Tíminn - 04.03.1972, Qupperneq 1

Tíminn - 04.03.1972, Qupperneq 1
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA SENDIBIL ASTOÐIN HF EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR 53. tölublað-Laugardagur 4. marz 1972—56. árgangur. MESSflÐ I KIRKJU SEM KLÖPPUÐ ER í BERGIÐ ■■■■■■■ KJ-Uelsinki. Segja má með sanni, að i gær hafi verið dagur fortiðar og nú- tiðar i hinni opinberu heimsókn forseta lslands til Finnlands. Eftir að þinghúsið hafði verið heimsótt og saga þingsins sögð, var haldið til Þjóðminjasafnsins og þaðan i hið nýreista Finn- landiahús og siðan i Bergskirkju, sem vigð var fyrir tveim árum. Heimsóknin i þinghúsið hófst kl. 9 að hérlendum tima. Forseti Þingsins Suksilainen, tók á móti forseta íslands, Kristjáni Eld- járn, Einari Ágústssyni, utan- rikisráðherra, og föruneyti tslendinga og Finna. Þar voru fyrir formenn flokkanna og var húsið skoðað i fylgd þessara manna. Forsetinn afhenti Suksilainen ágrafinn silfurbakka að gjöf til þingsins. Verða þá að minnsta kosti þrir islenzkir hlutir i þinghúsinu, silfurbakkinn, fundarhamar eftir Rikharð Jónsson og Þingvallamynd eftir Asgrim Jónsson. Viðdvölin í þinghúsinu var frekar stutt, en þvi lengri á næsta áfangastað, sem var Þjóðminja- safnið. Þar var fyrir mikill fjöldi ljósmyndara og sjónvarpsmanna og vildu þeir auðsjáanlega ljós- mynda allt, sem forsetinn skoðaði og hljóðrita allt sem hann sagði. Forsetinn var þarna i essinu sinu, eins og reyndar alltaf i þessari opinberu heimsókn. Hafa Finnar haft sérstakt orð á þvi hve glað- legur hann er. Hafa þeir þá sjálfsagt sinn forseta i huga. Einn merkasti gripurinn i þessu safni er elgshöfuð, sem skorið er i sandstein. Sagði Þjóðminja- vörður Finna, að steinninn væri um 5 þús. ára gamall og hefði fundizt i vesturhluta Finnlands. Konurnar i ferðinni bættust i hópinn i Þjóðminjasafninu og var sýnt þaö sérstaklega, enda er for- stöðumaður safnsins kona. Þinghúsið, Þjóðminjasafnið og Finnlandiahúsið eru öll á sama blettinum, ef svo má segja. Allt svæðið þar i kring er i endur- skipulagninu, og fyrsti hluti þessarar endurskipulagningar er Finnlandiahúsið, sem Alvar Alto, sá frægi finnski arkitekt, teiknaði. Hús þetta hefur verið mjög umdeilt vegna þess hve dýrt það var. En með öllum kostnaði kostaði það um 800 millj. isl. kr. Er öryggismálaráðstefna Evrópu verður haldin hér i Helsinki verður Finnlandiahúsið miðpunktur hennar. En það er fleira hér i Finnlandi sem ber nafnið Finnlandia, má þar nefna tónverkið, vodkað, kara- mellurnar og sjálfsagt eitthvað fleira. Siðast á dagskrá Helsinkiborg ar . i morgun var að skoða Bergskirkju, áður en setzt var að matboröinu i ráðhúsinu. Þessi Bergskirkja er miðsvæðis i borg- ,inni og tilsýndar virðist þar vera loftvarnarbyrgi, eða eitthvað þess háttar. Kirkjan var höggvin og sprengd inn i berg milli fjöl- býlishúsa og kemur vatn sums staðar út úr berginu inni i kirkj unni. Kirkjan rúmar tæplega þúsund manns og ber nafnið Framhald á bls. 10 Kvikmyndamenn á heimili skáldsins. Á myndinni eru Halldór Laxness, Rolf Haedrich, Sveinn Einarsson, Jón Laxdal og Jón Þórarinsson. Timamynd Gunnar. Norðurevrópsk samvinna um kvikmyndun Brekkukofsannáls OÓ-Reykjavik. Kvikmyndin, sem gerð verður eftir Brekkukotsannál, verður fyrsta verkefnið, sem norður- þýzka sjónvarpið og sjónvarps- stöðvarnar á öllum Norðurlönd- unum vinna að i sameiningu. Kvikmyndin verður öll tekin á Is- landi i júli og ágúst i sumar, og frumsýnd i islenzka sjónvarpinu næsta vetur. Leikstjórinn, Rolf Haedrich, er staddur hér á landi og vinnur að undirbúningi kvik myndatökunnar. Handritið er til- búið og er verið að skipa i hlut- verk, en það verður gert endan- lega i april, en þá verða teknar reynslumyndir af leikurunum. Aðeins er búið að skipa i eitt hlut- verk, en ákveðið er að Jón Laxdal leiki Garðar Hólm. Leikstjórinn ræddi við blaða- menn á heimili Halldórs Laxness i gær. Sagði hann að kvikmyndin mundi kosta um 800 þúsund mörk. Verður hún tekin i litum og verður sýnd jöfnum höndum i sjónvarpi og kvikmyndahúsum. Sett verður inn á hana þýzkt og enskt tal. en á Norðurlöndum verður myndin sýnd með islenzku tali. Islenzka sjónvarpið tekur að nokkru þátt i kvikmyndagerð- inni, eins og aðrar sjónvarps- stöðvar á Norðurlöndum. Töku- menn verða frá Sviþjóð. Sveinn Einarsson, leikhússtjóri, verður aðstoðarleikstjóri. Leikarar verða milli 15 og 20. Myndatakan fer að mestu fram i Reykjavik, en að nokkru leyti úti á landi. Halldór Laxness sagði, að Amerikanar væru að hugsa um að kvikmynda Paradisarheimt, en það mál er enn á frumstigi. Landhelgismálið: Afstaða Finna mikilvæg HJ-Helsinki. Einar Agústsson, utanrikisráðherra, sagði i | dag við fréttamann Timans i Helsinki, að hann væri sér- staklega ánægður með um- mæli Kekkonens i ræðunni, sem liann flutti i forseta- höllinni á fimmtudags- kvöldið. Sagði utanrikis- ráðherrann, að hann mæti ummæli Kekkonens um landhelgismálið mjög mikils og væru þau gott innlegg i þá baráttu, sem framundan er vegna útfærslu fiskveiðilög- sögunnar. Þá sagðist utanrikis ráðherrann hafa átt við ræður við Sorsa, utanrikis- ráðherra Finna, sem hafi skýrt sér frá ummælum full- trúa Finnlands hjá Sam- einuðu þjóðunum. Sagði Finninn þar, að á fyrri haf- réttarráðstefnunni hefðu | sum mál verið algjörlega I óútkljáð, og mætti þar nefna Ihámarksstærð fiskveiðilög- sögu. Þessi mál þyrfti nú að taka til meðferðar mjög fljótt og hafi verið iagt til, að fulltrúar Finnlands legðu áherzlu á, að strandriki yrði tryggður réttur til land- grunnsins við I- þeirra — og ætti staklega við þau byggðu afkomu I mestu leyti á fiskveiðum. strendur þetta sér- riki, sem sina að IHALDIÐ FLYTUR HLAUPARS- TILLÖGU UM TEKJUST0FNA Fundur i borgarstjorn KeyK]a- vikur á fimmtudaginn var einn sá lengsti, sem þar hefur verið lengi. Mörg mál voru á dagskrá og miklar og harðar umræður um sum þeirra. Alfreð Þorsteinsson flutti til- lögu um að visað yrði til Neytendasamtakanna til um- sagnar tillögu, sem fyrir lá frá Svavari Gestssyni um, að borgin kæmi á fót sérstakri skrifstofu til að annast ráðgjafa-iörf fyrir al- menning i sambandi við ibúða- kaup. Var tillaga Alfreðs felld af meirihl. svo og tillaga Svavars. Borgarstjóri svaraði fyrir- spurnum frá Kristjáni Benedikts- syni um framkvæmdir og endur- bætur hja BOR. Urðu miklar um- ræður um það mál og taldi fyrir- spyrjandi (K.B.) augljóst að nauðsyn bæri til að bæta aðstöðu BUR i landi áður en nýju togar- arnir kæmu. Borgarstjóri sagði hins vegar, að þau mál öll væru i athugun. Þá var rædd tillaga frá öllum borgarfulltrúum minnihluta- flokkanna þess efnis, að BÚR tryggði sér togara, sem verið er að smiða fyrir Islendinga á Spáni, en ekki er búið að ráðstafa. Yrði það þá þriðji nýi togarinn, sem BÚR fengi. Framsögu fyrir tillögunni hafði Björgvin Guðmundsson. Samkomulag varð um tillögu frá Birgi Isl. Gunnarss. þess efnis að vinna að þvi, að umræddur togari kæmi til Reykjavikur og jafnframt að BÚR festi kaup á honum, ef aðrir reykviskir aðilar byðust ekki sem kaupendur. Aðalmál fundarins var svo til- laga borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins um frumvarp það, sem nú er til afgreiðslu á Alþingi, um tekjustofna sveitarfélaga. Flutti borgarstjóri langa framsöguræðu Rœða dr. Kristjóns Eldjórns er er á bls. 6 — myndir frá forsetaheimsókninni eru í opnu

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.