Tíminn - 13.01.1972, Síða 1
9. tbl.
— Fimmtudagur 13. janúar 1972 —•
56. árg.
SENDIBÍLASTÖÐIN HF
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*-
*
FRYSTIKISTUR *
FRYSTISKÁPAR *
*
*
*
*
*
*
*
*
*
* IUFTÆKJADEILD, HAFKARSTRÆTI 23, SlMI 18305 ^
Vel hefur gengið að
manna bátana til þessa
Beita og salt fyrir hendi í öllum verstöðvum
Fjölmennur
fundur með
fjármála-
ráðherra
Félag ungra framsóknarmanna
í Reykjavík boðaði til opins
stjómmálafundar um skattamál
in og fjárlögin á Hótel Sögu
í gærkvöldi. Frummælandi á
fundinum var Halldór E. Sig
urðsson, fjármálaráðherra, og
svaraði hann fyri,rspurnum.
Fundarmenn, sem voru fjöl-
margir, gerðu góðan róm að
máli ráðherra. Fundarstjóri á
fundinum var Friðjón Guðröðar
son hdl.
Á myndinni sést yfir nokk
um hluta fundarmanna og til
vinstri á myndinni qr Halldór
E. Sigurðsson^ fjármálaráð-
herra. (Tímam. Gunnar)
Farmannaverkfallið:
Tillaga sátta-
semjara komin
ÞÓ—Reykjavík, miðvikudag.
í viðtölum, sem blaðið átti við
nokkra aðila innan sjávarútvegsins,
kemur í ljós að ekki er neitt
mannahrak á bátunum enn sem
komið er. Þá er ekki talið að
beituskortur muni verða til vand
ræða á vertíðinni, en hann get
nr orðið þegar líða fer á sumar
ið. Ekki, er heldur talin hætt á
saltskorti á næstunni, og er vitaö
um eitt saltskip sem er að leggja
af stað til landsins.
Ekki beituskortur.
Það er öruggt að engin beitu
vöntun verður á næstunni, en er
líða fer á árið gæti svo orðið,
sagði Sigurður H. Egilsson, for-
stjóri LÍÚ, er við ræddum við
hann í dag.
Sigurður sagði, að um þessar
mundir væru til 3000 lestir af
beitusfld í landinu, en samkvæmt
áætlun, seim gerð hefði verið,
þyj'ftu landsmenn 5000 lestir
af beitusíld, en reyndar væru ára
skipti á því hve mikið væri not
að af beitu.
Það getur orðið beituvandamál
er líður á sumarið, og þá helzt í
sambandi við grálúðubátana og
aðra báta sem róa með línu. Gæti
þá svo fari'ð að sumir ættu beitu,
en aðrir ekkert. Sagði Sigurður,
að ekki væri ennþá vitað hvernig
bezt væri að afla beitu, ef til
beituskorts kæmi, en vel kæmi til
álita að flytja meira inn af
smokkfiski frá Nýfundnalandi og
Bandaríkjunum, sem þegar hefði
verið gert og Vestfirðingar væru
byrjaðir að nota.
Verður mannahrak?
Gunnar I. Hafsteinsson hjá
Landssambandi íslenzkra útvegs-
manna tjáði blaðinu í dag, að
sífellt væri auglýst eftir sjómönn
um á bátaflotann, en ekki bæri
neitt á því ennþá, að menn vant
aði í ríkum mæli á bátana, þar
sem menn fást, að minnsta kosti
enn sem komið er, jafnóðum.
Þegar netavertíðin nálgast og
allur flotinn fer af stað, má fara
að búast við, að menn vanti á
bátana, a.m.k. til að byrja með.
Taldi Gunnar, að ef til vöntunar
á sjómönnum kæmi, þá yrðu það
einkum minni bátarnir sem yrðu
fyrir barðinu á henni, e,n að svo
komnu máli væri ákaflega vont
að segja nokkuð um hvort manna-
hrak yrði á bátaflotanum í vetur.
Nóg salt um sinn.
Ekki er hætta á saltskorti á
næstunni vegna farmannaverkfalls
ins, sagði Helgi Þórarinsson, fram
kvæmdastjóri SÍF, er við ræddum
við hann í dag.
Helgi sagði, að eitthvert magn
af salti væri til í landinu, og í
Framhald á bls. 14.
Lengri frestur
til að skila
framtölum
OÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Skattframteljendur hafa nú
viku lengri frest til að skila fram-
tölum sínum en verið hefur til
þessa. Venja var að menn áttu að
skila framtali sínu á viðkomandi
skattstofu ekki síðar en 31. jan.,
en nú er tíminn heldur rýmri og
er fresturinn til 6. febrúar.
Þetta kemur fram í tilkynningu
sem ríkisskattstjóri sendir frá sér
í dag. Þar er einnig vakin athygli
á að þeir. sem ekki ráða við að
útfylla skýrslur sínar sjálfir, geta
snúið sér til skattstjóra eða um-
boðsmanna þeirra á skattstofum
og fengið þar aðstoð, en slík að-
stoð verður ekki veitt nema til 4.
febrúar.
Friörík konung-
ur liggur
þungt haldinn
Líðari Friðriks Danakonungs
var sögð slæm í gærkvöldi. Frið
rik var þá með 39 stiga hita og
hjartslátturinn var yfir 100 slög
á mínútu. — Sjá bls. 7.
HVER ER RAUNVERULEGUR VILJI MEIRIHLUTA FARMANNA?
AÐEINS 6 AF 74 HÁSETUM SÍS
ÞÁTT í ATKVÆÐAGREIÐSLU
Aðeins 12 af 74 undirmönnum á skipum
Skipadeildar SÍS, sem í verkfalli eru, hafa
atkvæðisrétt í kjaradeilunni.
tekin fyrir á fundum
í dag
ÞÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Sáttasemjarinn í farmannadeil-
unni, Logi Einarsson, forseti
Hæstaréttar, lagði fram sáttatil-
lögu á fundi með deiluaðilum í
kvöld. Deiluaðilar hafa ákveðið að
taka tillöguna til umræðu og af-
greiðslu á morgun, fimmtudag,
og fæst því væntanlega úr því
s! irið á morgun, hvort deilan leys
ist eða ekki.
Sjómannafélag Reykjavíkur
hefur boðað til fundar með far-
mönnum á morgun, fimmtudag, í
Iðnó og hefst sá fundur kl. 14.
Skorar stjórn Sjómannafélagsins
á farmenn að mæta vel á fundinn.
Blaðinu tókst ekki að fá upp
hvað fælist í sáttatillögunni, en
vonandi er tillaga sáttascmjara á
þann hátt, að báðir aðilar geti sætt
sig við hana.
TK—Reykjavík, miðvikudag.
Skv. upplýsinguin, sem Tíminn
aflaði sér i dag, tóku aðeins 6
af 74 starfsmönnum á skipum
Skipadeildar SÍS, sem í verkfalli
eru, þátt í atkvæðagreiðslunni,
þegar hafnað var milli 40 og
50% kauphækkun eftir 40 daga
verkfall!
Vegna ákvæða í félagslögum
Sjómannafélags Reykjavíkur um
búsetuskilyrði, hafa aðeins 12 af
þeim undirmönnum á skipum
SÍS, sem í verkfalli eru, full fé-
lagsréttindi og þar með aðild að
ákvörðunarvaldi um kaup og kjör
pg vinnustöðvun. Af þessum 12
rnönnum voru 3 staddir erlendis,
þegar atkvæðagreiðslan fór fram.
9 menn voru í Reykjavflc, en að-
eins 6 þeirra greiddu atkvæði. Það
voru sem sagt aðeins 6 menn af
74 viðsemjendum, sem Skipadeild
SÍS samdi við, þegar samkomulag
ið var undirrita® af samninga-
nefndum, sem tóku þátt í þeirri
ákvörðun að hafna fyrir heildina
milli 40 og 50% kauphækkun!
Nánar er fjallað um þetta mál
„A víðavangi“ — bls. 3.