Tíminn - 05.02.1972, Síða 14
14
TtMINN
LAUGARDAGUR 5. febrúar 1972
FRA B.S.A.B.
Eigendaskipti eru fyrirhuguð á 4ra herbergja
íbúð í 3. byggingarflokki félagsins.
Félagsmenn, sem vildu neyta forkaupsréttar,
hafi samband við skrifstofuna í Síðumúla 34,
fyrir 12 febrúar n.k. Simi 33509 og 33699.
B.S.A.B.
Aðildarfélög meistarasam-
bands byggingamanna
halda almennan félagsfund að Skipholti
70 kl. 2 i dag.
Fundarefni: Verðlagsmál og samningar.
Meistaraféiag húsasmiða,
Málarameistarafélag Reykjavikur,
Múrarameistarafélag Reykjavikur,
Meistaraféiag pipulagningarmanna,
Meistarafélag veggfóðrara,
Meistarafélag iðnaðarmanna i Haf narfirði.
y/.V/AVAV/.V.W.V.W.V.V.V/.'.W.V/AV.W.V.V
Verkaiýðsfélög Laun A.S.l. Rikiö án aldurs- hækkana Mism. % Aidursh. Iijá rikinu eftir 6 ár Aidursh. hjá rikinu eftir 12 ár
Dagsbrún eftir 2 ár 20.101 17.101 — 17,5 6,3 % 12,7 %
- 20.595 18.184 — 13,2 6,0 % 12,0 %
Framsókn, matráðskona eftir 2 ár 24.685 13.603 - 4,5 5,0 % 11,4 %
Dagsbrún, bifreiðastjóri, þung.v. eftir 2 ár 22.266 22.519 + U Sambæril.
Verkstjórar verka- manna, 40% eftir 2 ár 29.113 26.312 — 10,6 aldurshækkun 5,7 % 11,5 %
Iðnaðarmenn A eftir 3 ár 27.199 23.603 — 15,2 5,0 % 11,4 %
Iðnaðarmenn B eftir 4 ár 31.284 23.603 — 32,5 5,0 % 11,4 %
Tæknimenn eftir 4 ár 33.084 24.795 • - 33,4 6,0 % 12,2 %
Flokksstjórar iðnað- armanna a) eftir 4 ár 31.278 26.312 — 18,8 5,7 % 11,2 %
Flokksstjórar raf- virkja b) eftir 4 ár 40.918 29.347 — 39,4 5,1 % 10,3 %
Það staðfestist hér meö, aö ofanritaður útreikningur og samanburður erunninnaf okkur undirrituðum sameiginlega. Höskuldur Jónsson, Haraldur Steinþórsson Þorsteinn Geirsson, Baldvin Jóhannesson.
: Bridgefélagið Asarnir í Kópavogi
J Mánudaginn 7. febrúar hefst Barometer-
! keppni. Þátttaka tilkynnist Jóni. Her-
mannssyni, Álfhólsvegi 79, simi 40346 eða
Sveini A. Sæmundssyni símar 40342 og 41260.
■
v.w.w.w.v.v.v.w.v.v.w.v.’.v.v.v.v.v.v.v/w!
Bifreið til sölu
Vel með farin bifreið, Vauxhall Victor árg.
1968, ekin 45 þús. km., er til sölu.
Upplýsingar í síma 24548 eftir kl. 13.00.
LÖGTAK
Eftir kröfu tollstjórans i Reykjavik og
að undangengnum úrskurði verða lögtökin
látin fram fara án frekari fyrirvara, á
kostnað gjaldenda, en ábyrgð rikissjóðs,
að átta dögum liðnum frá birtingu þess-
arar auglýsingar fyrir eftirtöldum
gjöldum:
Áföllnum og ógreiddum skemmtana-
skatti og miðagjaldi, svo og söluskatti af
skemmtunum, gjöldum af innlendum
tollvörutegundum, matvælaeftirlitsgjaldi
og gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra, skipu-
lagsgjaldi af nýbyggingum, söluskatti
fyrir nóvember og desember 1971, svo og
nýálögðum viðbótum við söluskatt, lesta-,
vita- og skoðunargjöldum af skipum fyrir
árið 1972, gjaldföllnum þungaskatti af
disilbifreiðum samkvæmt ökumælum,
almennum og sérstökum útflutnings-
gjöldum, aflatryggingasjóðsgjöldum, svo
og tryggingaiðngjöldum af skipshöfnum
ásamt skráningargjöldum.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik,
3. febrúar 1972.
GREIN ARGERÐ
Frh. á bls. 2
launataxtar verkamanna og
manna viö iðjustörf hjá rikinu og
á almenna markaðnum mjög
sambærilegir, þegar fullum
starfsaldri er ndð hjá báðum
aðilum. Þannig munar um 1,2%
hjá öðrum og 4,8% hjá hinum,
sem almenni markaðurinn er
hærri.og verður sá mismunur að
teljast litill t.d. með hliösjón af
verðtryggðum lifeyrissjóði og
meira starfsöryggi starfsmanna
rikisins er en annarra.
Séu tekin dæmi af matráðskonu
og bifreiðarstjóra þunga-
flutningabifreiða og verkstjóra
verkamanna verður rikistaxtinn
iviö hærri en samningar á al-
mennum markaði skv. hinum ný-
gerðu samningum.
bað er hins vegar svo, að þegar
kemur upp i launataxta iðnaðar-
manna og verkstjóra iðnaðar-
manna, verður lokasamanburður
við fullan starfsaldur rikisstafs-
mönnum óhagstæður og það svo,
að munar 17%, 20% og allt upp i
29%.
Það er á grundvelli þessara
staðreynda, sem rikisstjórnin
gerði sina siðustu ályktun i máli
þessu.
Ef rikisstjórnin féllist á
hækkanir, sem samanburður
launa um miðbik launastigans
kynni að réttlæta, þýddi það að
verkamenn i þjónustu rikisins
væru komnir upp fyrir sambæri-
lega starfsmenn á almennum
markaði miðað við fullan starfs-
aldur.
Rikisstjórnin taldi þvi ekki
verjandi að ganga til slikra
samnmga, en nauo ao samræma
þann árafjölda, sem tekur aö ná
fullum starsaldri hjá rikinu þvi,
sem gerist á almennum markaði.
Þótt að sýnist sitt hverjum um
launakjör rikisstarfsmanna,
verður þvi varla móti mælt, að
það væri með öllu óábyrg afstaða
af hálfu rikisstjórnarinnar að
hækka kaup verkafólks hjá rikinu
upp fyrir það, sem nýsamiö er um
á almenna markaönum til langs
tima.
Ég vil aö lokum leggja áherzlu
á þetta. Mál þetta er ennþá hjá
sáttasemjara. Rikisstjórnin hefur
gert BSRB tilboð, sem hafnað
hefur verið. Hins vegar hefur
BSRB ekkert annað formlegt til-
boð gert til rikisstjórnarinnar en
upphaflegu kröfu sina. Rikis-
stjórnin mun hins vegar taka
allar breytingartillögur, sem
fram kunna að verða bornar af
hálfu BSRB til lausnar þessari
deilu,til vinsamlegrar athugunar
og ákvörðunar i samræmi við þá
stefnu, er hún hefur lýst í þessu
máli”.
1 Timanum þann 4 . febr. er sú
athugasemd birt aö tilmælum
framkvæmdastjóra B.S.R.B., að
eigi liggi fyrir nein sameiginleg
álitsgerð B.S.R.B. og fjármála-
ráðuneytisins um kjör rikis-
starfsmanna. Hjálagt er ljósrit af
skjali, er ber það með sér, að
starfsmenn fjármálaráðuneytis-
ins og B.S.R.B. unnu sameigin-
lega að samanburði á launa-
töxtum og er skjal þetta m.a.
undirritað af þeim sama fram-
kvæmdastjóra B.S.R.B. og full-
yröir i Timanum i gær, að
B.S.R.B. hafi hvergi komið nærri
slikum samanburði. Saman-
burður þessi er hinsvegar unninn
skv. samkomulagi milli min og
formanns B.S.R.B., Kristjáns
Thorlacius.
Ég ætla mér ekki að gera sér-
staka grein fyrir samanburði
þessum. Hann staðfestir einungis
þaö er þegar hefur verið greint
frá i ávarpi minu á borgarafund-
inum. Hins vegar ber að geta
þess, að samanburður þessi var
ekki ætlaður til birtingar og er þvi
ekki fram settur á þann hátt, er
æskilegastur væri lesendum.
Biðst ég afsökunar á þvi.
Ég tel og skylt að undirstrika,
að hvernig svo sem yfirstandandi
kjaradeilu kann að lykta, þá mun
rikisstjórnin tryggja starfs-
mönnum rikisins sambærilega
hækkun lægstu launa og fékkst i
nýgerðum kjarasamningum ASI
með sérstökum ákvæðum i þeim
samningum. Stefnan i þessu máli
hefur reyndar áður verið kynnt
með tilboði rikisstjórnarinnar til
Kjararáðs B.S.R.B., er afhent var
fyrir milligöngu sáttasemjara 27.
janúar s.l. og var á þessa leiö:
„Alyktun rikisstjórnarinnar 27.
1. 1972 um viðræður við B.S.R.B.
Rikisstjórnin itrekar fyrri boð
sin um endurskoðun lægstu launa
meö hliðsjón af sérákvæðum i
samningum ASl um slik laun.
Starfsmenn rikisins njóta
starfsaldurs að fullu til launa-
greiðslu 8 — 10 árum seinna en
samningar ASI gera ráð fyrir.
Rikisstjórnin er reiðubúin til að
leiðrétta þann mun með samningi
nú þegar.
Samanburöur, sem BSRB og
fjármálaráðuneytið hafa sam-
eiginlega gert,hefur leitt i ljós, að
samræmi virðist vera milli
launataxta verkamanna og
manna við iðjustörf hjá riki og á
almennum markaði, þegar kaup-
hækkanir skv. núgildandi kjara-
samningum ASI og BSRB eru að
fullu komnar til framkvæmda,
miðað við hámarks starfsaldur.
Samningar um hækkun launa-
taxta rikisstarfsmanna við þessi
störf umfram það, sem að framan
greinir, mundu þvi skapa mis-
ræmi gagnvart launatöxtum
félaga ASI við sams komar
störf.”
Tilboð þetta, ályktanir svo og
allar aðgerðir af hálfu rfkisins i
yfirstandandi kjaradeilu styðjast
við ákvarðanir rikisstjórnarinnar
sem heildar.
Reykjavik, 4. febr. 1972.
Halldór E. Sigurðsson.
Látravíkurfurðan
Framhald af bls. 1.
hvaða undanþágur sem er I skjóli
þess, að einhverjir pótintátar
halda að þeir eigi f persónulegum
deilum. Slikt verður ekki þolað til
lengdar, og þvf er bezt að fara að
lesa rétt úr letrinu á veggnum
fyrir þá, sem jafnvel þurfa ekki
að virða staðfest skeyti um full-
trúavai á fundi, aðeins til að geta
hadið meirihluta, sem þjónar
undir kerfi undanþáganna.
Svarthöfði
NB. Konan, sem sögð var
hafa veriö með Angelu Davis-hár
I sjónvarpsþætti Ólafs Ragnars,
hefur beðið að skila því til Svart-
höfða, að svo sé ekki. Hún sé
enginn talsmaður svörtu hlébarö-
anna, og telji ærumeiðandi að
láta orða sig við Fylkinguna. Ég
er henni sammála.
Skákeinvígið -
Framhald af bls. 1.
keppa, eftir að búið væri að gera
smávægilegar breytingar á
henni.
A fundinum sagði Edmondson,
að hann færi til Moskvu i dag, og
þar myndi hann hitta forystu-
menn Rússa i skákheiminum, en
ekki bjóst hann við að hitta sjálf-
an Spassky, sagðist reyndar hafa
orðið fyrir vonbrigðum er
Spassky kom ekki til Amsterdam
er tilboðin voru tekin upp.
Edmondson sagði, að i Rúss-
landi myndi hann reyna að kom-
ast að samkomulagi við Rússa
um einvigisstaöinn, en ef engin
niðurstaða fengist, þá yröi þaö
mikið á valdi dr. Euwes,hvar telft
yrði, og taldi Edmondson að sjálf-
sagt myndu allir sætta sig við úr-
skurð dr. Euwes.
Aðspurður sagði Edmondson
að Fischer gæti keppt i bvaða
loftslagi sem væri.
Fischer var ekki á blaða-
mannafundinum i gær, hann
„slappaði af”, en hann mun halda
stuttan blaðamannafund i dag.