Tíminn - 09.01.1972, Síða 16
ÞÓ—Reykjavík, laugardag.
Rok og rigning höfðu engii.
láhrif á þrettándagleði Keflvík-
inga, en Keflvíkingar héldu mikla
þrettándagleði á fimimtudagskvöld
ið oig tóku að oninnsta kosti 1500
manns þátt í henni þegar flest
var. Undanfarin ár hefuir þrett
'ndagleði verið haldin í Kefla
vík annað hvert ár, og allan tím
ann hafa það verið sömu aðilar
sem séð hafa um undirbúniniginn,
en það eru karlakór, kvennakór
og lúðrasveit staðarins, og einnig
hafa skátar og björgunarsveitin
Stakkur aðstoðað við þennan
fyrsta fagnað ársins.
Blaðamaður og ljósmyndari
Tímans brugðu sér á þrettánda
fagnaðinn nú í vikunni. tíleðin
byrjaði með því, að fólk safnað
ist saman við Sé-'rleyfisbílastwð
Keflavikur og var þaðan lagt af
sitað í skrúðgöngu til íþróttavall
arins. f broddi fylkingar fóru
keflvískir hestamenn, á eftir þeim
kom hópur blysbera, þá lúðrasveit
Keflavíkur og á eftir henni kom
margt forneskjulegt fólk, eins og
t. d. Skugga-Sveinn og Ketill skræk
ur, álfar og púkar og svo að sjálf
sögðu álfadrottningin og álfa-
kóngurinn akandi í gömlum opn
um jeppa.
Það var tilkomumikil sjón að
sjá þessa skrúðgöngu ganga um
götur bæjarins, og settu blys
beramir hvað mestan svip á
göniguna, en kyndlar þeirra lýstu
upp allt næsta nágrennið og í
rokinu stóðu neistamir frá blys
unum í allar áttir.
Þegar komið var til íþróttavall
arrns, var búið að kveikja í helj-
armiklum bálkesti, og álfamir í
mjög Rtríkum klæðum, hófu að
dansa gamla dansa, en það voru
stúikur úr gagnfræðaskóla Kefla
víkur sem léku álfana, og lúðra
sveitin lék undir. Síðan byrjuðu
kórarnir að syngja, „Bregðum
blysum á löft og svo frv., en vegna
roksins og rigningarinnar, sem
nú var skollin á, fór söngurinn
og spilið að mestu út í veður og
vind, en Keflvíkingar létu þetta
ekki hið minnsta á sig fá, heldur
reyndu að syngja aðeins hærra.
Þá gengu þeir Ketill skrækur og
Skugga-Sveinn um völlinn og voru
bömin misjafnlega hrifin af þeim
félögum, jafn illúðlegir og þeir
vora. Eftir því sem hvessti meira,
fór neistaflugið úr bálkestinum að
dreifast um næsta nágrenni, en
sem betur fór var það ekki í svo
ríkum mæli, að hætta stafaði af.
Þegar fólk var búið að fá sig
fullsat.t af söngnum í bili, byrj-
uðu skátar og félagar úr björg
unarsveitinni að skjóta á loft flug
eldum af miklum krafti og ekki
veitti af að hafa kraftinn mikinn,
því sumir flugeldanna fóru rétt
upp í loftið í rokinu og féllu síð
an til jarðar.
Er álfagleðin hafði staðið yfir
á annan tíma fór fólk að tínast
heim, enda komin úrhellis rigning,
en fólk fór heim glatt og kátt
eftir að hafa komizt í snert-
ingu við okkar gömlu álfatrú.
Blaðburðarfólk
óskast á Laugarnesveg, I
Túnin, Sólheima, Sel- |
tjarnarnes og Akurgerði. |
Sími 12323. |
Eins og sjá má, þá var fjöldi manns á álfagleðinni, hvorki rok né rigning fældi fólkið í burtu frá þessari hátíð. — (Tímam. -. Gunnar)
Hér koma blysberarnir eftir götum Keflavíkur. Jú, konan hans