Tíminn - 13.10.1971, Qupperneq 16

Tíminn - 13.10.1971, Qupperneq 16
Dæmdur í árs fangelsi fyrir fjárdrátt MiíSvikudagur 14. október 1971. framkvæmdastjóri og eigendur ISnverks, talið frá vinstri: Páli Skúli Ma gnússon, framkvæmdastjóri, Björn Magnússon, Haukur Ingason, Bjarmt Kristinsson, Grímur GuSmundsson, Kjartan Stefánsson, SigurSur Á. Mag nússon og Páli Stefánsson. (Ljósmynd G.E.) IDNVERK H.F. \ Nýtt byggingaþjónustufyrirtæki B ÞÓ-Reykjavík, þriðjudag. Iðnverk h.f. heitir nýtt fyrir- tæki ,sem tók til starfa í Reykjavík í dag. Iðnverk, sem er stofnað af stórum framleið- endum á sviði byggingariðnað arins, er alhliða byggingaþjón- usta, og mun fyrirtækið ann- ast sölustörf og samningagerð- ir fyrir stofnendur að aðra, sem framleiða og flytja inn vörur til húsbygginga og hús- búnaðar. Þá er Iðnverk búið að opna söluskrifstofu og sýningarsal í Norðurveri við Laugaveg/ Nóatún. Páll Skúli Halldórsson, fraimbvaamdastjóri Inðverks, sagði á blaðamannafundi, sem haldinn var í dag, að allar vör- ur væru seldar á framleiðslu- verði og án álagningar frá Iðn verk h.f. Þá eru vörur fluttar til kaupenda á Stór-Reykjavík- ursvæðinu án aukakostnaðar, þrátt fyrir staðsetningu suimra umboðsfyrirtækja utan Reykja víkur. Þá sagði Páll, að þetta fyrir tæki gæti eflaust orðið til mik illar hagræðingar fyrir húsbyggj endur úti á landsbyggðinni, Framrald á bls. 14. ■ ■ ■ ■ Þannig lítur Omega staösetningatækiö út. Þessi mynd er tekin af ööru tækinu, sem hefur verið til reynslu hjá Landhelgisgæzlunni undanfariö. (Timamynd G.E.) Landhelgisgæzlan reynir ný Omega- staðsetningartæki t»Ó—Reykjavík, þriðjudag. Um þessar mundir er Landhelgisgæzlan að reyna nýja gerð af staðsetningartækjum. Þessi staðsetningartæki nefnast Omega Nevation Tracor og eru þau bandarísk að uppruna. Landhelgisgæzlan fékk tvö slfk tæki lánuð til reynslu og hefur annað þeirra verið um borð f varðskipinu Ægi undanfarið, en hitt hefur verið reynt í aðalbæki- stöðvunum við Seljaveg. Omega tækin byggjast á svipuðu kerfi og Loran tækin, sem mikið hafa verið notuð af íslendingum, en þykja mjög mikið nákvæmari og eru ekki eins háð góðum skilyrðum. Unglingar dreifa kláðadufti, táragasi og „skfta- pillum/# í skólum sínum og á fleiri stöðum Settu kláðaduft í augu stúlku í strætisvagni EB—Reykjavík, þriðjudag. Talsvert hefur borið á því undanfarið í skólum í Reykjavík, að nemendur hafa dreift kláðadufti og daunillum efnum í skólunum, sen valdið hefur mörgum óþægindum. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Tíminn fékk í dag, hafa skólastjórar sent kvartanir til lögreglu vegna þess arna, og lögreglan síðan sent kvartanirnar til tollgæzlunnar í Reykjavík. Komið hefur í ljós, að frágreind efni eru á tollskrá. S.l. föstudag var kveðinn upp í Sakadómi Reykjavíkur dómur í máli Jóns Ragnarsson ar, fyrrverandi ritstjóra Lög- birtings og Stjórnartíðinda. Var hann ákærður fyrir fjár- drátt. Var hann dæmdur í eins árs fangelsi og til að greiða fjármálaráffherra fyrir hönd ríkissjóðs 1,4 millj. kr. Sannað þótti að Jón hafi dreg ið sér um 2 milljónir króna frá ríkissjóði á árunum 1960 til 1969. Áður en dómur féll var hann búinn að endurgreiða um 750 þúsund kr. Halldór Þorbjörnsson, saka- dómari, kvað upp dóminn. JAFNTEFLI I 4. UMFERÐ SB—Reykjavík, þriðjudag. Þeir Petrosjan og Fischer hófu fjórðu einvígisskák sína í Buenos Aires kl. 19 í kvöld. Skákinni lauk með jafntefli, en nánari frásögn hafði ekki bor- ist, er blaðið fór í.jprentun. Hafa þeir þá 2 vinHinga hvor eftir 4 umferðir. Rafstöð við Þórisós eyðilagðist KJ-Reykjavík, þriffjudag. Aðfaranótt laugardags kom upp eldur í einni af rafstöffv- unum viff Þórisós, og er taliff að hún sé óhýt. Rafstöðin var fyrir steypu- stöðina og smíðaverkstæðið á staðnum. Rjúpan á föstudag KJ-Reykjavík, þriðjudag. Á föstudaginn 15. október hefst rjúpnaveiðitíminn, og eru sjálfsagt margir rjúpna- veiðimenn farnir að athuga iyssur sínar, hafi þeir á ann- að borð þá ekki reynt við gæsina. Rjúpnaveiði var með afbrigðum iéleg í fyrra, cn í ár á stofninn að hafa farið vax- andi, og því von um betri feng. ) Aldrei er það ofbrýnt fyrir rjúpnaveiðimönnum að klæða sig vel, og hafa með sér landa- kort og áttavita, og helzt ein- hver merkjatæki, lendi þeir í villu. Er skemmst að minnast þess að mennirnir tveir sem voru í þyrlunni, sem hrapaði á laugardaginn, voru með merkjaljós með sér, og fund- ust í myrkri þess vegna. Ef góð reynsla fæst af þessum tækjum, sem Landhelgisgæzlan reynir nú, þá verða þessi tæki sett um borð í varðskipin og búast má við að önnur skip landsmanna taki þau einnig í notkun. Ekki er langt síðan að farið var að nota þessi staðsetningartæki, en um þessar mundir eru komnar upp 4 sendi- stöðvar í heiminum, en aðrar fjór- ar á að setja upp á næstunni og nægir það til að dekka heiminn. Ef farið verður að nota þessi tæki hér við land, sem allar líkur benda til, þá verða settar upp 2—3 litlar leiðréttingarstöðvar hér á landi og fæst þá nákvæm staðarákvörðun á a. m. k. 300 metra radíus. Að alstöðvarnar, sem íslendingar koma til með að nota eru í New York, Aidra i Noregi og á Trini- dad á V-Indíum. Omega tækin senda út á 10 kílóriðum. En það er ekki eingöngu í skól- um, þar sem fólk hefur orðið fyr- ir óþægindum vegna meðferðar unglinga á þessum efnum. Guðmundur Hermannsson hjá Reykjavíkurlögreglunni, sagði Tímanum frá því í dag, að í ?íð- ustu viku hefði sá atburður átt sér stað í strætisvagni, að piltar settu kláðaduft í augu ungrar stúlku, með þeim afleiðingum að senda varð stúlkuna á Slysavarð- stofuna þar eð hún blindaðist á báðum augum, en samkvæmt upp- lýsingum, sem Tíminn hefur aflað sér, getur kláðaduftið á þann hátt valdið slímhimnubólgu. Var mál þetta kært til lögreglunnar og er nú í rannsókn hjá rannsóknarlög- reglunni, samkvæmt upplýsingum Guðmundur Hermannssonar. Nokkuð hefur borið á því áður í skólum borgarinnar að þar ér dreift kláðadufti, svonefndar ,,skita pillur" sprengdar, en um er að Framrald á bls. 14. FUF í Keflavík Aðalfundur Félags ungra framsóknarmanna í Keflavik verður haldinn í Aðalveri, föstudaginn 15. október kl. 8,30 s.d. Dagsl^rá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Páll Jónsson fjallar um bæíarmálin og svarar fyrirspurnum. 3. Önnur mál. Félagar f jölmennið. Inntaka nýrra félaga. Stjórn FUF Keflavik. FRAMSOKNARVIST Þórarinn Framsóknarvist verður að Hótel Sögu n.k. fimmtudagskvöld kl. 20,30. Stjómandi er Markús Stefánsson. Glæsileg spilaverðlaun, bæði fyrir þetta kvöld og fyrir 3ja kvölda keppnina (flugferð til Kaupmannahafnar). Að loknum spilum flytur Þórarinn Þórarins- son, alþingismaður, ávarp. Dansað verður á eftir. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar sér um fjörið. Framsoknarfélag Selfoss Aðalfundur Framsóknarfélags Selfoss verður haldinn að Eyrarvegi 15 fimmtudaginn 14. október kl. 21. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á kjör- dæmisþing. Umræður um hreppsmál. — Stjórnin. Haustfagnaður FUF FUF í Reykjavík efnir til haustfagnaðar í Glaumbæ á fimmtu- dagskvöldið. Hljómsveitin Ævintýri og diskótek. Dansað til kl. 1 cftir miðnætti. Fjölmennið. Stjórnin.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.