Tíminn - 13.10.1971, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 13. ofetóber 1971
TÍMINN
9
<9
Otgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURiNN
framkvæindastjórl: K.rlst]án Benediktsson Rltstjórar: Þórartns
Pórarinsson (áb). Jón Helgason, IndrlB! G. Þorstetnsson og
Tóma.s Karlsson Auglýsingastjórl: Stelngrímur Glslason Rtt-
stjórnarskrlístofur t Edduhúslnu. símar 18300 - 18306 Skrif-
stotur BankastrætJ 7 — Afgreiðsluslmi 12323. Auglýsmgaslmi:
13523 Aðrar skrifstofur stmi 18300 Askrlftargjald kr 199.00
i mánuði lnnanlands t lausasðlu kr 12,00 elnt. - Prentam.
Edda hf
Fjárlagafrumvarpið
Eagt fram
Fjárlagafrumvarpið fyrir 1972 var lagt fram á Alþingi
í gær. í athugasemdum með frumvarpinu segir, að fjár-
lagafrumvarpið sé byggt á núgildandi lögum um tekju-
stofna ríkissjóðs og þeirri skattvísitölu, sem tekin var í
lög á síðasta þingi, en hækkuð úr 100 í 106.5 stig vegna
verðhækkana. Ekki var unnt að miða tekjuáætlun við
neitt annað en gildandi lög og reglur, þótt að breytingu
sé stefnt.
Tími til undirbúnings fjárlagafrumvarpsins var mjög
takmarkaður. Þess vegna hefur ekki verið unnt að grand-
skoða útgjaldaliði frumvarpsins, en að því er nú unnið.
í málefnasamningi stjórnarflokkanna er ákveðið að
endurskoða tekjuöflunarleiðir ríkisins með það fyrir aug-
um, að skattabyrðinni verði dreift réttlátara en nú er
gert. Slíkri endurskoðun er ætlað að haldast í hendur
við endurskoðun tryggingalöggjafarinnar, þannig að öll-
um þjóðfélagsþegnum verði tryggðar lífvænlegar lág-
markstekjur. Stefnt er að því að tekjur, sem einungis
hrökkva fyrir brýnustu lífsnauðsynjum, verði ekki skatt-
lagðar, og réttlátari skattframkvæmd verði tryggð betur
en nú er með hertu skattaeftirliti. Þá er stefnt að því
að persónuskattar eins og til almannatrygginga verði
felldir niður. pn tekna aflað með öðrum hætti.
Þessi enöuT&koðun er nú hafin og er samtlmis unnið
að endurskoðun tekjustofna ríkisins, sveitarfélaga og
tryggingakerfis. Er stefnt að því að flýta þessari endur-
skoðun, svo að hægt verði að miða tekjuöflun ríkissjóðs
á næstu fjárlögum við það skattkerfi, sem lögtekið verð-
ur að lokinni endurskoðun á tekjustofnun ríkisins. .
Útgjöld þess fjárlagafrv., sem nú hefur verið lagt fram,
hækkar um 2,9 milljarða frá gildandi fjárlögum. Útgjöld
vegna launahækkana munu hækka um 963 milljón-
ir króna. Vegna lagasetningar á síðasta þingi, sem kemur
til framkvæmda á þessu ári hækkar fjárlagafrumvarpið
um 500 milljónir.
Ríkisstjórninni er ljóst, að stefna hennar er ekki fram-
kvæmanleg nema takist að hafa hemil á verðbólgu.
Ákveðið var að halda verðstöðvun þeirri, sem gilda átti
til 1. sept., áfram, með því að auka niðurgreiðslur og
fella niður skatta af nokkrum nauðsynjum almennings.
í fjárlagafrumvarpinu, sem lagt hefur verið fram, er gert
ráð fyrir að halda niðurgreiðslum áfram, og nemur út-
gjaldahækkun í frumvarpinu vegna þess 508 milljónum
króna. En ákveðin hefur verið endurskoðun á öllu nið-
urgreiðslukerfinu og er sú endurskoðun nú hafin. Þessi
útgjaldaiiður fjárlaga getur því breytzt að þeirri endur-
skoðun lokinni.
Hækkun fjárveitinga
tii verklegra
framkvæmda
Svo langt sem geta ríkisútgjalda leyfir í þessu frum-
varpi eru fjárveitingar til verklegra framkvæmda og
iéiagsmála auknar verulega til brýnustu verkefna. Fram-
lag til sjúkrahúsa og læknabústaða hækkar um 48
milljónir, til skóla um 44 miljónir, til togaralána 29
milljónir, til framleiðnisjóðs landbúnaðarins . um 22
millj., til rafvæðingar í sveitum um 18 millj., til land-
náms um 17.7 millj., til flugvallarmála 19 millj., til
gæzluvistarsjóðs um 8 milljónir og til íþróttasjóðs um 8
milljónir króna, svo nokkur dæmi séu nefnd. — TK
1
ERLENT YFIRLIT
Verður klofningur í Verkamanna
flokknum um nýja stefnuskrá?
Róttæku öflin voru í meirihluta á flokksþinginu í Brighton
ÁRSÞING Verkamannaflokks-
ins brezka, sem var haldið í
Brighton í síðustu viku, þyk-
ir vísbending um að flokkur-
inn sé á leið til vinstri og
muni stefna áfram í þá átt
næstu misserin. Róttækari
hluti verkalýðshreyfingarinnar
og róttækari armur flokksfélag
anna settu mestan svip á þing-
ið. Krafa þessara aðila er að
I flokkurinn færist í þá átt að
vera sosialiskur verkalýðsflokk
ur. Hinir hófsamari leiðtogar
flokksins óttast hins vegar, að
þetta geti leitt til þess, að
flokkurinn verði minnihluta-
flokkur um langa framtíð,
því að hin róttæka stefna
muni fæla stóran hluta milli-
stéttarinnar frá honum, en það
sé hún, sem ráði því, hvaða
flokkur ber sigur úr býtum í
kosningum. Þeir hvetja því til
þess, að flokkurinn sé fyrst og
fremst hófsamur umbótaflokk-
ur, sem leggi áherzlu á skipu-
lagningu, launajöfnun og trygg
ingar, en leggi þjóðnýting-
aráform sem mest á hilluna.
Hinn róttæki armur Verka-
mannaflokksins svarar þessu á
þá leið, að það eigi ekki að
vera helzta markmiðið að
sigra í næstu kosningum,
heldur að koma fram sosial-
iskri stefnu, þótt það kunni
að dragast eitthvað.
ERLENDIR fréttamenn,
sem sóttu þingið, töldu frétt-
næmast að fylgjast með af-
stöðu flokksins til væntanlegr-
ar atkvæðagreiðslu í þinginu
um aðild Breta að Efnahags-
bandlaginu, sem verður 28. þ.
m. Flokksþingið lýsti sig and-
vígt aðildinni með yfirgnæf-
andi meirihl. og var harðri gagn
rýni beint gegn þeim fámenna
hópi þingmanna Verkamanna-
flokksins, sem hyggst greiða
atkvæði með aðildinni, en for-
ingi þeirra er varaformaður
þingflokksins, Roy Jenkins
fyrrv. fjármálaráðherra. Þess
var krafizt, að þessir menn
yrðu handjárnaðir eða gerðir
flokksrækir. Þeir létu sig þó
ekki. Wilson tókst að finna
lausn á þessu máli, sem er
talið gott dæmi um málamiðl-
unarhæfileika hans. Það verð-
ur ekki refsivert, þótt þing-
menn greiði atkvæði með aðild
í atkvæðagreiðslunni, sem á
eins og áður segir, að verða
28. þ.m. í framhaldi af henni
koma svo ýms frumvörp, sem
leiða af þátttökunni i Efna-
hagsbandalaginu, og er þar
einkum um að ræða ýmsa skil-
mála, sem Verkamannaflokk-
urinn hefur gagnrýnt. í at-
kvæðagreiðslu um þessi mál
verður þess krafizt, að þing-
menn flokksins standi einhuga
gegn þeim, en að öðrum kosti
eigi þeir refsiaðgerðir yfir
höfði sér. Líklegt þykir, að
Wilson hafi tekizt með þess-
ari lausn að afstýra alvarleg-
WILSON
um klofningi í flokknum í sam
bandi við Efnahagsbandalags-
málið.
EN eining Verkamanna-
flokksins hefur ekki verið
tryggð með þessu. Öllum kem-
ur saman um, að Verkamanna-
flokkurinn þurfi að semja nýja
stefnuskrá fyrir næstu kosn-
ingar, því að ekki sé hyggilegt
að ganga til kosninga með
sömu stefnuskrána og leiddi til
ósigurs í kosningunum í fyrra.
Á þinginu nú reyndu róttæku
öflin að móta að nokkru
hina nýju stefnuskrá með því
að bera fram ýmsar róttækar
tillögur. Sumar voru sam-
þykktar, eins og t.d. um þjóð-
nýtingu banka og vátrygginga,
og hefur verið dregin af
því réttilega sú ályktun, að
þingið hafi fært flokkinn til
vinstri. Einstaka hinna rót-
tækustu voru felldar, en mörg-
um var vísað til flokksstjórn-
arinnar, en það er aðferð til
að komazt hjá opinberum
átökum, a.m.k. að sinni. Hér
var um að ræða tillögur eins
og t.d. þær, að Norður-írland
væri sameinað Eire, að Bret-
land gengi úr Nato og að Bret-
ar hættu einhliða kjarnorku-
vígbúnaði. Sumir fréttamenn
telja, að tvær síðastnefndu til-
lögurnar hafi notið svo mikils
fylgis á þinginu, eins og það
var skipað, að þær myndu hafa
veríð samþykktar, ef til at-
kvæðagreiðslu hefði komið
Slíkt hefði hins vegar getað
klofið flokkinn og var því í
nafni einingarinnar valin sú
leið að vísa þeim til flokks-
stjórnarinnar.
Þótt þessi deila leystist á þá
leið að sinni, að átökunum var
frestað, þykir hún eigi að síð-
ur vísbending um, að erfitt
muni verða að semja flokknum
nýja stefnuskrá og vafasamt
sé, að þaS muni takast, nema
farið verði verulega að vilja
vinstri armsins, sem nýtur
stuðnings meirihluta verka-
lýðsfélaganna. Hættan sem
fylgir þessu, er sú, að svo langt
verði gengið, að það fæli milli-
stéttirnar frá flokknum.
ÝMSIR kunnugir menn
telja, að svo mikill skoðana-
munur sé innan Verlcamanna-
flokksins að hann væri þegar
klofnaður, ef það væri ekki
kosningafyrirkomulagið, ein-
menningskjördæniin, sem héldi
honum saman. Sama gildir
raunar einnig um íhaldsflokk-
inn. f reynd mynda þessir
flokkar ekki samstæðar heild-
ir, líkt og flokkar á Norður-
löndum, heldur eru miklu
fremur kosningabandalög hópa
og samtaka með harla mismun
andi skoðanir. Þetta gildir þó
ennþá frekar um stóru flokk-
ana í Bandaríkjunum.
Eins og nú standa sakir,
virðist stjórn fhaldsflokksins
standa höllum fæti og væri lik
leg til að tapa, ef kosningar
færu fram. En margt getur
breytzt á þeim tæpum fjórum
árura, sem eftir eru af tjör
timabilinu. íhaldsmenn vonazt
til þess að geta rétt hlut sinn
og ekki sízt byggja þeir vonir
á því, að óeining eigi eftir að
vaxa innan Verkamannaflokks-
ins. Þ.Þ.