Tíminn - 06.05.1972, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Laugardagur 6. mai 1972.
UM HELGINA
„Hver er Jesús
Kristur?”
Samkoma um Jesúbylting-
una veröur laugardaginn 6.
mai kl. 8.30 að Amtmannsstig
2B (fyrir ofan M.R.) á vegum
Kristilegra skólasamtaka.
Margt hefur veriö rætt og
ritaðum þessa trúarvakningu,
sem byrjaði i Bandarikjunum
og breiðist þar út og einnig i
Evrópu. Fólk hér á landi hefur
sýnt áhuga á að vita um hvers
kon ar hreyfingu sé að ræða,
sem sézt bezt á fjölsóttum
samkomum og sjónvarpsþætti
um páskana.
1 þessari hreyfingu eru
margir fyrrverandi eiturlvfia-
neytendur og hippar, sem hafa
tekið trú á Jesúm. Hjá þeim
bar mikið á kröfu um frið i
heiminum og leit að s álar-
friði. Þeir leituöu og hafa
fundið að Jesús Kristur getur
veitt þeim þennan frið, ef þeir
snúa sér til hans. Fieiri en
eiturlyfjaneytendur og hippar
hafa komist að sömu niöur-
stöðu og fundið að trúin á
Jesúm veitir þeim það sem
þeir leita að.
Á samkomunni verður Jesú-
byltingin bæði kynnt i tali og
tónlist. Einnig verður leitast
við að gera spurningunni,
„Hverer Jesús Kristur?” ein-
hver skil.
Allt ungt fólk er velkomið.
Brunatækniþing
í Reykjavík
Norrænt brunatækniþing
verður haldið i Reykjavik
dagana 8.-9. og 10. mái n.k.
Þing þessi eru haldin á
tveggja til Ijögurra ára fresti
lil skiptis i höfuðborgum
Norðurlandanna eða Gauta-
borg, og er þetta i fyrsta
skipti, sem þingið er haldið i
Reykjavik.
lJátttakendur i þingum
þessum eru sliikkviliösstjórar,
varaslökkviliðsstjórar og
aðrir, sem starl'a að bruna-
varnatækni á Norðurlöndum.
Þingið hefur að þessu sinni
að aðalviðfangsefni.:
Brunatæknisjónarmið við
skipulagsmál og bygginga-
tækni. Þingiulltrúar verða um
eitthundrað talsins. þar ai 09
erlendir.
Unglingareglan
með kynningar-
og fjáröflunardag
Hinn árlegi kynningar- og
fjáröflunardagur Unglinga-
reglunnar verður næstkom-
andi sunnudag 7. mai. Þá
verða eins og venjulegs seld
merki og bókin Vorblómið til
ágóða fyrir starfsemina alls
staðar þar, sem stúkur starfa.
Merkin kosta kr. 30.00 og
bókin aöeins kr. 75.00. Þessi
barnabók Unglingareglunnar,
Vorblómiö, sem kemur nú út i
9. sinn, hefur náö miklum vin-
sældum og selst I stóru upp-
lagi.
Það eru einlæg tilmæli for-
vigismanna þessa félags-
skapar, að sem allra flestir
landsmenn taki vel á móti
sölubörnum okkar, þegar þau
bjóða merki og athyglisverða
bók á sunnudaginn kemur.
Stórfundur KFUM
og K í Laugardal
A morgun, sunnudaginn 7.
mai kl. 14,00 verður sameigin
legur lokafundur barnadeilda
KFUM og K i Reykjavik og
nágrenni haldinn i iþróttahöll-
inni i Laugardal. — Þangað
hefur einnig veriö boðið deild-
um úr Hafnarfirði, Akranesi,
og Keflavik. Dagskrá fundar-
ins verður fjölbreytt: Farið
verður á ljónaveiðar, kúreki
kemur i heimsókn og sýnir
skotfimi, skrautsýning o.fl.
Einnig verður á fundinum
happdrætti með tveim glæsi-
legum reiðhjólum sem aðal-
vinningum auk nokkurra
smærri vinninga. Þá mun
lúðrasveitin Svanur leika und-
ir almennum söng. Nokkrir
óseldir aðgöngumiðar, sem
jafnframt gilda sem happ-
drættismiðar, verða seldir við
innganginn. Fýsi einhverja
foreldra barnanna að lila inn
er það velkomið, meðan hús-
rúm leyfir. Foreldrar þurfa
ekki aðgöngumiða.
Að loknum fundinum verður
veitingasala i félagsheimilinu
við Holtaveg. Þangað eru allir
velkomnir.
Vetrarstarfi KFUM og K i
Reykjavik og nágrenni lýkur
með þessum fundi. I vetur
hafa félögin verið með barna
og unglingastarf i i eigin
húsnæði á fimm stöðum i
borginni, þ.e. Amtmannsstig
2B, Krikjuteigi 33, félags-
heimilinu við Holtaveg,
Langagerði 1 og i Breiðholti.
Auk þess hefur verið starfað i
lánshúsnæði i Árbæjarhverfi,
á Seltjarnarnesi, i Kópavogi
og Garðahreppi.
Gylfi Þ.
á Varðbergsfundi
Varðberg og saintök um
vestræna samvinnu halda
sameiginlegan hádegis-
verðarfund laugardaginn 6.
mai, fyrir félagsmenn og gesti
þeirra i Þjóðleikhúskjallaran-
um. Húsið veröur opnað kl.12.
Ræöumaður er Gylfi Þ.
Gislason formaöur Alþýöu-
flokksins, og nefnist erindi
hans Utanríkis- og varnarmál
islands. Frjálsar umræður
verða að erindinu loknu.
Flóamarkaður
í Hveragerði
FB—Reykjavik
Kvenstúdentafélagið hefur
ákveðið að endurtaka Flóa-
markaðsinn, sem haldinn var
að Hallveigarstöðum um sið-
ustu helgi, og var mjög vel
sóttur. A sunnudaginn kl. 2
verður Flóamarkaður haldinn
i Hótel Hveragerð. Þar verður
mikið úrval af alls konar fatn-
aði, nýjum og notuðum, teppa-
bútar og smámunir margs
konar. Verðið á öllum þessum
vörum er einstaklega lágt.
Mikil aðsókn var að Flóa-
markaðinum að Hallveigar-
stöðum, og þar seldu kvenstú-
dentar fyrir milli 70 og 80 þús-
und krónur, en allur hagnaður
rennur i námsstyrki til kven-
stúdenta.
Gönguferð
við Hafnarfjörð
Skógræktarfélag Hafnar-
fjarðar efnir til gönguferðar
um nágrenni bæjarins laugar-
daginn 6. þessa mánaðar.
Farið verður frá iþróttahúsinu
kl. 2 e.h. og ekið i Kaldársel,
þaðan verður gengið að Búr-
felli og eftir Búrfellsgjá og
Gjáarrétt og út á Heiðmerkur-
veginn við Hjalla, um Mariu-
velli og Flóttamannaveginn i
bæinn. Leiðsögumaður verður
Gisli Sigurðsson lögreglu-
þjónn.
öllum heimil þátttaka.
Ferming í Landakirkju i Vestmannaeyjum
Ferming 11. maí 1972 klukk
an 10 fyrlr hádcgi.
STÚLKUR:
Anna Finnbogadóttir,
Vesturvegi 25.
Agústa GuSmarsdóttir,
Kirkjuvegi 43.
Ásdis Ahdrésdóttir,
Illugagötu 65.
Aslaug Traustadóttir;
Kirkjuvegi 65.
Ásta Kristmannsdóttir.
Vallargötu 12.
Asta Katrín ólafsdóttir,
HeiSarvegi 68.
Ásthildur Magnúsdóttir,
Landagötu 16.
Elín Hauksdóttir,
BoSaslóS 7.
Elín Laufey Leifsdóttir,
Túngötu 18.
Elínborg Óskarsdóttir,
Skólavegi 27.
Edda Björk Arnardóttir,
Túngötu 5.
Emelía DavíSsdóttir,
Brekastfg 20.
Emella Sveinbjörnsdóttir,
GrœnuhlíS 1.
Matthildur Gunnarsdóttir,
Illugagötu 9.
DRENGIR:
ASalsteinn Jónatansson,
Brimhólabraut 37.
AlfreS AlfreSsson,
Kirkjuvegi 53.
Axel Valdemar Gunnlaugs-
son, Kirkjuvegi 67.
Ðirgir Kristraannsson,
Vallargötu 12.
BöSvar Vignir Bergþórsson,
Fííilgötu 2.
Elías Geir Sœvaldsson,
Hólagötu 30.
Gísli Sveinsson,
Illugagötu 1.
GuSjón Sigurbjörnsson,
Hólagötu 29.
GuSmundur Karl Jónasson,
MiSstrœti 26.
Grétar Pétur Geirsson,
Hilmisgötu 5.
Hannes Rúnar Jónsson,
Helgafellsbraut 7.
Hjörleifur Arnar FriSrÍks-
son, GrœnuhlíS 7.
HörSur Jónsson,
Brekastig 7A.
Ómar Ragnarsson,
Brimhólabraut 11.
Fermlng 11. maí 1972, klukk-
an 2 eftir hádegi.
STÚLKUR:
Erna Ragnarsdóttir,
Landagötu 15 B.
Fjóla Hauksdóttir,
BoSaslóS 20.
GuSbjörg Antonia Guðfinns-
dóttir, Hólagötu 31.
GuSný Bogadóttir,
Laufósi.
Guðný Ósk Sigurbergsdóttir,
Sóleyjargötu 6.
GuðríSur Jónsdóttir,
Kirkjubæjarbraut 9.
Guðrún Eygló Stefánsdótíir,
Höfðavegi 30.
Guðrún Helgadóttlr,
Fjólugötu 8.
Guðrún Karen Tryggva-
dóttir, Hósteinsvegi 56A.
Hafdis Magnúsdóttir,
Vestmannabraut 34.
Hafdis Sólveig Sveinbjöms-
dóttir, Kirkjuvegi 66.
Harpa Kristinsdóttir,
Illugagötu 55.
Inga Hrönn Guðlaugsdóttir,
Asavegi 25.
Kristjana óladóttir,
Asavegi 10.
Lilja Arnardóttir,
Oddstöðu n
Magnea Ósk M.' : •
Helgafellsbraut 15.
Þóranna Haraldsdóttir,
Hrauntúni 35.
DRENGIR:
Eggert Garðarsson,
Illugagötu 50.
ísleifur Ástþórsson,
Asavegi 16.
Jóhann Pétur Sturluson,
SuSurvegi 12.
Jón Anders Asmundsson,
Strembugötu 27.
Lárus Halldór Jakobsson,
Hólagötu 50.
Magnús Rúnar Jónsson,
Hásteinsvegi 52.
ólafur Sölvi Bjarni Ander-
sen, Vestmannabraut 32.
Tómas Stefánsson,
Bakkastíg 1.
Valgeir óli Kolbeinsson,
Urðavegi 48-
Fermingar 14. maí 1972, kl.
10 fyrir hádegi.
STÚLKUR:
Fanney Harða Guðmunda
Kristjánsdóttir,
Kirkjuvegi 26.
Helga GuSjónsdóttir,
Fífilgötu 5.
Hildur Þuriður Sæmunds-
dóttir, Boðaslóð 18.
Hrönn Lárusdóttir,
Brimhólabraut 29.
Hugrún Magnúsdóttir,
Skólavegi 33.
Inga Steinunn Agústsdóttir,
Brimhólabraut 35.
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Brimhólabraut 32.
Jenný Jóhannsdóttir,
Búastaðabraut 9.
Jóhanna Simonardóttir,
Waagfjörð Búastaðabr. 5
Jónína Símonardóttir Waag-
fjörð, Búostaðabraut '5.
Líney Guðbjörg Ragnarsdótt
ir, Birkihlíð 11.
Margrét Gísladóttir,
Suðurvegi 19.
Marta Guðjóns Hallgrims-
dóttir, Illugagötu 34.
Sveindís Norman Alexand-
ersdóttir, Kir’. juvegi 64.
Frrming klukkan 10 fyrir
hádegi 14. maí 1972.
DRENGIR:
Kristi.'.n Jenj Kristinsson,
Brekkuhúsi.
Oddgeir Magnús Úraníusson,
Boðaslóð 6.
Ottó ólafur Gunnarsson,
Heimagötu 14.
Ólafur Pétur Sveinsson,
Höíðavegi 2.
ómar Berg Ásbergsson,
Túngötu 25.
ómar Sigurbergsson,
Skólavegi 6.
ópkar Pétur Friðriksson,
Grænuhlíð 18.
Páll Hagbert Guðlaugsson,
Miðstræti 22.
Rúnar Bjamason,
Brekkugötu 1.
Rúnar Páll Brynjúlfsson,
Hólagötu 39.
Sigurður Daviðsson,
Hvitingavegi 5.
Sigurður Viðar Ottesen,
Heimagötu 35.
Sigurjón Sigurjónsson,
Hólagötu 4.
Sigurjón Hinrik Adolfsson,
Hrauntúni 13.
Snæbjörn Guðni Valtýsson,
Kirkjuvegi 70A.
Þórarinn Ingólísson,
Fjólugötu 4.
Fermlng' 14. mai 1972 klukk-
2 cftir hádegi.
STÚLKUR:
Margrét Grimlaug Kristjáns-
dóttir, Faxastíg 11.
Ólöf Aðalheiður Elíasdóttir,
Hrauntúni 28.
Ólöf Jóna Þórarinsdóttir,
Hólagötu 13.
Ósk Laufdal Þorsteinsdóttir,
Túngötu 27.
Ragnheiður Jónsdóttir,
Höfðavegi 19.
Ragnheiður Lára Jónsdóttir,
Kirkjuvegi 31.
Sigriður Hreinsdóttir,
Asavegi 7.
Sigríður Ágústa Þórarins-
dóttir, Brekastíg 24.
Sigriður Fanný Másdóttir,
Hásteinsvegi 60.
Sigurveig Lárusdóttir Long,
Túngötu 17.
Vigdís Rafnsdóttir,
Brimhólabraut 25.
Þórunn Gísladóttir,
Birkihlið 23.
Ferming klukkan 2 e. h. 14.
maí 1972.
DRENGIR:
Guðmundur ólafsson,
Landagr^u 24.
Guðmundur Eyjólfur 'Jðels-
son, Eystri-Oddstöðum.
Hlynur Geir Richardsson,
Birkihlíð 1.
Jóhannes Lúðvíksson,
Hásteinsvegl 37.
Jón Ben Astþórsson,
Hólagötu 6.
Krisján Hauksson,
Suðurvegi 14.
Páll Amar Georgsson,
Heiðarvegi 11.
Pétur Guðjónsson,
Kirkjubæjarbraut 23.
Stefán Jóhann Pedersen,
Faxastíg 19.
Sveinn Einarsson,
Faxastíg 45.
Tryggvi Þór Ólafsson,
Gerðisbraut 5.
Viðar Ólafsson,
Urðavegi 34.
Þorbjörn Helgi Magnússon,
Kirkjubæ.
Þorvaldur Heiðarsson,
Skólavegi 1.
Karlakór
Reykjavíkur heldur
fjóra samsöngva
Karlakór Reykjavikur
syngur fyrir á fjórða þúsund
áheyrendur á fjórum sam-
söngvum i Austurbæjarbiói
dagana 7.8.9. og 10. mai næst-
komandi. Þetta eru hinir ár
legu hljómleikar kórsins fyrir
styrktarfálga hans og aðra
velunnara, en stjórnandi er
Páll Pampichler Pálsson, ein-
söngvarar þau Svala Nielsen
og Friðbjörn G. Jónsson og
pianóleik annast Guðrún A.
Kristinsdóttir.
Páll Pampichler.
A efnisskránni eru aðallega
islenzk lög, m.a. eftir Bjarna
Þorsteinsson, en kórinn hefur
nýlega sungið inn á næstunni.
Áður hafði fyrirtækið SG-
hljómplötur gefið út tvær
hljómplötur með söng kórsins
á lögum eftir Sigvalda S.
Kaldalóns og Arna
Thorsteinsson, en nú vinnur
kórinn að fjórðu hljómplöt-
unni, sem á verða eingöngu
islenzk þjóðlög f raddsetningu
margra tónskálda.
Björgunarsýning
Ingólfs í
Rauðarárvík
A laugardag hinn
6. mai heldur björgunarsveit
Ingólfs björgunarsýningu við
Rauðarárvik, og hefst hún kl.
3. siðdegis.
Sýnd verður notkun flug-
linutækja eins og verið væri að
bjarga mönnum úr sjávar-
háska, og verða menn dregnir
til lands i björgunarstól i sjó
og á gúmmifleka.
Skotið verður úr
mismunandi gerðum af linu-
byssum og sýnd neyðarblys og
merkjabendingar.
Gúmmibjörgunarbát verður
varpað i sjóinn frá B/b Gisla
J. Johnsen, báturinn blásinn
upp og sýna froskmenn úr
björgunarsveit Ingólfs notkun
slikra báta, t.d. hvernig á að
rétta þá við, hafi þeim hvolft,
o.s.frv.
Þá mun björgunarþyrla
Varnarliðsins fljúga yfir
svæðið og sýna, hvernig nauð-
stöddum er bjargað úr sjó.
Areiðanlega mun mörgum
leika hugur á að sjá slikt i
framkvæmd, minnugir hinnar
giftusamlegu björgunar, sem
áhöfn þyrlunnar leysti af
hendi norður af Engey nú i
vetur.
f febrúarmánuði s.l. varð
Slysavarnadeildin Ingólfur 30
ára, og er þessi björgunar-
sýning haldin til að minnast
þeirra timamóta, og þá ekki
siður hins að þakka hinum
fjölmörgu velunnurum
deildarinnar mikinn og góðan
stuðning á liðnum árum og
minna jafnframt á þýðingar-
mesta þáttinn i starfi Slysa-
varnafélags Islands.
Áhorfendur geta fylgzt mjög
vel með öllu þvi, er fram fer af
Skúlagötu, Skúlatorgi og
Sætúni, og er þeirri askorun
beint til allra, að sýna tillit-
ssemi og gætni i umferðinni til
og frá sýningarsvæðinu. Þá er
sérstök ástæða til að minna
alla á, er leggja leið sina niður
að Rauðarárvik á laugar-
daginn að klæðast vel, þvi að
andað getur svalt fyrir opnu
hafi, þótt sumar sé gengið i
garð.
Slysavarnafélag tslands
minnir alla á lokadaginn 11.
mai n.k., sem verið hefur
fjáröflunardagur félagsins frá
stofnun þess. Þann dag verða
merki félagsins seld um land
allt til styrktar félagsstarfinu.
Mikill áhugi er meðal Ingólfs-
manna, að merkjasalan gangi
sem bezt, þvi að nú þegar
hefur verið byrjað á byggingu
björgunarstöðvar á Granda-
garði, og er áætlað,að hún
verði tekin i notkun i nóvem-
ber n.k. Enn sem fyrr heitir
SVFI á landsmenn alla að
styrkja og efla slysavarna-
starfið með þvi að kaupa
merki félagsins á lokadaginn.
(Fréttatilkynning fra SVFI)
Sendinefnd frá
Heimsfriðarráðinu
Sunnudaginn 7. u.k. er
væntanleg hingað til lands
sendinefnd á vegum Heims-
friðarráðsins. Tilgangur
fararinnar er einkum sá að
ræða öryggis- og friðarmál
Evrópu við islenzka ráða-
menn, islenzku friðarnefnd-
ina, önnur félagasamtök og
almenning. íslenzkir ráða-
menn munu væntanlega hafa
móttökur fyrir nefndina, og
opinber fundur á vegum
Islenzku friðarnefndarinnar
og Menningar og Friðarsam-
taka íslenzkra kvenna
verður haldinn i
Glæsibæ mánudaginn 8.
þ.m. kl. 8.30. 1 förinni eru
framkvæmdastjóri Heims-
f riðarrá ðsins , Romesh
Chandra frá Indlandi, ritari
ráðsins Kazimerz Kielan frá
Póllandi og Matti Kekkonen,
sonur Finnlandsforseta.
Hingaðkoma þremenning-
anna er liður I sams konar för
til hinna Norðurlandanna til
viðræðna við ráðamenn og
almenning þar i löndum.
Hugmyndin um friðlýsingu
Atlantshafsins hefur vakið
mikla athygli innan Heims-
friðarráðsins. Ráðið hefur nú
starfað að friðarmálum um
nær aldarf jórðungs skeið og er
aðili að Sameinuðu þjóðunum
með öllum réttindum félaga-
samtaka.
Fulltrúarnir munu ræða á
hvern hátt Heimsfriðarráðið
megi helzt styrkja Islendinga i
landhelgismálinu, en mál-
staður Islendinga hefur mætt
sérstökum velvilja og skiln-
ingi I Finnlandi, þar sem aðal-
stöðvar Heimsfriðarráðsins
eru staðsettar.
Vortónleikar Tón-
listarskólans í dag
Hinir árlegu vortónleikar
Tónlistarskólans i Reykjavik
verða haldnir i Austurbæjar-
biói laugardaginn 6. mai kl.
2.30 siðdegis. A þessum tón-
leikum koma fram' 15 nem-
endur úr eldri deild skólans,
sem leika einleik eða samleik
á trompett, óbó, fiðlu, celló og
pianó. Efnisskráin er mjög
fjölbreytt en m.a. verða verk
eftir J.S. Bach, Hayden,
Chopin, Bartók, Liszt og Saint-
Saens. Velunnarar skólans eru
velkomnir meðan húsrúm
leyfir.