Tíminn - 16.03.1972, Blaðsíða 12

Tíminn - 16.03.1972, Blaðsíða 12
12 TÍMINN Fimmtudagur 16. marz 1972. — Og gerið yður ferð hingað frá Lundúnum í því skyni? Hann ,'átti því hlæjandi. Anna Studly hafði auðvitað alls enga hugmynd um, hver störf þessi voru, enda sagði faðir henn- ar, áður en þeir byrjuðu á þeim, Önnu að fara að hátta, og bjóða gestunum góðár nætur. — Kvað þá mundu sitja e,nn stundarkorn, — og ef til vill langt fram á nótt. — Að hafa þetta kvenfólk á heimilinu, mælti hann. — Það er sannarlega byrðarauki, enda meg- ið þið eiga það víst, að lengi vcrð ur hún hér ekki. — Ég ætla mér, og verð að útvega henni einhverja atvinnu. — En, mælti hann ennfreimur, — hvað er um peningamálin að isegja? — Ég mun skulda yður fjörutíu sterlingspund, hr. Studly, mælti Damby og roðnaði. — Ég var óheppinn, er við spiluðum síðast. — Það er rétt, mælti Studly, er hann hafði igáð í vasabók sína. — Það eru rétt 40 pund. Ég var heppinn síðasta kvöldið, en vera má, að þér vinnið í kvöld! Get- uim við nú byrjað? Það kom hik á Damby. — Ilann var hræddur um að hann kynni að tapa að nýju, en vildi þó eigi játa það. Þeir fóru nú að spila, og höfðu púnsglösin fyrir framan sig, og héldu síðan áfram að spila og drekka, unz klukkan sló tvö. — Rækalli er orðið framorðið! imælti hr. Warner. — Það segið þér satt! mælti Damby. — Nú hefur mér ólánast aftur. — Já, sagði Studly. — Þér haf- ið verið óheppinn! Þér hafjjS tap- að 150 sterlingspundum! — 150 sterlingspundum! át ungi maðurinn eftir honum og sló á hann felmtri. — Sjáið sjálfur —! i— Ég hefi ekki skrifað neitt hjá mér! svaraði Dairnby. — Jæja! Haldið yður þá að reikningi mínum! Damby hafði staupað shg að mun, og var orðinn þreyttur, og mátti hafa sig allan við, að glenna upp augun, til þess að geta glöggv að sig á reikningnum. — Fjandinn sæki það! mælti hann. — Ég kxefst þess, að mér 'gefist kostur á að hefna þessa! — Auðvitað fáið þér það! svar- aði Studly. — En ekki í kvöld. — Á sunnudaginn kemur, ef þér viljið! — Það er gott, en — en hvern- ig á ég að borga í dag? — Hafið þér cigi peninga á yð ur? spurði Studly. — Jæja, þá haf ið þér þá óefað heima hjá yður! — Ekki heldur! svaraði Dam- by. — Að minnsta kosti hefi ég ekki peninga, en ég hefi skulda- bréf, sem ég erfði fyriir skömmu. — En er tímar líða —. Hr. Studly greip fram í: — Þetta getur nú vel vcrið, 'góði vinur, en ég þarf á pening- urn að halda. — Peningar hafa þrefalt gildi, að því er mig snert- ir! En gelið þér þá ekki selt skuldabréfið? — Ég skal vita, sagði Damby. — En hvað sem því líður, skal yður verða borgað. — En hvenær? rnælti húsráð- andinn, mjög alvarlega. — Getið þér ekki komið með þá á sunnu- daginn! Ég þarf á þeim að halda! — Þér skuluð fá þá! 'Þeiir stóðu nú upp og brölti Damby síðan út úr húsinu, en Warner staldarði ögn við í for- stofunni h já Studly. •— Sjáumst þá á sunnudaginn! mælti hann. — Við byrjum þá þeg ar að skrifa upp imunina, sem við sendum gimsteinasalanum í Amst- erdam, og finnst mér rétt, að við seljum þá allt, sem unnt er. — Hafðu þá allt til! — En Damby, imælti hann enn- fremur, — hafið þér leikið illa í kvöld. — Arfinn ætlaði hann að nota til þess að setja sig á lagg- irnar, er hann kvæntist. — Það er slæmt, mælti Studly, hlæjandi. — Því spilar hann svona kiaufalega? Warner hló háðslega. — Betur, að hann gruni þá ekki, að tap hans er eigi spila- mennsku hans einni að kenna! Einu sinni hélt ég, að hann sæi eitthvað. Ilann einblíndi á fingurna á yður! — Það ætlaði nú heldur eigi að ganga á góðu, að fá hann hing- að, mælti Wairner ennfrcm.ur. — En í gær kom hann þó loks, og sagði að sig lanigaði til að koma! — Nú, nú! mælti Studly hlæj- andi. — í gær sá hann dóttur mína af tilviljun á j.írnbrautar- stöðinni! — Einmitt! mælti Warner. — Leyfið mér þá, að samfagna yður með tengdasoninn! Studly fór að hlæja. — Heldur vildi ég nú fá dóttur minni betri giftingu, mælti hann. — En verið nú sælir, og sj'áið um, að Damby komi hingað á sunnudaiginn, og hafi þá með sér pcningana! Warner ók aftur í hönd- ina á vini sínum. — Ég held, að þér getið reitt yður á það, að hann k'-mur! Reki bað ekki á eftir honum, að reyna, að vinna upp tapið aftur, þá ger- ir ásjóna dóttur yðar það! Þér þekkið, hvernig ungu mennirnir eru! Góða nótt! Hann flýtti sér nú á eftir Dam- by, sem arkað hafði góðan spöl áleiðis til þorpsins, þótt dimimt væri, og hann — sætkenndur. Var hann og í illu skapi, út af tapinu, sem fyrr er saigt. V. KAPÍTULI. Enda þótt Walter Damby væri í æstu skapi, svaf hann þó ágæt- iega um nóttina, í góðu rúmi í gisihúsinu „Ljósið", og dreymdi þægilega drauma. En þegar hann vaknaði morgun inn cftir, mundi hann, hvað gjörzt hafði kvöldið áður, og gramdist þá við sjálfan sig. Hann greip höndum til höfuðs sér, og fannst hann óimögulega ætti til bragðs að taka. Hann gekk því stundarkom í garðinum. Þar var bátur, ætlaður til af- nota gestum, er kynnu að vilja baða sig. Dýfði hann sér nú nokkruim sinnum niður í éna, og fann, að hann hresstist þá, og styrktist. Höfuðið var nú og í bezta lagi, svo að hann gat nú hugsað um, hve illa var komið. — Auðvitað verða peningamir 1063 Lárétt 1) Mál. 5) Veiðitæki. 7) Lita. 9) Gera við. 11) Riki. 13) Bit. 14) Mjúku. 16) Enn. 17) Togi. 19) Verju. Lóðrétt 1) Spilasort. 2) Eins. 3) Væl. 4) An. 6) Sögur. 8. Hraði. 10) Labba. 12. Sálar. 15) Reið- hljóð. 18) Útt. Ráðning á gátu No 1062. Lárétt 1) Skalli. 5) Fáa. 7) 1H. 9) Skör. 11) Rár. 13) Kná. 14) Raus. 16) Gr. 17) Sátur. 19) Skutla. Lóðrétt 1) Skirra. 2) Af. 3) Lás. 4) Lakk. 6) Frárra. 8) Háa. 10) öngul. 12) Rusk. 15) Sáu. 18) TT. Hvellur nálgast rannsóknarstöðina. — Nú — Snjóskriða. — Ég kemst ekki undan henni...nema þvi aðeins.. D R E K I Mér varð illt af að heyra um þessa glæpamenn. — Ég fékk hann yfirvöldunum. Ég vissi,að þau myndu sjá fyrir þvi, að losa sig við hann á fljótlegasta hátt. — Ég er ákveöinn að elta uppi þessa hryllilegu glæpamenn, og útrýma þeim. — Tókst honum það, Walker frændi? — Hann gerði það sem hann gat, en gat ekki lokið við verk sitt. — Það gerðist fyrir 300 árum. ■ FIMMTUDAGUR 16. MARZ 7.00 Morgunútvarp 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 A frívaktinni Eydis Eyþórsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 ,,Sál min að veöi”, sjálfs- ævisaga Bernadettu Devlin Þórunn Siguröardóttir les kafla úr bókinni, sem Þor- steinn Thorarensen is- lenzkaði (2). 15.00 Fréttir. Tilkynningar. 15.15 Miödegistónieikar: Kammertónlist 16.15 Veðurfregnir. Létt lög. 17.00 Fréttir. Tónleikar. 17.40 Tónlistartími barnanna Elinbo g Loftsdóttir sér um timann 18.00 Reykiavikurpistill Páll Heiðar Jónsson segir frá. 18.20 Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Óvisindalegt spjall um annað land örnólfur Árnason flytur fimmta pistil sinn frá Spáni. 19.45 Samleikur á klarinettu ogpianó í útvarpssal Gunnar Egilson og Þorkell Sigur- björnsson leika 20.15. Leikrit: „Natan og Tabilet” eftir Barry Ber- mange Þýðandi: Ásthildur Egilson. Leikstjóri: Gisli Alfreðsson. 21.15 Einsöngur: Finnski bassasöngvarinn Kim Borg syngur rússneskar óperu- ariur. 21.40 óljóð Þorsteinn Han- nesson les úr þessari kvæða- bók Jóhannesar úr Kötlum. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusálma (39). 22.25 A skjánum Stefán Baldursson fil. kand. st- jómar þætti um leikhús og kvikmyndir. 22.50 Létt músik á síðkvöldi. 23.25 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. “ m Tíminn er peningar Auglýsicf i Tímanum : • •M»M>MMMM»M<»MM*>»6 VANDIÐ VALIÐ VIIJII) CERHNA Sendum gegn póstkröfu GUÐM. ÞORSTEINSSON GULLSMIÐUR Bankastr. 12

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.