Tíminn - 26.02.1972, Blaðsíða 1
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
>■
47. tölublað — Laugardagur 26. febrúar 1972 —56. árgangur
N
Miiijóna- Áköf leit að sprengju í
m^útum I Jumbó á Keflavíkurvelli
— þegar bíla-
verkstæði brann
á Neskaupstað
BG-Neskaupstað, ÞÓ-Rvik.
Milljónatjón varð á Nes-
kaupstað i gær, er bilaverk-
stæði Dráttarbrautarinnar h.f.
brann til kaldra kola á 40 min-
útum. Það var um kl. 14 að
eldurinn kom upp. Rétt fyrir
kl. 15 var allt brunnið, sem
brunnið gat. Sex bllar voru
inni á verkstæðinu til viðgerð-
ar, þegar eldurinn kom upp,
en ekki tókst að ná út nema
þrem bilanna, þar af var einn
stórskemmdur er hann kom
út, hinir bilarnir þrir brunnu
allir til ösku, og er litið eftir af
þeim annað en járnahrúga.
Sex menn voru að vinna á
verkstæðinu, er eldurinn kom
upp og áttu þeir fótum sinum
fjör aölauna, svo fljótt breidd-
ist eldurinn út.
„Við vorum allir við vinnu
okkar, og þar af var einn að
logsjóða undir bil, en þar kom
eldurinn upp, sagði Elias Þór
Ragnarsson, verkstjóri er
blaðið ræddi við hann i gær.
Eldurinn komst strax i veggi,
sem eru klæddir með tré og
siðan i þakið, sem er klætt
með texi. Við gátum strax
forðað okkur undan eldinum,
og tekið með okkur logsuðu-
tækin, er við vorum að nota og
bilana þrjá. Ekki reyndist
mögulegt fyrir okkur að ná i
kósangaskút, sem stóð úti við
stafn, en sem betur fór, þá
losnaði á honum pakkning,
þannig að það logaði uppúr
honum allan timann. Þegar
hér var komið reyndist ógern-
ingur að nálgast meira, sem
var inni i húsinu sagði Elias.
Slökkviliðið i Neskaupstað
kom fljótt á vettvang fyrst
með einn bil og siðan annan.
Gekk slökkvistarfið gréiðlega
eða röskan klukkutima, en þá
var lika allt brunnið, sem
brunnið gat. Mjög mikið af
eldfimum efnum var inni á
verkstæðinu, bæði málning,
hjólbarðar og bensin, t.d. gaus
ávallt upp mikill eldur er
bensintankar bifreiðann, sem
brunnu inni sprungu.
wmmmmmmmmmmmsm
,,ÉG VAR
DÁLÍTIÐ
HRÆDD"
— sagði Britt Ekland,
kvikmyndastiarna,
sem var um borð i
Boeing-747 þotunni
OÓ—Reykjavik
Meðal farþega þotunnar, sem
lenti á Keflavikur flugvelli I gær
vegna tilkynningar um sprengju
um borð, var sænska kvikmynda-
leikkonan Britt Ekland. Var hún I
fylgd með hávöxnum svart-
skeggjuðum manni og voru þau
bæði klædd gráum pelsum og bar
herrann mikla loðhúfu. Voru
yfirhafnir þeirra beggja
greinilega keyptar til að hjúin
færu hvort öðru vel.
Fyrsta spurningin, sem Timinn
lagði fyrir leikkonuna var nát-
túrlega hvernig henni hefði orðið
við, þegar henni var tilkynnt um
hina óvæntu heimsókn hennar til
Islands.
— Ég varð dálitið hrædd, en
ekki alvarlega, þetta kemur nú
orðið svo oft fyrir.
Hefur þetta komið fyrir yður
áður?
— Ekki á flugi, en ég hef orðið
fyrir slikum töfum á flugvöllum.
— Eruð þér á leið til Los
Angeles til að leika i kvikmynd?
— Nei, ég er i frii og til að hvila
mig þar. Ég hef nýlokið við að
leika i kvikmyndinni „The Boy”
og ætla nú að taka mér gott fri.
— Næsta verkefni?
— Segi ekki frá þvi,,en það er
nóg að gera framundan.
Er þetta fyrsta heimsóknin til
tslands?
— Já, og heldur óvænt. Mér
finnst gaman að koma hingað, en
ég vildi að það hefði staðið betur
á. Annars get ég lesið islenzku, en
ég skil ekki orð þegar hún er
töluð.
— Lært islenzku i skóla?
— Nei, en ég hef oft gert það að
gamni minu. Málið er svo likt
sænsku, að það er ekki verulega
Framhald á bls. 14.
Sænska kvikmyndaleikkonan Britt Ekland og bandariski
framleiðandinn Lou Adler voru meðal farþeganna I þotunni. Eins og
sjá má á myndinni voru þau „saman”.
Flugstjóri þotunnar talar til farþega i flugstöðinni. Hann er að skýra
þeim frá hvernig málin standa og að þeir verði að sýna biðlund.
Risaþotan á Keflavikurflugvelli. Myndin er tekin meöan leitin aö sprengjunni stóð yfir. Varnarliðsmenn og starfsmenn Loftleiða leituöu
I vélinni og I farangri. Slökkviliðsbilar stóðu allt umhverfis þotuna meðan leitað var. Timamyndir G E.
OÓ— Reykjavik.
Þota af gerðinni 747 frá
ameriska flugfélaginu Trans
World Airways lenti óvænt á
Keflavfkurflugvelli i gær. Var
vélin á leið frá London til Los
Angcles, þegar flugstjóranum
var skipað að lenda á næsta flug-
velli, þar sem tilkynnt hafði verið
að sprengja gæti verið um borð.
Var þotan þá stödd um 100 milur
suðvestur af Keflavik og ákvað
flugstjórinn að lenda þar. Varð
fyrst að losa mikið eldsneyti úr
risaþotunni og að þvi loknu lenti
hún kl. 4,50. 52 farþegar voru um
borð.
Farþegar voru látnir fara frá
borði strax á brautarenda og var
þeim ekið á flugvallarhótelið.
Þotan var dregin hið bráðasta á
eins afvikin stað og hægt var og
þar hófst leitin. Stóð þotan þá ekki
allfjarri Höfnum.
Enginn fékk að koma nærri vél-
inni, nema þeir sem unnu að
sprengjuleitinni, en það starf
unnu sérfræöingar frá varnar-
liðinu. Slökkviliös- og sjúkrabilar
Enginn fékk að koma nærri
vélinni, nema þeir sem unnu að
sprengjuleitinni, en það starf
unnu sérfræðingar frá var-
narliðinu. Slökkviliðs- og sjúkra-
bilar voru til reiðu allt umhverfis
vélina og voru þeir i um 300 metra
fjarlægð. Var allur farangur tek-
inn úr vélinni, svo og farmur, og
var þetta flutt langt burt frá þot-
unni og leitað i varningnum þar,
en aðrir leituðu ' nákvæmlega i
flugvélinni sjálfri. Var búizt við,
að leitinni væri ekki lokið fyrr en
seint i gærkvöldi.
Þetta var ekki eina þotan, sem
varð að lenda af þessum sökum.
Hringt var i skrifstofur TWA i
London og sagt,að sprengja væri i
flugvél frá félaginu, sem fór frá
London i gær. En alls voru þær
fjórar. Var þeim öllum skipað aö
lenda á næsta flugvelli. Ekki
bárust fréttir um það i gær, hvar
hinar flugvélarnar lentu. Voru
allar þoturnar af sömu gerð,
Boeing 747.
Farþegarnir, sem i vélinni
voru, biðu i flugstöðinni meðan
leitin fór fram. Var ekki örgrannt
um,að nokkur ókyrrð væri i fólk-
inu, en þó voru allir rólegir á yfir-
borðinu, en mikið var að gera á
barnum. Timinn haföi tal af
nokkrum farþegum og voru
svörin mjög á sömu leið, — jú,
þetta var heldur óþægilegt, en
eiginlega trúðum við aldrei,aö
sprengja væri i vélinni, það er
alltaf verið að hringja i flugfélög
og skrökva svona.
1 örstuttu viðtali,sem Timinn
náöi af flugstjóranum, sagði
hann, að atburður sem þessi hafi
aldrei komið fyrir sig áður á flugi,
en hins vegar verið tilkynnt um
sprengju i flugvél sinni,áður en
lagt var af stað. Þá fannst engin
sprengja og er flugvélin
ósprungin enn.
Flugstjórinn sagði, að þegar til-
kynningin barst hafi ekkert annað
verið að gera en að lenda á næsta
flugvelli, enda væru ströng fyrir-
mæli um það.þegar atburður sem
þessi kemur fyrir. Hann sagðist
ekki hafa tilkynnt farþegunum
sjálfur hvað um væri að vera,
þegar snúið var við, en látið áhö-
fnina vita, enda hafði hann nóg að
gera annað en hugga farþegana,
Framhald á bls. 14.