflokks- ins. Húsið brann allt að innan, en eldurinn komst ekki út og stendur húsið því uppi. Ekkert mun hafa bjargazt af vörum úr verzluninni. Slökkviliðið á Selfossi var til- kynnt urn eldinn kl. 18.47 í kvöld og voru báðir slökkvibílarnir send ir á vettvang, ásamt mannskap. Þegar það kom á staðinn, var mikill eldur inni í húsinu. Þetta er tveggja hæða tiimbur- Fyrir bíl og marg beinbrotnaði OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Fullorðinn maður slasaðist mjög illa, er hann varð fyrir bíl á Miklu brautinni í morgun. Heitir hann Þorbjörn Bjarnason, rörlaginga- meistari. Hann er 69 ára gamall. Við áreksturinn brotnaði hann á fæti, höfuðkúpubrotnaði, mjaðma- grindarbrotnaði og rifbrotnaði. Þorbjörn var á leið yfir Miklu- brautina, rétt austan Lönguhlíð- ar, þegar hann varð fyrir Wolks- wagenbíl. Hafði bíllinn stanzað á rauðu ljósi, en fór af stað þegar græna ljósið kom. Var bíllinn enn í öðrum gíri og því ekki á mikilli ferð, 'þegar hann ifcall á mannin- um. ’Dældaðist kistulok bílsins, og framrúðan brotnaði er maðurinn kastaðist upp á bílinn. Síðan skall hann í götuna. Var Þorbjöm fluttur á Borgar- spítalann og var þar í aðgerð í dag. hús, sem áður var símstöðin á Selfossi. Á neðri hæðinni er verzl unin Elfur, en þar voru seld barna föt, tízkufatnaður á unglinga og þess háttar. Einnig voru þarna skrifstofur Ferðamálaráðs og uppi var samkomusalur Sjálfstæðis- flokksins. Engu mun hafa tekizt að bjarga af vörum verzlunarinnar, en vél- um af skrifstofunum var bjargað og fleiru þaðan. Veður á Selfossi er hæg norð- læg átt og því voru næstu hús ekki í hættu ,en ef hvassara hefði verið, hefði eldurinn getað kom- izt í gömlu kjötbúð kaupfélags- ins hinum megin við götuna. En þar sem ekki var hvasst, var auðvelt að halda eldinum í skefjum inni í húsinu. Innrétting- ar munu vera ónýtar og allt mikið skemmt af reyk og vatni. Talið er að vörur verzlunarinnar séu allar ónýtar. Eitthvað mun hafa verið tryggt. Slökkviliðið réð niðurlögum elds ins á hálfri þriðju klukkustund. Færð erfíð vegna snjókomu nyrðra SB—Reykjavík, þriðjudag. Ekkert var farið að fljúga milli Reykiavíkur og Akureyrar síðan á sunnudagsmorgun, er blaðið hafði samband við Flugfélag fslands í dag. Útlitið var þó að batna, og var talið að hægt yrði að fljúga með kvöldinu. Um 300 manns bíða flugfars. Það er veðrið fyrir norðan, sem valdið hefur þessari truflun á fluginu. Þar hefur verið snjóhragl- andi síðan um miðjan dag á sunnu- dag og mun nú víðast kominn um 30 sm djúpur snjór á Norður- og Austurlandi. í sömu andrá og við fengum þW upplýsingar hjá F.l. að hríðin fyrir norðan væri enn svo- mikil, að ekkert yrði flogið alveg í bráð- ina, fréttum við frá Akureyri, að þar væri nú sólskin og virtist á- gætis flugveður. Vegir í nágrenni Akureyrar eru flestir færir, nema Lágheiði, sem hefur ekki verið opnuð. Vaðla- heiði er þó lokuð litlum bílum, en Dalsmynni fært. Öxnadalsheiði er sæmileg og vegurinn áfram vestur. Um AusturlandsVegina cr það að segja, að Oddskarð er talið ófært Fagridalur -og—Fjarðarheiði eru fær og Vatnsskarð var farið í gær. Ekki hefur bætt á snjóinn fyrir austan, en snjókoma er til hafsins og dimmt yfir landinu. Talið er, að kviknað hafi í út frá rafmagni, en það er þó ekki fullvíst og verður málið rannsak- að. Enginn bjó í húsinu. Ingibjörg Einarsdóttir KONAN ENN ÓFUNDIN OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Ingibjörg Einarsdóttir, sem hvarí frá Kleppi sl. laugardag er enn ófundin. Hefur ekkert til hennar spurzt síðan kl. 4.30 á laugardag. Var líennár leitað álla helgina, í gær og dag og verður leit enn haldið áfram á morgun. Leitarflokkar hafa marggengið fjörur og frosk- menn leitað með ströndum um- hveríis Klepp. Ingibjörg er 56 ára að aldri. Ráðizt á mann og hann rændur OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Klukkan 23.35 í gærkkvöldi, mánudagskvöld, var lögreglan kvöld að Brautarholti 22, sem er gengt danshúsaiu Þórscafé. Þegar þangað kom hitti lögreglan mann, sem sagði farir sínar ekki slétt- ar. Kvaðst hann hafa verið rænd- ur 11 þúsund krónum. Var maðurinn, sem er 45 ára gamall, að koma út úr Þórscafé, þegar að honum réðzt maður, sem hann sagðist ekki hafa séð áður. Hafði sá engin umsvif önnur, en að ráðast á þann sem var að koma út af skemmtistaðnum, sneri hann niður í götuna og tók veski úr vasa hans, sem £ voru 11 þús. krónur. Að afrekinu loknu hljóp ræning inn upp í Ijósan Volkswagenbíl, sem stóð þar rétt hjá. Sat bílstjóri undir stýri og var vélin í gangi. Brunuðu þeir á brott með ráns- fenginn, og hafa ekki sézt síðan. Sá sem fyrir árásinni varð seg- ir að árásarmaðurinn hafi verið ungur að árum, fremur hávaxinn með dökkt meðalsítt rár, í brún- um fötum. — PÓSTSENDUM — DOMU Á boðstólum á einum stað: Fatnaður — Skór — Ferða- og sportvörur — Búsáhöld — Leikföng — Raftæki - Ritföng — Erlend blöð og tímarit Gjafavörur — KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNIS Á grundvelli fyrirheita ríksstjórn- arinnar f Þióðólfi, blaði Framsóknar- manna á Suðurlandi, segir m. a. svo, um kjarasamninga þá, sem nú standa yfir: „Þessar vikurnar hafa verið efst á baugi kjaramálin og samningarnir milli Alþýðusam- bandsins og atvinnurekenda. Óþarft er að lýsa því, hve mik- ið er í húfi, að vel takist til. Hin mörgu vandamál þjóðfé- lagsins fá því aðeins viðunandi úrlausn, að vinnufriður haldist. Að öðrum kosti mun ríkja áframhaldandi efnaliagsleg upp lausn og vandséð hvenær linni. En full rök eru til þess, að til samkomulags leiði á grundvelli þeim, sem í málefnasamningi stjórnarflokkanna greinir. Ríkisstjórnin liefur þegar rétt fram hönd til nokkurra kjara- bóta beirn, sem áður höfðu orð- ið fyrir auðsæju misrétti, með leiðréttingu á kaupgjaldsvísi- tölu og kjörum sjómanna- En úr sker, að ríkisstjórnin hefur heitið að bæta hag vinnustétt- anna með margvíslegu móti og skal nánar rakið. Reynt verður að spyrna fæti við hinni háskalegu verðlags- þróun, sem átt hefur sér stað undanfarið og leitt hefur af sér síendurteknar gengislækk- anir og óðaverðbólgu. Leitazt verður við, að hækkun verðlags hér á landi verði ekki meiri en gerist í hélztu viðskiptalöndum okkar. f því skyni verði beitt að gerðum á sviði peninga- og fjár festingarmála og ströngu verð- lagseftirliti. En til að ná þessu marki hef- ur ríkisstjómin óskað að hafa sem nánast samstarf við samtök launafólks og atvinnurekenda. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að beita ekki gengislækkun við iu» lausn efnahagsvandáhs. Þannig er það yfirlýst stefna að v nna gagngert að bættri af- komu verkafólks, bænda, sjó- manna og annarra þeirra, sem við hliðstæð kjör búa. Hinar fyrstu ráðstafanir, sem ríkisstjórnin beitir sér fyrir til að koma þessari stefnu sinni fram, eru: Vinnuvikan verði stytt í 40 stundir án breytinga á vikukaupi. Orlof verði lengt í 4 vikur og framkvæmd orlofs- laga auðvelduð. Aukinn \erði kaupmáttur launa vinnustétt- anna í áföngum á næstu tveim árum allt að 20%.“ Brjótum í blað Ennfremur segir: „Það fer ckki milli mála, að ríkisstjórnin vill í verki stuðla af fremsta megni að því, að vinnufriður ríki og hagsmuna launafólks sé í hvívetna gætt. Því er treyst, að slík afstaða ríkisstiórnarinnar megi endast til þess, að samkomulag verði um kjaramálin og samningana óg eigi koini til áframhaldandi óvið-áðanlegarar verðbólgubró- unar. Ætla verður, að framrétt bróðurhönd megi sín meir í þessu efni en harkalegur áróð- ur viðskotaillra forustumanna Framhald ó bls. 12.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.